Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 28
Olía Reglulega þarf að fylla á olíuna á bílvélinni og ágætt að venja sig á að
athuga olína einu sinni í mánuði. Eftir því sem bíllinn er eldri, því oftar þarf
að skipta. Auk þess þarf að huga að því að fara með bílinn í smurningu
þegar við á og mun það lengja líftíma vélarinnar til muna.[ ]
Almennar bílaviðgerðir
Klæðningarlaust og klassískt
Ducati Monster-línan er hönnuð af Miguel Galluzzi. Nýjasta útfærsla Monster-hjólsins heitir
S2R og státar af ýmsum búnaði sem einkennir S4R-hjólið, öflugasta Monster-hjólið frá upphafi,
en það kom fyrst á markað í fyrra.
Klassískar línur Monster-hjólsins njóta sín vel í rauðu og hvítu og með vélina loftkælda
og bera.
Þegar Ducati kynnti fyrsta Mon-
ster-hjólið árið 1993 hætti fyrir-
tækið sér á ný mið. Í stað mála-
miðlunarlausu sporthjólanna, sem
höfðu skapað orðstír Ducati öðru
fremur og skilað mörgum knapan-
um til sigurs í kappakstri, var hér
komið götuhjól þar sem öllu var
sleppt nema því bráðnauðsynleg-
asta. Eftir hönnuðinum Miguel
Galluzzi er haft að hugsunin að
baki Monster-hjólinu hafi verið:
„Allt sem maður þarf er hnakkur,
tankur, vél, tvö hjól og stýri.“
Með þessu meistarastykki,
sem nú, rúmum áratug síðar, lítur
jafn ferskt en samt klassískt út,
skapaði Galluzzi sér orðstír sem
einn færasti mótorhjólaklæðskeri
heims. Bezti vitnisburðurinn um
gæði þessarar hönnunar hans er
hve margir mótorhjólaframleið-
endur hafa reynt að herma eftir
henni. Sú staðreynd, að enn í dag
sé Monster-línan mest seldu
Ducati-hjólin, er heldur ekki síðri
vitnisburður um hve vel tókst til
með hönnun þessa klæðningar-
lausa götuhjóls. Alls hafa um
150.000 Monster-hjól runnið út úr
smiðju Ducati á þessum rúma ára-
tug.
Nýjasta útfærsla Monster-
hjólsins ber nafnbótina S2R, og
státar af ýmsum búnaði sem ann-
ars einkennir S4R-hjólið, öflug-
asta Monster-hjólið frá upphafi,
en það kom fyrst á markað í fyrra.
Blaðamanni bauðst að reynsluaka
báðum þessum hjólum á dögun-
um.
Í S2R-hjólinu eru hestöflin 77,
en það eru líka mun betur „nýtan-
leg“ hestöfl, það sýndi reynslu-
aksturinn ótvírætt. Strax og setzt
er á S2R-hjólið finnst hvað það er
létt og meðfærilegt, og þegar tek-
ið er af stað ýtir karakter vélar-
innar enn undir þessa tilfinningu.
Sé snúningnum haldið yfir 3.000
er vinnslan í henni svo góð og
svarar svo vel minnstu hreyfingu
inngjafarinnar, að maður á bágt
með að ímynda sér að maður hafi
við nokkuð meira að gera. Auk
þess nýtur maður einkennandi
tveggja strokka bassa-urrsins
sem vélin gefur frá sér; vélar-
hljóðið er ótvírætt talsverður
hluti akstursánægjunnar. Létt og
nákvæm kúplingin og skiptingin
og mátulega bitmiklar bremsurn-
ar fullkomna síðan akstursánægj-
una. Fyrsti gírinn er reyndar
áberandi hár. Og lappalangir
Monster-knapar verða að venjast
því að keyra með hnén krepptari
en þægilegast væri. Ásetan er
annars tiltölulega afslöppuð-upp-
rétt, þó maður halli talsvert fram
á stýrið að sportlegum Ducati-
hætti. Fjöðrunin er líka að
Ducati-hætti sportlega stíf. Á
S2R-hjólinu er hún aðeins stillan-
leg að aftan. Eins og gefur að
skilja er vindvörnin ekki mikil á
klæðningarlausu hjóli, en það
munar þó ótvírætt um litlu mæla-
borðshlífina.
Þegar skipt er beint af S2R-inu
yfir á S4R-hjólið er áberandi hvað
það síðarnefnda er allt þyngra og
„harðara“ ñ kúplingin er miklu
stífari og bremsurnar taka fastar
í. Og þegar gírað er niður á hjóli
með svona miklum sleggjumótor
saknar maður „anti-hopping“-kúp-
lingarinnar, sem S2R-ið státar af.
Mótorbremsan getur nefnilega
tekið hressilega í keðjuna. Upp-
takið er slíkt að maður þarf að
passa að vera ekki síprjónandi.
Hjól fyrir lengra komna.
Verðið á hjólum í Monster-lín-
unni byrjar í rétt tæpri milljón
(M620 Dark). Toppurinn, S4R-ið,
kostar 1.636.000 kr. Sem gerir
verðið á S2R-hjólinu áhugavert,
en það er um 450.000 kr. lægra en
á „stóra bróður“.
audunn@frettabladid.is
DUCATI MONSTER S2R
Vél: L-2, loftkæld, rúmtak 803 ccm.
Afl: 77 hö (57 kW) v. 8.250 sn./mín.
Tog: 73 Nm v. 6.500 sn./mín.
Drif: sex gíra kassi, keðja.
Stell: Stálröragrindarrammi.
Fjöðrun: Hvolfgaffall framan (43mm),
einarmur og miðlæg fjöðrunareining
aftan.
Þyngd: 173 kg (þurrvigt)
Verð: 1.185.000 kr.
Umboð: www.ducati.is
DUCATI MONSTER S4R
Vél: L-2, vatnskæld, rúmtak 996 ccm.
Afl: 117 hö (86,1 kW) v. 8.750 sn./mín.
Tog: 99 Nm v. 7.000 sn./mín.
Þyngd: 193 kg.
Verð: 1.636.000 kr.
REYNSLUAKSTUR
„Stóri bróðir“ S4R. Útlitstruflandi vatns-
kassinn og tilheyrandi slönguskógur gefa
sleggjuaflið til kynna.
Sams konar ál-einarmur heldur afturhjól-
inu bæði á S2R og S4R.
Annað einkenni er 2-í-1-í-2-pústið. Kút-
arnir liggja hátt og þétt upp að hjólinu.
Stór kringlótt framluktin er mikilvægur
hluti sígilds útlits.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
LJ
Ó
SM
. E
.Ó
L.