Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 41
stjóra og aðila þeim nátengdum, var ekki sérstaklega getið, heldur felldar undir lið- inn aðrar skammtímakröfur í efnahags- reikningi, auk þess sem þeirra var ekki get- ið í skýrslu stjórnar eða í skýringum árs- reikningsins eins og bar að gera. Ársreikn- ingurinn með þessum röngu og villandi sér- greiningum og án viðeigandi skýringa, árit- aði ákærði Stefán Hilmar, endurskoðandi hlutafélagsins, án fyrirvara. Lán til hluthafa, stjórnarmanna, fram- kvæmdastjóra og aðila þeim nátengdum námu í lok reikningsárs 1999 fjárhæðum sem hér greinir: [ekki aðgangur að töflum.] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA: Vísast til athugasemda sakborninga við lið 33. 35. Ákærði Jón Ásgeir, sem framkvæmda- stjóri Baugs hf., með því að hafa við undir- búning, gerð og framsetningu ársreiknings vegna ársins 2000, með tilstuðlan og aðstoð meðákærða Tryggva sem aðstoðarfram- kvæmdastjóra og yfirmanns fjármála hlutafélagsins, sett fram rangar og villandi sérgreiningar á liðum skammtímakrafna í efnahagsreikningi þar sem fjárhæð lána, sundurliðað ásamt upplýsingum um vexti greiðslukjör og aðra helstu skilmála, til hluthafa, stjórnarmanna, framkvæmda- stjóra og aðila þeim nátengdum, var ekki sérstaklega getið, heldur felldar undir lið- inn aðrar skammtímakröfur í efnahags- reikningi, auk þess sem þeirra var ekki get- ið í skýrslu stjórnar eða í skýringum árs- reikningsins eins og bar að gera. Ársreikn- inginn með þessum röngu og villandi sér- greiningum og án viðeigandi skýringa árit- uðu ákærðu Stefán Hilmar og Anna, endur- skoðendur hlutafélagsins, án fyrirvara. Lán til hluthafa stjórnarmanna, fram- kvæmdastjóra og aðila þeim nátengdum námu í lok reikningsárs 2000 fjárhæðum sem hér greinir: [ekki aðgangur að töflum] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA: Vísast til athugasemda sakborninga við lið 33. 36. Ákærði Jón Ásgeir, sem framkvæmda- stjóri Baugs hf., með því að hafa, við undir- búning, gerð og framsetningu ársreiknings vegna ársins 2001, með tilstuðlan og aðstoð meðákærða Tryggva sem aðstoðarfram- kvæmdastjóra og yfirmanns fjármála hlutafélagsins, sett fram rangar og villandi sérgreiningar á liðum skammtímakrafna í efnahagsreikningi þar sem fjárhæð lána, sundurliðað ásamt upplýsingum um vexti, greiðslukjör og aðra helstu skilmála, til hluthafa, stjórnarmanna, framkvæmda- stjóra og aðila þeim nátengdum, var ekki sérstaklega getið, heldur felldar undir lið- inn aðrar skammtímakröfur í efnahags- reikningi, auk þess sem þeirra var ekki get- ið í skýrslu stjórnar eða í skýringum árs- reikningsins eins og bar að gera. Ársreikn- inginn með þessum röngu og villandi sér- greiningum og án viðeigandi skýringa árit- uðu ákærðu Stefán Hilmar og Anna, endur- skoðendur hlutafélagsins, án fyrirvara. Lán til hluthafa stjórnarmanna, fram- kvæmdastjóra og aðila þeim nátengdum námu í lok 14 mánaða reikningsárs 2001, 28. febrúar 2002, fjárhæðum sem hér grein- ir: [ekki aðgangur að töflum.] ATHUGASEMDIR SAKBORNINGA: Vísast til athugasemda sakborninga við lið 33. Þá er rétt að vekja athygli á yfirlýsingu KPMG Endurskoðun hf., dags. 4. júlí 2005, sem er svohljóðandi: „Vegna ákæru Ríkislög- reglustjóra í svonefndu Baugsmáli á hendur starfsmanni KPMG Endurskoðunar hf. vill fé- lagið koma eftirfarandi upplýsingum á fram- færi. Það sem starfsmanni KPMG er gefið að sök er að hafa áritað ársreikninga Baugs hf. fyrir árin 2000 og 2001 án fyrirvara en Ríkis- lögreglustjóri telur að tilteknar upplýsingar í ársreikningunum hafi ekki verið settar fram í samræmi við lög. Hlutverk endurskoðenda er að láta í ljós álit á því hvort reikningsskil gefi glögga mynd af afkomu og efnahag. Það er mat KPMG að endurskoðendur Baugs hf. hafi sinnt starfsskyldum sínum í samræmi við lög. Álit KPMG er að áritun á framangreinda árs- reikninga Baugs hf. hafi verið með eðlilegum hætti. [...] “ Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt 33. til og með 36. töluliðs ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995 sbr., 2. tl. 1. mgr. 83. gr., sbr. 82. gr. sbr. 43. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 144, 1994, um ársreikn- inga. Brot ákærða Tryggva samkvæmt 33. til og með 36. töluliðs ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995, sbr. 2. tl. 1. mgr. 83. gr., sbr. 82. gr., sbr. 43. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 144, 1994, um ársreikninga. Til vara teljast brot ákærða Tryggva varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995, sbr. 2. tl. 1. mgr. 83. gr., sbr. 82. gr., sbr. 43. gr., sbr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 83. gr. laga nr. 144, 1994, um ársreikninga, sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995. Brot ákærða Stefáns Hilmarssonar sam- kvæmt 33. til og með 36. töluliðs ákæru telj- ast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995, sbr. 2. og 3. tl. 85. gr., sbr. 82. gr., sbr. 43. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 144, 1994 um ársreikninga. Brot ákærðu Önnu samkvæmt 35. og 36. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39, 1995, sbr. 2. og 3. tl. 85. gr., sbr. 82. gr., sbr. 43. gr., sbr. 36. gr. laga nr. 144, 1994 um ársreikninga. IX. TOLLSVIK OG RANGFÆRSLA SKJALA. Ákærðu Jón Ásgeiri, Jóhannesi og Krist- ínu fyrir tollsvik og rangfærslu skjala í eftirgreindum tilvikum: 37. Ákærði Jón Ásgeir með því að hafa við innflutning í nafni Bónus sf. á bifreiðinni PX 256, með sendingarnr. D 779 01 11 8 US NYC 0884, gefið rangar upplýsingar á að- flutningsskýrslu dags. 6. nóvember 1998, innlagðri sama dag hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt tilhæfulausum vöru- reikningi dags. 20. október 1998, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkj- unum, sem tilgreindi kaupverð bifreiðar- innar ranglega USD 29.875,00 í stað USD 37.000,00 samkvæmt kaupsamningi dags. 13. október 1998 frá Colonial, Miami, Flór- ída í Bandaríkjunum, en reikninginn hafði viðskiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sullen- berger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutningsskýrslunn- ar kom ákærði sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 202.510,00 og vörugjaldi að fjárhæð kr. 325.618,00 eða samtals kr. 528.128,00. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Ásökun um brot er alfarið hafnað. Lögregla hefur ekki gert reka að því að rannsaka nánar sakargiftirnar sem byggjast alfarið á fram- burði JGS sjálfs. Ættu ásakanirnar við rök að styðjast væri JGS augljóslega sekur um hlut- deild í meintum brotum. Engin ákæra hefur verið gefin út á hendur JGS. Gerð er grein fyr- ir þessum innflutningi í bréfi JÁJ 5. mars 2004. 38. Ákærði Jón Ásgeir með því að hafa við innflutning á bifreiðinni OD 090, með send- ingarnúmer S HEG 10 11 9 CA MTR W004, í nafni hlutafélagsins Baugs, gefið rangar upplýsingar á aðflutningsskýrslu dags. 3. desember 1999, innlagðri 7. desember 1999 hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt til- hæfulausum vörureikningi dags. 23. sept- ember 1999, útgefnum af Nordica Inc., Mi- ami, Flórída í Bandaríkjunum, sem til- greindi kaupverð bifreiðarinnar ranglega USD 27.600,00 í stað USD 34.400,00 sam- kvæmt vörureikningi dags. 29. október 1999 frá Automotores Zona Franca, Miami, Flórída í Bandaríkjunum, en fyrrnefnda reikninginn hafði viðskiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sullenberger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að að- flutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutningsskýrslunnar kom ákærði sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 225.900,00 og vörugjaldi að fjárhæð kr. 363.229,00 eða samtals kr. 589.129,00. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Vísast til athugasemdar við ákærulið 37. 39. Ákærði Jóhannes með því að hafa við innflutning á bifreiðinni KY 293, með send- ingarnr. D 779 28 05 0 US NYC 0160, gefið rangar upplýsingar á aðflutningsskýrslu dags. 30. maí 2000, innlagðri sama dag hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt tilhæfu- lausum vörureikningi dags. 11. apríl 2000, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, sem tilgreindi kaupverð bifreiðarinnar ranglega USD 34.850,00 í stað USD 43.400,00 samkvæmt vörureikn- ingi dags. 17. maí 2000 frá Automotores Zona Franca, Miami, Flórída í Bandaríkjun- um, en fyrrnefnda reikninginn hafði við- skiptafélagi ákærða, Jón Gerald Sullen- berger, gefið út að ósk ákærða í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutningsskýrslunn- ar kom ákærði sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 231.691,00 og vörugjaldi að fjárhæð kr. 293.487,00 eða samtals kr. 525.178,00. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Vísast til athugasemdar við ákærulið 37. 40. Ákærða Kristín með því að hafa við inn- flutning á bifreiðinni KY 835, með sending- arnr. D 779 28 05 0 US NYC 0159, gefið rangar upplýsingar á aðflutningsskýrslu dags. 30. maí 2000, innlagðri sama dag hjá Tollstjóranum í Reykjavík, ásamt tilhæfu- lausum vörureikningi dags. 11. apríl 2000, útgefnum af Nordica Inc., Miami, Flórída í Bandaríkjunum, sem tilgreindi kaupverð bifreiðarinnar ranglega USD 46.780,00 í stað USD 58.200,00 samkvæmt vörureikn- ingi dags. 17. maí 2000 frá Automotores Zona Franca, Miami, Flórída í Bandaríkjun- um, en fyrrnefnda reikninginn hafði við- skiptafélagi ákærðu, Jón Gerald Sullen- berger, gefið út að ósk ákærðu í þessu skyni, og með því að aðflutningsgjöld voru reiknuð á grundvelli aðflutningsskýrslunn- ar kom ákærða sér undan því að standa skil á virðisaukaskatti að fjárhæð kr. 307.598,00 og vörugjaldi að fjárhæð kr. 389.639,00 eða samtals kr. 697.237,00. ATHUGASEMDIR SAKBORNINGS: Vísast til athugasemdar við ákærulið 37. Brot ákærða Jóns Ásgeirs samkvæmt 37. og 38. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. almennra hegning- arlaga nr. 19, 1940. Brot ákærða Jóhannesar samkvæmt 39. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærðu Kristínar samkvæmt 40. tölulið ákæru teljast varða við 2. mgr., sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55, 1987, og 2. mgr. 158. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar fyrir framangreind brot. Skrifstofa Ríkislögreglustjórans, Reykjavík 1. júlí 2005. LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 5 króna gegn því að ég léti af ímyndaðri andstöðu gegn fyr- irtækinu. Ég lét nú Hrein segja mér þetta tvisvar og hann sagði mér það tvisvar, að Jón forstjóri hefði nefnt við sig, að það þyrfti að bjóða mér 300 milljónir króna. Ég var nú svo þrumulostinn og Hreinn sjálfsagt sá það nú og sagðist hafa sagt við forstjórann: Þú þekkir ekki forsætisráðherr- ann. Það þýðir ekkert að bera á hann fé. Þá hafði Jón þessi að sögn Hreins Loftssonar sagt: Það er enginn mað- ur, sem stenst það að fá 300 milljónir, sem hvergi koma fram, hvergi er greiddur skattur af og greiddar eru inn á reikning hvar sem er í heiminum.“ 4. mars 2003 – Reykjavík Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, segir meðal annars í samtali við Morgunblaðið: „Þá gat ég þess, að Jón Ásgeir hefði sagt í hálfkæringi, að það væri kannski rétt að borga honum (Davíð) 300 milljónir inn á reikning í útlöndum... Þetta ítrekaði ég við hann í morgun, þegar Davíð hringdi í mig áður en hann fór í útvarpið. Þá ítrek- aði ég að þetta hefði verið sagt undir þessum kringum- stæðum í hálfkæringi og engin alvara hefði verið á bak við.“ Jón Ásgeir segir sama dag í viðtali við Morgunblaðið: „Það má hugleiða hvers vegna forsætisráðherra kemur fram með slíkar ásakanir núna, snemma á mánudags- morgni. Mér sýnist að forsætisráðherra hafi kannski lent í enhverjum vandræðum með það hvernig hann ætti að svara því sem fram kom í Fréttablaðinu á laugardaginn, um að hann hafi á þessum fundi með Hreini í fyrra rætt um Jón Gerald Sullenberger og Nordica. Því tel ég að for- sætisráðherra hafi samið þessa sögu um helgina og mætt með hana í morgunútvarpið.“ 30. september 2003 – London Meint innherjasvik hjá bresku verslanakeðjunni Iceland, hlutdeildarfélagi Baugs Group, rannsökuð hjá opinberri stofnun í Englandi sem fæst við efnahagsbrot. 17. nóvember 2003 – Reykjavík Fulltrúar embættis skattrannsóknarstjóra ríkisins og lög- reglunnar, 15 til 20 manns, gera húsleit hjá Baugi Group og Gaumi. Krafist er að afhent verði bókhald og fylgiskjöl þess og önnur gögn er varða reksturinn 1998-2002. Bréf, tilboð, samningar og fleira einnig tekið af lög- reglunni. 29. apríl 2004 – Lúxemborg Lögreglan í Lúxemborg leggur hald á gögn um Baug og Gaum í Kaupthing Bank í Lúxemborg. Liður í rann- sókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. 7. janúar 2005 – Reykjavík Baugi Group gert að greiða um 465 milljónir króna við endurálagningu ríkisskattstjóra fyrir árin 1998 til 2002. Forsvarsmenn Baugs segja að megnið af þeirri fjárhæð sem félaginu sé gert að greiða sé vegna van- talins söluhagnaðar við samruna Hagkaupa, Bónuss og fleiri félaga þegar Baugur var stofnaður 1998. 1. júlí. 2005 – Reykjavík Sex manns ákærðir í Baugsmálinu, þeirra á meðal Jó- hannes Jónsson og börn hans Jón Ásgeir og Kristín. Að auki Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og endurskoðendurnir Stefán Hilmarsson og Anna Þórðardóttir. Tæplega þriggja ára rannsókn efnahags- brotadeildar Ríkislögreglustjóra er þar með lokið. Ákæran er í 40 liðum en ekki birt. 8. júlí 2005 – Reykjavík – London Eftir mikla umfjöllun í breskum fjölmiðlum um ákær- urnar á hendur einstaklingunum sem tengjast Baugi Group er samstarfi félagsins við aðra fjárfesta um kaup á Somerfield-keðjunni slitið. 14. júlí 2005 – Reykjavík – London Baugur selur 5,5 prósenta hlut sinn í Somerfield til Tchenguiz-fjölskyldunnar. Baugur er talinn hafa hagn- ast um þrjá milljarða á eign sinni í Somerfield. 12. ágúst 2005 – London Breska dagblaðið Guardian birtir fyrst fjölmiðla um- fjöllun sem er byggð á ákærum Ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.