Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 30
6 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR VINNUM EFTIR CABAS-KERFINU Almenn smurþjónusta Hjólbarðaþjónusta Sjálfskiptingaþjónusta Rafgeymaþjónusta Ísetning bremsuklossa Dempara – ísetningar o.fl. Vegmúli 4 • Sími 553 0440 Bíldshöfða 18 • 110 Rvk Sími 567 6020 • Fax 567 6012 opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00 www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is Partur–Spyrnan–Lyftarar Eldshöfða 10 s. 585 2500 og 567 8757 TRIO G O L F H J Ó L Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni! Nýr Toyota Hilux í október Toyota-umboðið hefur sölu á nýja jeppanum í haust. Hann er ívið stærri en forverinn. Nýr Toyota Hilux Double Cab- jeppi verður fáanlegur hjá Toyota-umboðinu á Íslandi í októ- ber. Jeppinn er talsvert stærri en forverinn og býður upp á meira pláss en áður, sérstaklega í far- þegarýminu. Nýi jeppinn býður upp á þægilegt rými fyrir fimm full- orðna einstaklinga í farþega- rýminu og þ æ g - indi í sætum hafa aukist tals- vert. Sætispúðar eru lengri, hægt er að renna og halla sætun- um betur en áður og aftursætin má nú fella upp á við og skapa þannig meira farangursrými. Geymslurýmið hefur verið aukið, viðbótarglasahöldurum komið fyrir, hurðarhólf víkkuð og auka geymsluhólfi komið fyrir. Í fyrstu mun 2,5 lítra D-4D Toyota dísilvél knýja nýjan Hilux en hún skilar 102 hestöflum við 3.600 snúninga og allt að 260 Nm tog. Á næsta ári verður síðan boðið upp á Intercooler- gerð þessarar sömu vélar. ■ Akstursmatið jákvæð breyting Ökunám er í stöðugri endur- skoðun enda mjög mikilvægt að nýir ökumenn séu vel í stakk búnir að takast á við umferðina. Hrönn Bjargar Harðardóttir ökukennari er ánægð með breytingarnar undanfarin ár og finnst að upptaka akstursmats hafi verið stórt skref í rétta átt. Þónokkrar breytingar hafa orð- ið á umgjörð ökunáms hér á landi undanfarin ár. Ökunámið sjálft hefur breyst sem og öku- kennaranámið og miða breyt- ingarnar að sjálfsögðu að því að gera umferðina öruggari og búa nýja ökumenn betur undir þá ábyrgð sem felst í því að aka bíl. Hrönn Bjargar Harðardóttir er ánægð með breytingarnar sem nú er komin nokkur reynsla á. „Mér finnst ökukennslan vera mjög góð í dag og flestir af þess- um krökkum aka bara mjög vel og huggulega,“ segir hún. Hrönn finnst sérstaklega mikil framför hafa falist í aksturs- matinu sem ökumenn þurfa nú að ganga í gegnum eftir að hafa verið með bráðabirgðaskírteini í tvö ár eftir prófið. „Aksturs- matið hamlar þeim sem eru með punkta að halda áfram á sömu braut. Ef þú ert með punkta á ökuferilsskránni þegar kemur að matinu þá færðu ekki fulln- aðarskírteini til sjötugs heldur aftur bráðabirgðaskírteini til tveggja ára,“ segir Hrönn. Mat- ið er líka mjög gott til að búa til betri ökumenn með því að svara spurningum sem komið hafa upp á þessu tveggja ára tíma- bili. „Matstíminn byrjar á sjálfsmati og svo sitja ökumenn með kennara sem hefur leyfi til að framkvæma svona mat sem leiðbeinir þeim eftir þörfum. Þau eru oft að spyrja um atriði sem þau vilja vita meira um eins og hægrirétt og að bakka í stæði. Matskennarinn skrifar síðan upp á hvort viðkomandi ökumaður sé hæfur fyrir fulln- aðarskírteini eður ei,“ segir hún. Alltaf er verið að breyta og bæta ökunámið. „Ökukennslan er núna á mjög góðri leið þó að enn vanti kannski aðeins upp á æfingasvæði og fleira,“ segir Hrönn. Hún er þó mjög vongóð um að það sé allt á réttri leið og til dæmis hljóti æfingasvæði fyrir akstur í hálku að vera rétt handan við hornið. „Mér finnst líka umræðan í þjóðfélaginu vera jákvæð og bæði Umferðar- stofa og lögreglan vera viljug að gera eitthvað í því máli.“ ■ M-Class jeppinn er afar glæsilegur. Nýr M-Class jeppi Askja hefur hafið sölu á nýjum M- Class jeppa sem leysir eldri gerð af hólmi. Bíllinn er seldur með öflugum bensín- og dísilvélum. Hann fæst með tveim gerðum dísilvéla; 190 hestafla og 225 hestafla. Einnig verður hann boðinn með tveimur gerðum bensínvéla, ML350 sem er með 272 hestafla vél og ML500 með 306 hestafla átta strokka vél. Bíllinn er með handstýrða gírskiptingu í stýrishjóli, ESP-stöðugleikastýringu og spólvörn en grunnverð á nýjum M- Class hjá Öskju er 5.990.000 krónur. Hrönn er ánægð með breytingar á ökunámi. Toyota Hilux er mjög vinsæll á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.