Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 44
„Kannski má segja að fyrst fyrirtækin voru að eiga í viðskiptum svona saman, þá hefði kannski verið betra að þau hefðu verið eitt og sama félagið. Við hefðum kannski átt að eiga beint í Baugi og Baugur svo átt að eiga fjárfestingarfélag til hliðar. En í raun hefðu hlutir verið gerðir með sama hætti. Við not- uðum Gaum, eins og í Arcadia-málinu, sem undanfara í viðskiptum. Gaumur tók áhætt- una fyrir skráða félagið. Gaumur keypti fyrir 900 milljónir í Arcadia af því að stjórn Baugs vildi ekki taka það mikla áhættu á þeim tímapunkti. Stjórnin heimilaði kaup fyrir 200 milljónir. Ég, sem eigandi Gaums, var sannfærður um að þetta væri góð fjár- festing og var tilbúinn að taka áhættu sjálf- ur. Þegar síðar kom í ljós að Arcadia væri að sigla lygnan sjó færðust bréfin inn í Baug og Baugur fékk langmesta hagnaðinn af þessu. Ef Gaumur hefði haldið sínum hlut, þá hefði Gaumur grætt fimm til sex milljarða.“ En hefur þá Baugur alltaf unnið í samskipt- unum við Gaum? „Já, Baugur hefur alltaf hagnast! Öll viðskipti milli félaganna hafa verið hagfelld fyrir Baug. Við erum ekki að tala um hundruð millj- óna, við erum að tala um milljarða. Enda hef- ur hvorki stjórn Baugs, endurskoðendur né hluthafar kvartað eða gert athugasemdir við viðskiptin. Við eigum mikla hagsmuni í Baugi. Þegar maður á fyrir- tæki er maður ekki að hugsa um að hagnast eitthvað persónulega á stundarviðskiptum. Ég hef alltaf kosið að horfa á heildarmyndina og það sem knýr mig áfram er að hlúa að fyrirtækinu og byggja það upp og fá arðinn síðar. Okkar félög eru vel rekin, eru byggð á traustum stoðum og skara fram úr hvert á sínu sviði. Þetta virð- ast þeir ekki skilja sem rannsökuðu málið. Þegar ég er að byggja upp fyrirtæki reyni ég ekki að svindla á því í leiðinni. Baugur er fjöregg Gaums og Baugur er andlit okkar. Félagið sem á Bónus. Mér finnst það ótrú- legt hvernig lögreglan horfir framhjá því að Baugur hefur haft ávinning af öllum þessum viðskiptum við Gaum. Það hlýtur þó að vera kjarni málsins. Átti alltaf inni hjá félaginu Jón segir óbilgirni gæta hjá efnahagsbrota- deildinni gagnvart færslum á viðskipta- reikningi og vegna viðskiptalána. „Við erum búnir að svara þessu margoft. Það er ótrúlega ósmekklegt hvernig þetta er sett fram. Hvergi getið að allt hefur alltaf verið greitt til baka með reglulegum hætti. Ekki er einu sinni tekið tillit til þess að innri end- urskoðendur Baugs hafa sýnt öll gögn um það. Á þá er ekkert hlustað. Það hafa engir peningar horfið frá Baugi í gegnum þessa reikninga: Félagið tapaði ekki einni krónu á þessu tímabili vegna viðskiptalána, hvað þá ríkti einhver leynd yfir þeim. Öll þess við- skipti stóðu lið fyrir lið í bókhaldi félagsins. Það er ekki á skjön við nein lög að veita við- skiptalán eða lána starfsmönnum eða félög- um í þeirra eigu fyrir hlutabréfum. Svona viðskiptareikningar eru í fjölmörgum fyr- irtækjum, meðal annars fyrirtækjum sem ég hef keypt, og hafa þeir þá verið gerðir upp í tengslum við kaupin. Mér skilst að svona viðskiptareikningar hafi aldrei áður orðið tilefni lögreglurannsóknar eða ákæru. Deloitte, endurskoðunarfyrirtækið sem vann með lögreglunni í rannsókn máls- ins, varð svo hissa á því að þetta gæti verið ákæruefni að það sendi bréf til sinna við- skiptavina og varaði við þessu atriði sér- staklega. Formið á viðskiptum mínum og Baugs var með sama hætti og tíðkast í öðr- um fyrirtækjum. Reyndar var staðan milli mín og fyrirtækisins alltaf þannig að fyrir- tækið skuldaði mér en ekki öfugt. Ég átti frá 108 þúsund og upp í 86 milljónir inni hjá félaginu. Við sýndum lögreglunni gögn um þetta. Það skiptir bara ekki máli. Það er ekki hlustað á það. Endurskoðendur úti um allan bæ árita reikninga með vitneskju um sömu hluti, og KPMG gaf út yfirlýsingu um að fyrirtækið teldi að endurskoðendur þeirra sem ákærðir eru hefðu verið að gera rétt.“ Hvað með viðskiptin við Jón Gerald Sullen- berger og Nordica og meint tollsvik vegna bílainnflutnings á einkabílum? „Mér finnst með ólíkindum að mönnum detti í hug að ég hafi verið að reyna að svindla einhverja 500 þúsundkalla út úr tollinum. Í samhengi má benda á að ég er persónulega ár eftir ár einn stærsti skatt- greiðandi hér á landi. Til dæmis greiddi ég á síðasta ári 99 milljónir í ríkissjóð, sem ég tel ekki eftir mér. Við erum stærsti innflytj- andi landsins og höfum alltaf átt góð samskipti við tollinn og höfum alltaf staðið í skilum. Þessi ásökun er drullukaka sem þeir henda í okkur með von um að eitthvað tolli við okkur. Ef öll þessi sam- skipti við Jón Gerald eru svona glæpsamleg, af hverju er hann þá ekki ákærður í málinu? Hann hlýtur þá að hafa verið að falsa papp- íra ef eitthvað er hæft í þessu. Af hverju hefðum við átt að hætta viðskiptum við fyr- irtæki Jóns Geralds ef allt var svona gruggugt? Hefðum við þá ekki átt að halda þeim áfram í lengstu lög til að halda honum góðum ef hann hafði svona mikið á okkur? Það hefur verið sýnt fram á það að þessar greiðslur sem fóru til Nordica voru vegna vöruhússins og vinnu sem hann var að vinna fyrir okkur. Þessar greiðslur hættu samtímis og við hættum viðskiptum við Jón Gerald. Ef við hefðum viljað senda reikn- inga á Baug vegna þess að við hefðum not- að bátinn The Viking í viðskiptalegum til- gangi fyrir Baug, þá hefðum við alveg get- að gert það og fengið þann kostnað sam- þykktan athugasemdalaust. Á tímablinu 1999-2001 greiddi Gaumur 110 milljónir sem styrk til félagsins og hlutdeild í kostn- aði mínum sem forstjóra. Félaginu bar eng- in skylda að gera það en við gerðum það samt. Á sama tíma eru menn að segja að við höfum verið að taka 40 milljónir út af ein- hverjum bát. Þetta stenst ekki skoðun.“ Ákæran líka á versta tíma Jón Ásgeir segir að félagið hefði ekki lifað af upphaf rannsóknarinnar nema vegna þess að sterkir aðilar stóðu að félaginu og stóðu með því. Gaumur, Reitan í Noregi og Kaupþing banki áttu saman meirihluta í fé- laginu frá skráningu til afskráningar. „Við sáum þann kost vænstan að afskrá félagið. Það var óvinnandi vegur að þurfa að til- kynna í Kauphöllina í hvert skiptið sem lög- reglan bað um einhver gögn. Ég hitti Jón H. Snorrason í júní 2003 og kvartaði við hann að það væri óbærilegt fyrir mig og fjöl- skyldu mína að hafa þetta hangandi yfir mér og þá taldi hann að það væru ekki nema einhverjar vikur í að rannsókninni lyki. Það var hvorki í fyrsta né síðasta skiptið sem þessir menn sögðu okkur ekki satt í málinu.“ Jón segir upphaf rannsóknarinnar hafa komið á skelfilegum tíma fyrir fyrirtækið. „Það eru allt of margar tilviljanir í þessu máli til þess að þær fái staðist. Í mínum huga er alveg klárt að þessu er stjórnað. Í hvert skipti sem við vorum í fréttum vegna þess sem við vorum að fást við, þá bárust fréttir af rannsókninni. Fyrst þeir ætluðu ekki að þingfesta málið fyrr en 17. ágúst, af hverju lá þeim þá svona mikið á að birta ákæruna? Það hafði verið í fréttum að áreiðanleikakönnun vegna Somerfield var að ljúka. Þeir vissu vel um það.“ Ef þessu er stjórnað, hver stjórnar þá? „Andrúmið stjórnar dálítið. Það skapaðist 2001-2002 með gegndarlausum árásum þá- verandi forsætisráðherra á fyrirtækið og hótunum hans um að brjóta upp félagið. Ráðherrann hótaði Hreini Loftssyni því að opinberir aðilar myndu herja á félagið. Jón Steinar tekur að sér málið fyrir Jón Gerald. Jón Steinar hringir í ríkislögreglustjóra. Hversu augljóst getur þetta verið? Jón Steinar fær flýtimeðferð án þess að skoða gögn málsins eins og frægt er. Menn þekkja hvernig það er að kæra til efnahagsbrota- deildar. Það er ekki eins og þar sé venju- lega brugðist hratt við. Í þetta skiptið fengu þeir húsleitarheimild án þess að kanna einu sinni hvort reikningurinn sem var tilefni innrásarinnar væri debet eða kredit. Næði Baugur Arcadia var ljóst að félagið yrði orðið langstærsta fyrirtæki á Íslandi. Fyr- irtæki sem hefði hagnast meira en allur ís- lenskur sjávarútvegur. Það er ljóst að mörgum stóð stuggur af því og einnig stóð mörgum stuggur af því að við vorum orðað- ir við nýja útgáfu Fréttablaðsins. Jú, það var pólitík í þessu máli, það er klárt.“ Ráðamenn skapa andrúm Jón Ásgeir segir óvild Davíðs Oddssonar sennilega eiga margvíslegar rætur. „Þetta byrjaði í verðbólguumræðu og svo varð einhver núningur á milli hans og Hreins Loftssonar. Þetta vindur upp á sig og síðan erum við orðnir ótíndir glæpamenn í hans huga. Við fórum ekki eftir því sem okkur var sagt. Við héldum áfram að byggja upp félagið þótt menn væru farnir að spyrja hvort ekki væri komið nóg. Ég held þetta sé svona. Helstu ráða- menn landsins hafa staðfest hvað Davíð var að bera út um okk- ur á síðasta ári þegar fjölmiðlafrumvarpið var til umræðu. Þá gekk hann um bæinn og sagði við alla sem heyra vildu að við vær- um stærstu skattsvik- arar Íslandssögunnar og svo framvegis. Ég hef fengið þetta staðfest frá tveimur ráð- herrum í núverandi ríkisstjórn. Hvað stendur eftir af skattamáli Baugs? 131 milljón króna sem er ágreiningur um fyrir Yfirskattanefnd. Það skiptir máli hvað ráðamenn segja, þeir skapa andrúm. Í slíku andrúmi gerast þessir hlutir.“ Þú segir að menn hafi talið völd ykkar verða mikil með kaupum á Arcadia. Eru það völdin í krafti peninga sem drífa þig áfram? „Ég heyrði haft eftir einum háttsettum manni í Sjálfstæðisflokknum að megin- markmið mitt væri að verða valdameiri en Davíð Oddsson. Það hefur aldrei verið í mínum huga og þeir sem þekkja mig myndu hlæja að slíkum hugmyndum. Menn hafa greinilega talið að þeim stæði ógn af Baugi. Baugur væri ekki réttu megin, Baugur væri að styðja Samfylkinguna, Ingibjörgu Sólrúnu, forsetann og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta hefur tekið á sig einkennilegustu myndir. Það sem drífur mig áfram er að ég hef ástríðu til að byggja upp góð fyrirtæki sem skara fram úr og skila árangri fyrir neytendur og hagnaði fyrir hluthafa. Peningar einir og sér drífa mig ekki áfram, hvað þá löngun í pólitík. Ég hef eytt síðustu sjö árum í þetta og ég held að það hafi tekist. Baugur hefur vakið gríð- arlega eftirtekt erlendis. Um 80 prósent af erlendri umfjöllun um íslenskt viðskiptalíf hafa verið um þetta fyrirtæki.“ Fyrir fram skilgreindir sem glæpamenn „Það er alveg skelfilegt að sjá afleiðingarn- ar af svona hryðjuverki sem Ríkislögreglu- stjóri hefur unnið. Hvers á fyrirtækið að gjalda? Það bað ekki um þetta. Endurskoð- endur okkar, lögfræðingar og innri endur- skoðendur hafa lagt fram gögn og skýring- ar sem sýna að það er ekki neitt í þessu. Það er bara ekki hlustað á það. Það er mjög sér- stakt en ég upplifi þetta eins og lögreglan bankaði upp á heima hjá mér og segi: „Það var brotist inn til þín.“ Þótt ég mótmæli og segi að allt sé í lagi þá segir lögreglan „víst“ og ryðst svo inn og rústar heimilinu og segir síðan „sérðu ekki maður, heimilið er í rúst“. Þetta er náttúrlega stórfurðulegt. Ég hef það á tilfinningunni að við höfum þegar í upphafi verið skilgreindir sem glæpamenn og svo hafi menn farið af stað að leita að glæpnum.“ Það er augljóst að þú treystir ekki rann- sóknaraðilum málsins. Hvað með dómstól- ana? „Ég trúi því að dómstólarnir muni horfa á gögnin sem við leggjum fram sem lögregl- an hefur haft að engu. Ef það verður gert þarf ég engu að kvíða.“ Hvaða áhrif hefur málið í Bretlandi, stærsta viðskiptalandi Baugs í dag? „Það er ótrúlega erfitt að útskýra þetta mál í Bretlandi. „Baugur er fórnarlambið,“ segja þeir „og þú ert forstjóri Baugs. Hvernig stendur á því að þú ert ennþá for- stjóri? Af hverju er ekki búið að reka þig?“ Ég bý við það að vera ákærður án þess að nokkur aðili tengdur fyrirtækinu hafi kært mig fyrir að stela neinu. Þeir skilja það ekki, hvað þá að sami maður stjórni rannsókn og ákæri. Markmið okkar er að halda sjó í Bretlandi næstu mán- uði og halda áfram að byggja félögin upp sem eru okkar í dag.“ Það er ljóst að þetta mál hefur hvílt þungt á þér, en hver er upplifun þín af rannsókninni? „Það er furðulegt að hægt sé að ráðast inn á fólk án þess að nokkur haldi því fram að hafa orðið fyrir tjóni, og halda því í raun í varðhaldi í þrjú ár. Í þessi þrjú ár hefur linnulaust verið barið á okkur út af þessari rannsókn og um hana hefur verið fjallað svo til daglega í fjölmiðlum hér í Bretlandi eða á Norðurlöndum. Slíkt er gríðarlegt álag á fólk sem í þessu stendur og einhver mesta refsing sem nokkur maður getur fengið. Það gengur ekki að mannréttindi fólks séu fótum troðin með þessum hætti. Við erum líka manneskjur þó við eigum eitthvað af peningum og fjölmiðla.“ Jón Ásgeir segir fjölskylduna einnig hafa fundið fyrir miklum stuðningi úr ýms- um áttum að undanförnu. „Ég vil þakka þann mikla stuðning sem mér og fjölskyldu minni hefur verið sýndur síðustu vikur.“ haflidi@frettabladid.is Fjárdráttur – hegningarlög gr. 247 / 19, 1940: Dragi maður sér fjármuni eða önnur verðmæti, sem hann hefur í vörslum sínum, en annar maður er eigandi að, án þess þó að verknaðurinn varði við 246. gr., þá skal hann sæta fangelsi allt að 6 árum. Hafi maður notað peninga annars manns heimildarlaust í sjálfs sín þarfir, þá skal honum refsað fyrir það sam- kvæmt 1. mgr. hvort sem honum hefur verið skylt að halda peningunum að- greindum frá sínu fé eða ekki. Umboðssvik – hegningarlög gr. 249 / 19, 1940: Ef maður, sem fengið hefur aðstöðu til þess að gera eitthvað, sem annar maður verður bundinn við, eða hefur fjárreiður fyrir aðra á hendi, misnotar þessa að- stöðu sína, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum, og má þyngja refsinguna, ef mjög miklar sakir eru, allt að 6 ára fang- elsi. (Ef maður á ólögmætan hátt breyt- ir, bætir við eða eyðileggur tölvuvélbún- að, eða gögn eða forrit sem geymd eru á tölvutæku formi, eða hefur með öðr- um hætti gert ráðstafanir sem eru til þess fallnar að hafa áhrif á niðurstöðu tölvuvinnslu, varðar það fangelsi allt að 6 árum.) Opinber gjöld o.fl. – hegningarlög gr. 262 / 19, 1940 (ekki birt í heild): Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gá- leysi gerist sekur um meiri háttar brot gegn 1., 2. eða 5. mgr. 107. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt, (... nánari til- vísanir) skal sæta (..) fangelsi allt að 6 árum. Heimilt er að dæma fésekt að auki samkvæmt þeim ákvæðum skatta- laga er fyrr greinir. Hlutafélagalög grein 104 / 2, 1995 (ekki birt í heild): Hlutafélagi er hvorki heimilt að veita hluthöfum, stjórnarmönnum eða fram- kvæmdastjórum félagsins eða móðurfé- lags þess lán né setja tryggingu fyrir þá. Félagi er einnig óheimilt að veita þeim lán eða setja fyrir þann tryggingu sem giftur er eða í óvígðri sambúð með aðila skv. 1. málsl. eða er skyldur honum að feðgatali eða niðja ellegar stendur hlut- aðeigandi að öðru leyti sérstaklega nærri. Ákvæði þessarar málsgreinar taka þó ekki til venjulegra viðskiptalána. Hlutafélag má ekki veita lán til að fjár- magna kaup á hlutum í félaginu eða móðurfélagi þess hvort heldur móðurfé- lagið er hlutafélag eða einkahlutafélag. Hlutafélag má heldur ekki leggja fram fé né setja tryggingu í tengslum við slík kaup. (Ákvæði 1.ñ2. málsl. eiga þó ekki við um kaup starfsmanna félagsins eða tengds félags á hlutum eða kaup á hlut- um fyrir þá.) Hlutafélagalög grein 153 / 2, 1995 (ekki birt í heild): Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum: 1. Að skýra vísvitandi rangt eða villandi frá högum hlutafélags eða öðru er það varðar í opinberri auglýsingu eða til- kynningu, í opinberu boði í þátttöku í stofnun félags eða í útboði hluta, í skýrslum, ársreikningi eða yfirlýsingum til hluthafafundar eða forráðamanna fé- lags eða í tilkynningum til hlutafélaga- skrár. 2. Að brjóta vísvitandi ákvæði laga þessara um öflun vissra fjárhagsverð- mæta (...), greiðslu hlutafjár, útgáfu hlutabréfa eða bráðabirgðaskírteina, hlutaskrá, eigin hluti (...), skyldu for- manns varðandi boðun til stjórnarfunda (...), boðun til hluthafafundar ef eigið fé samkvæmt bókum félagsins er orðið minna en helmingur af skráðu hlutafé þess (...), tillög í varasjóð, úthlutun arðs, endurgreiðslu á hlutafjárframlögum, lán eða tryggingu til handa hluthöfum o.fl. (104. gr.) og tilkynningu um stofnun úti- bús og starfsemi þess (141. gr.). Tollsvik og rangfærsla skjala: grein 126 / 55, 1987 (ekki birt í heild) Hver sem af ásetningi, stórfelldu gáleysi eða ítrekað veitir rangar eða villandi upplýsingar um tegund, magn eða verð- mæti farms eða vöru eða leggur ekki fram til tollmeðferðar gögn sem lög þessi taka til skal sæta sektum sem nema skulu að lágmarki tvöfaldri en að hámarki tífaldri þeirri fjárhæð sem und- an var dregin af aðflutningsgjöldum. Til birtingar með ákærunum í sjálfstæð- um ramma eða með öðrum hætti ... LAGAGREINARNAR ■ Brot sakborninga í Baugsmálinu eru mismunandi. fiær lagagreinar sem tí›ast eru nefndar í ákærunni eru eftirfarandi: 8 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR „fiótt ég mótmæli og segi a› allt sé í lagi flá segir lögreglan „víst“ og ry›st svo inn og rústar heimil- inu og segir sí›an „sér›u ekki ma›ur, heimili› er í rúst“. fietta er náttúrlega stórfur›ulegt. Ég hef fla› á tilfinningunni a› vi› höfum flegar í upphafi veri› skilgreindir sem glæpamenn og svo hafi menn fari› af sta› a› leita a› glæpnum.“ „Hvergi geti› a› allt hefur alltaf veri› greitt til baka me› reglu- legum hætti. Ekki er einu sinni teki› tillit til fless a› innri end- ursko›endur Baugs hafa s‡nt öll gögn um fla›. Á flá er ekkert hlusta›.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.