Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 1
Persónuleikaraskanir Njálu Jon Geir Høyersten hefur rannsakað geðheilsu Íslendinga fyrr á tímum og komist að ýmsu fróðlegu um persón- ur Njálu og persónu- leikaraskanir þeirra. ÍSLENDINGASÖGUR 28 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 +13 +9 +9 +11 Hæg norðaustlæg átt HÆGLÆTISVEÐUR Í DAG OG BJART SYÐRA en bætir í vind í nótt og fer að rigna í fyrramálið, með strekk- ingsvindi vestanlands en heldur hægari eystra. VEÐUR 4 LAUGARDAGUR 13. ágúst 2005 - 216. tölublað – 5. árgangur Ætla sér sigur á HM Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, stefnir á sigur á HM í Ungverja- landi sem hefst á þriðjudaginn. Þjálfarar og leikmenn liðsins segja liðinu allir vegir færir og að liðið hafi klárlega getu til þess að standa uppi sem sigurvegari á mótinu. Með kennaraprik á lofti Gamli barnaskóla- kennarinn Benedikt Sigurðsson er sagður heiðarleg- ur, stefnufastur og fylginn sér en fylgist kannski full vel með undir- mönnum sínum. MAÐUR VIKUNNAR 16 ÓLAFUR ELÍASSON Í MIÐJU BLAÐSINS ● bílar ● ferðir ▲ Nýtt kortatímabil Opið 10-18 í dag Hannar fyrir BMW Tekur upp Flags of Our Father ÓLAFUR GUÐNASON ▲ FÓLK 46 GAMAN AÐ SJÁ HVERNIG EASTWOOD VINNUR Fílefld í sporum valkyrjunnar CAROLINE DALTON ▲ MENNING 38 GÓÐ ÁHRIF Á MIG AÐ LEIKA STERKA KVENPERSÓNU Segja ekkert hlusta› á sk‡ringar sakborninga Fréttabla›i› birtir í dag ákærur í Baugsmálinu í 40 li›um ásamt athugasemdum sakborninga. Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson segja a› málatilbúna›urinn eigi sér pólitískar rætur eins og fram kemur í ítarlegum vi›tölum vi› flá bá›a. BAUGSMÁLIÐ Sakborningum í Baugs- málinu, einkum Jóni Ásgeir Jó- hannessyni, Jóhannesi Jónssyni og Tryggva Jónssyni, er gefið að sök fjárdráttur og umboðssvik auk þess sem þeir eru taldir brotlegir við lög um hlutafélög, bókhald, tolla og skatta. Brotin sem tengjast viðskiptum við Jón Gerald Sullen- berger og félagið Nordica teljast fjárdráttur í ákærunum en alvar- leg brot af slíkum toga ásamt al- varlegum umboðssvikum geta varðað allt að sex ára fangelsi. Jóni Ásgeiri, Jóhannesi og Tryggva er einnig gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá Baugi. Stærstu kærurnar um slík umboðssvik lúta að viðskiptum milli annars vegar Baugs og Gaums með Vöruveltuna – sem átti 10- 11 búðirnar – og hins vegar með hlutabréf í bresku verslunarkeðj- unni Arcadia. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, segir öll viðskipti milli Gaums, eignarhaldsfélags fjölskyldunnar, og Baugs hafa ver- ið þannig að Baugur hafi alltaf hagnast. „Við erum ekki að tala um hundruð milljóna, við erum að tala um milljarða. Enda hefur hvorki stjórn Baugs, endurskoðendur né hluthafar kvartað né gert athuga- semdir við viðskiptin.“ Fjömargir ákæruliðir tengjast viðskiptum, viðskiptareikningum og lánum milli Baugs og Jóns Ás- geirs auk persónulegra útgjalda hans og Tryggva Jónssonar. Jón Ás- geir segist saklaus og staðan á við- skiptareikningum hans gagnvart fé- laginu ævinlega verið Baugi í hag. Engu hafi verið stolið og enginn orð- ið fyrir tjóni af hans völdum. Jón Ásgeir og faðir hans Jóhann- es Jónsson telja Ríkislögreglustjóra hafa farið offari í rannsókn málsins og ekki tekið neitt tillit til skýringa sakborninga í málinu. Skoðanir Davíðs Oddssonar, fyrrverandi for- sætisráðherra, á forsvarsmönnum fyrirtækisins hafi skapað andrúm sem hafi ráðið miklu um hvernig að rannsókn var staðið. Fréttablaðið birtir í dag ákær- urnar í Baugsmálinu ásamt athuga- semdum sakborninga. Jafnframt eru í blaðinu ítarleg viðtöl við Jón Ásgeir og Jóhannes þar sem þeir greina frá sjónarmiðum sínum í Baugsmálinu. - jh / hh Sjá miðju blaðsins ÍÞRÓTTIR 34 BÆNAHALD Í ÁRMÚLA Rúmlega þrjátíu trúbræður leggjast á bæn í bænahúsi múslima í Ármúla. „Við erum ekki í neinu trúboði,“ segir Salmann Tamimi. „Reyndar lítum við á það sem hlutverk okkar að upplýsa Íslendinga um íslam en hver og einn verður svo að gera það sem hugur og hjarta segir honum. Um það bil hundrað Íslendingar hafa gerst múslimar og þeim fer fjölgandi.“ Félag múslima: Fjölmenni vi› bænahald FJÖLMENNING Öflugt félag músl- ima er starfrækt hér á landi með um það bil 350 skráða með- limi. Formaður þess Salmann Tamimi telur að tæplega þúsund múslimar séu búsettir hér á landi og þeim fari fjölgandi. Þeim Íslendingum fer einnig fjölgandi sem láta af kristinni trú og taka við þeirri íslömsku í staðinn. Á hverjum föstudegi koma trúbræður saman í bænahúsi fé- lagsins í Ármúlanum þar sem þeir leggjast á bæn og skrafa saman. Þótt víða um Evrópu hafi komið til togstreitu og átaka vegna sambýlis kristinna og múslima bera múslimar sem hér búa Íslendingum vel söguna og segja þá ekki fordómafulla í sinn garð. - jse/ sjá síðu 22 SRÍ LANKA, AP Friðarhorfur á Srí Lanka versnuðu enn þegar Laks- hman Kadirgamar utanríkisráð- herra var ráðinn af dögum í gær. Kadirgamar var skotinn til bana af leyniskyttum skömmu eftir að hann steig upp úr sundlaug við heimili sitt. Tvö skot hæfðu hann, annað í höfuðið og hitt í hjartað. Kadirgamar sem var náinn samstarfsmaður Chandrika Kum- aratunga var mjög gagnrýninn á Tamíl-Tígra og barðist fyrir því að samtökin yrðu bönnuð á heims- vísu sem hryðjuverkasamtök, sjálfur var Kadirgamar Tamíli. Talsmenn hersins telja Tamíl- Tígra hafa staðið að morðinu. Hagrup Haukland, sem hefur unnið að friðarmálum á Srí Lanka fyrir norsk stjórnvöld, sagði morðið mikið áfall fyrir friðarferlið í landinu óháð því hver stæði á bak við það. Hann sagði of snemmt að spá því að borgarastríð brytist út á ný. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, fordæmdi morðið það glæpsamlegt athæfi. Friðarhlé komst á í landinu árið 2002 fyrir milligöngu Norðmanna. Síðasta árið hefur ofbeldisverkum fjölgað eftir klofning í röðum Tamíl-Tígra. 65 þúsund manns létu lífið í tveggja áratuga löngu borgarastríði. - bþg Hætta á nýju borgarastríði eykst á Srí Lanka: Utanríkisrá›herrann rá›inn af dögum VEÐRIÐ Í DAG MIKIL ÖRYGGISGÆSLA Fjöldi hermanna tók sér stöðu við sjúkrahúsið sem Kadirgamar var fluttur á. Kumaratunga forseti vitjaði hans þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.