Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 16
Kópavogsbær hefur nýverið út-
hlutað um 200 lóðum í Þinga-
hverfi, en það er hluti af svæðinu
á Vatnsenda, uppi við Elliðavatn.
Þessar úthlutanir hafa verið
nokkuð til umræðu, og meðal
annars verið bent á að margir
„áberandi“ og „vel megandi“ ein-
staklingar hafi fengið þar lóðir,
en einnig að fólk með góð tengsl
inn í bæjarkerfið hafi fengið
þarna lóðir, umfram aðra. Eins
og gefur að skilja verja forráða-
menn bæjarins þessa úthlutun,
og vísa í að farið hafi verið eftir
þeim reglum sem bærinn hafi
sett sér. Þetta kann að vera rétt
svo langt sem það nær, en gallinn
er sá að reglurnar sem farið er
eftir eru engan veginn nógu
gagnsæjar. Í rauninni er hægt að
lesa út úr reglunum að það sé al-
gerlega undir geðþótta bæjar-
ráðsmanna komið hverjir fái lóð-
ir á hverjum tíma. Hvort sem
það er þannig eða ekki að bæjar-
ráðsmenn hafi hjálpað einhverj-
um að fá lóðir eða „togað í
spotta“ þá er það algerlega óá-
sættanlegt að reglurnar séu svo
loðnar og auðsveigjanlegar að
slíkur kvittur komi upp. Því mið-
ur er þetta ekki í fyrsta sinn sem
slíkt gerist, og ekki það síðasta,
verði reglunum ekki breytt. Bæj-
arbúar og aðrir umsækjendur
verða að geta trúað því að allir
sitji við sama borð þegar að út-
hlutun kemur. Það er algerlega
óþolandi að gæðum eins og lóð-
um, sé úthlutað eftir fyrirkomu-
lagi sem er jafn loðið og raun ber
vitni. Það er jafnframt algerlega
óviðunandi að þeir einstaklingar
sem fá úthlutað lóðum þurfi í
kjölfarið að sitja undir ásökun-
um í fjölmiðlum um að hafa not-
ið einhvers forgangs. Til lengdar
er slíkt orðspor slæmt til af-
spurnar fyrir bæinn og getur
jafnvel fælt umsækjendur frá
því að sækja um.
Nokkrar leiðir hafa verið
reyndar í sveitarfélögunum í
næsta nágrenni Kópavogs.
Happdrætti sem allir geta tekið
þátt í er ein leið til jafnræðis, en
verð lóðanna verður þá að vera
sem næst markaðsverði á svæð-
inu, að öðrum kosti aukast líkur á
því að fólk sæki um til þess eins
að leysa inn hagnað við sölu lóð-
arinnar. Uppboð hafa verið
reynd, en eru ósanngjörn að því
leyti að þau útiloka í raun aðra
en þá sem hafa tekjur í hærri
kantinum eða aðgang að fjár-
magni. Á móti má segja að sveit-
arfélagið getur þá notað það fé
sem fæst umfram útlagðann
kostnað til þess að bæta félags-
lega þjónustu og bæta aðstöðu
þeirra sem ekki geta boðið í lóð-
ir. Einnig hefur verið notað
punktakerfi þar sem fyrir fram
er ákveðið að menn fái punkta
fyrir ákveðna þætti, s.s. búsetu,
fyrri umsóknir, fjölskyldustærð
o.s.fr.v. Enn ein leið væri fær, en
hún væri sambland af einföldu
punktakerfi (t.a.m. kerfi sem
tæki tillit til 3ja til 4ra þátta), og
útdrætti. Þannig mætti nota
punktakerfið til þess að minnka
þann hóp sem eftir væri til út-
dráttar þegar fleiri sækja um
heldur en lóðir eru í boði.
Hvaða kerfi sem er valið,
verður að vera hægt að treysta
því að menn fái ekki úthlutað
gæðum á vegum bæjarins í
krafti nafns síns eða stöðu, og
þeir sem fá úthlutun að geta
treyst því að úthlutun þeim til
handa verði ekki gerð tortryggi-
leg vegna óvandaðra vinnu-
bragða bæjaryfirvalda.
Höfundur er formaður bæjar-
málaráðs Vinstri grænna í Kópa-
vogi.
13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR
Ætlar að
hækka um
15 cm
Árdísi
leiðist
að vera
dvergur
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 181. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2005
Bls. 31
Bls. 52-53
Bls. 42
Bls. 39
&
Konurnar
í lífi Clints
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR
Arnar
Gauti
Heiðrún Fitness-drottning:
Ástfangin
og til í
slaginn
Jón Ásgeir í breskum fjölmiðlumÁkærður fyrir að kaupa sér pylsu, Big Mac og Dolce Gabbana
Bls. 28-29
Bls. 8
Kemur í stað
Völu Matt
SJÁLFSTÆÐengum háð
SKILNAÐUR SKEKUR SAUTJÁN-VELDIÐSTARFSFÓLKIÐ VILL KAUPA
nældi í ofurfyrirsætu
Svava í 17
Bls. 18–20
Sa
m
se
tt
m
yn
d
Helgarbla›
Hefurflúsé›
DV í dag
Ætlar að
hækka um
15 cm
Árdísi
leiðist
að vera
dvergur
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 181. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
elgarblað
LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2005
Bls. 31
Bls. 52-53
Bls. 42
Bls. 39
Konurnar
í lífi Clints
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR
Arnar
Gauti
Heiðrún Fitness-drottning:
Ástfangin
og til í
slaginn
Jón Ásgeir í breskum fjölmiðlumÁkærður fyrir að kaupa sér pylsu, Big Mac og Dolce Gabbana
Bls. 28-29
Bls. 8
Kemur í stað
Völu Matt
SJÁLFSTÆÐengum háð
SKILNAÐUR SKEKUR SAUTJÁN-VELDIÐST FSF L I VILL AR Ó K Ð KAUPA
l i í f f i t
í
d o ur yr rs u
Bls. 18–20
Sa
m
se
tt
m
yn
d
Skilnaður
skekur
Sautján
veldið Starfs-
fólkið
vill
kaupa
„Blessuð sértu sveitin mín“
hljómar nú á ólíklegustu stöðum á
Akureyri. Hvarvetna þar sem
Benedikt Sigurðarson, stjórnar-
formaður KEA, sést á ferð má
heyra þetta þekkta lag. Ástæðan
er sú að nefndur Benedikt er með
lagið sem hringitón í gemsanum
sínum, og þessa dagana eiga
margir erindi við hann og far-
síminn hringir ótt og títt.
Sennilega aldrei verið fleiri,
og það er líka ástæðan fyrir
því að Benedikt er „maður
vikunnar“ að þessu sinni.
Benedikt komst í frétt-
irnar, þegar hann greindi
frá því að Andri Teitsson,
f r a m k v æ m d a s t j ó r i
KEA, hefði fallist á að
láta af störfum hjá fé-
laginu (NB:KEA er
ekki kaupfélag eins og
í gamla daga heldur
fjárfestingarfélag) í
stað þess að taka níu
mánaða fæðingarorlof
eins og hann á rétt á
lögum samkvæmt, en
Andri og kona hans
eignuðust nýlega tví-
bura. Þetta vakti mikið
uppnám og hneykslan,
því gagnvart fæðingaror-
lofi eiga víst allir að vera
jafnir, og skiptir þá engu
máli þótt forstjóri með
milljón á mánuði eða tvær
eigi í hlut og almannasjóðir
þurfi að greiða laun hans að
stórum hluta í orlofinu. Svo liðu
nokkrir dagar með reiðum álits-
gjöfum, og þá kom allt í einu sú
frétt að í rauninni hefði fram-
kvæmdastjóranum ekki verið
sagt upp vegna fæðingarorlofsins
heldur af því að hann hefði ekki
staðið sig nógu vel og ruglað sam-
an eigin hagsmunum og KEA í
einhverjum fjárfestingum. Þessu
hefur svo aftur verið mótmælt og
vita menn nú ekki lengur hvað er
rétt og hvað er rangt í þessu ein-
kennilega máli.
Eftir stendur að Benedikt
þykir hafa haldið klaufalega á sín-
um hlut og KEA fengið vonda
pressu. En klaufaskapur er þó
engan veginn einkenni hans að
sögn Akureyringa sem til hans
þekkja. Um Benedikt, sem yfir-
leitt er bara kallaður Bensi, er það
að segja að hann er gamall barna-
kennari. Eftir kennaranám og
framhaldsnám í Kanada var hann
í
nokkur ár skólastjóri Barnaskóla
Akureyrar, en er núna aðjunkt við
kennaradeild og viðskiptadeild
Háskólans á Akureyri. Hann er
sveitapiltur að upplagi, ættaður
frá Grænavatni í Mývatnssveit,
bróðir annars nafnkunns manns á
Akureyri, Erlings Sigurðarsonar.
Benedikt fær þá umsögn hjá bæj-
arbúum sem þekkja til að hann sé
heiðarlegur, stefnufastur, fylginn
sér. Sem stjórnandi þykir hann
fylgja vel eftir þeim málum sem
hann tekur að sér, jafnvel svo að
heyrst hefur kvörtun um að hann
sé farinn að anda ofan í háls-
málið á undirmönnum sín-
um. Barnakennarinn er
ríkur í honum. Kennara-
prikið aldrei langt und-
an. Hann þykir snöggur
upp á lagið og sagt er að
það geti stormað í
kringum hann, en kost-
urinn sé sá að hann
taki yfirleitt vel rökum
og reiðin renni fljótt af
honum. Hann er sagður
stjórnsamur, en sækist
ekki eftir völdum. Hann
vilji frekar koma mál-
um fram, heldur en að
drottna yfir rekstri og
framkvæmdum.
Benedikt er formað-
ur Sundsambands Ís-
lands, en hefur þó ekki
sjálfur safnað verðlauna-
gripum, heldur eru það kona
hans, Helga Sigurðardóttir,
og dæturnar, Þorgerður líf-
fræðingur og Sigrún
menntaskólanemi, sem all-
ar hafa staðið sig vel í þeirri
íþrótt. Sigrún er í unglinga-
landsliðinu. Benedikt stendur
frekar á laugarbakkanum og
hrópar hvatningarorðin. Hann
stundar hestamennsku og á
nokkra hesta. Heyrist hann
gjarnan taka lagið þegar riðið er
um nærsveitir Akureyrar, enda
góður söngmaður og fyrrum fé-
lagi í Kirkjukór Akureyrarkirkju.
Ekki er líklegt að Andramálið
hafi áhrif á stöðu Benedikts hjá
KEA. Fleiri en hann í stjórn fé-
lagsins voru ósáttir við fram-
kvæmdastjórann fyrrverandi.
Þegar fjölmiðlafárinu út af fæð-
ingarorlofinu linnir snúa KEA-
menn sér að því aftur að efla
norðlenska byggð, enda kjörorð
þeirra „Blessuð sértu sveitin
mín“. ■
MAÐUR VIKUNNAR
Me› kennaraprik á lofti
BENEDIKT SIGURÐARSON
STJÓRNARFORMAÐUR KEA
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
–
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Ló›aúthlutanir í Kópavogi
fia› er algerlega óflolandi a› gæ›-
um eins og ló›um, sé úthluta› eft-
ir fyrirkomulagi sem er jafn lo›i›
og raun ber vitni. fia› er jafn-
framt algerlega óvi›unandi a›
fleir einstaklingar sem fá úthluta›
ló›um flurfi í kjölfari› a› sitja
undir ásökunum í fjölmi›lum um
a› hafa noti› einhvers forgangs.
ÓLAFUR ÞÓR GUNNARSSON
SKRIFA UM LÓÐAMÁL