Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 13.08.2005, Blaðsíða 64
Breiðasta skilgreiningin á„slashi“ er að það fjallar umtvo einstaklinga af sama kyni í rómantísku samhengi, oft með grafískum kynlífslýsingum en ekkert endilega alltaf. Tökum sem dæmi Hringadróttinssögu. Áður en myndirnar komu út var Legolas / Gimle stærsta slash- parið sem skrifað var um. Svo komu myndirnar út. Allir þessir menn eru svo ofsalega fallegir og myndarlegir og konur eru ofsalega hrifnar af þeim og þá varð Legolas / Aragorn miklu vinsælla af því að þeir eru svo flottir saman,“ segir Nína (nafni hefur verið breytt). Nína vinnur á skrifstofu úti á landi í sumar en heldur áfram há- skólanámi í haust. Hún kynntist Harry Potter-heiminum á netinu sumarið 2001 þegar samstarfs- kona hennar á bókasafni benti henni á stóra Harry Potter-síðu. Síðan þá hefur hún komið sér vel fyrir í “fandominu“, aðdáenda- heiminum. „Fandom“ er í rauninni bara samfélag í kringum sameigin- legt áhugamál á þessu efni sem er gefið út af einhverjum öðrum. Maður talar um að maður sé í fandominu. Til dæmis er til Lord of the rings fandom og Harry Pott- er fandom. Allir sem hafa áhuga á Harry Potter, setja upp heimasíður um Harry Potter, gera sögur um hann eða teikna myndir, þeir eru í fandominu,“ segir Nína, en engin hefð er fyrir því að nota íslenskt orð fyrir hugtakið. Slash um Jesús og Jóhannes „Ég reyndi alltaf að búa til sögur í höfðinu á mér þegar ég var búin að horfa á eitthvað eða lesa eitt- hvað sem mér fannst alveg rosa- lega gott. Bjó til mínar eigin sögur og minn eigin endi. Ég hélt alltaf að ég væri bara klikkuð en svo komst ég að því að það er helling- ur af fólki sem gerir þetta,“ segir hún. Fyrst í stað sökkti Nína sér í sögur á netinu. „Mér fannst slas- hið alveg fáránlegt til að byrja með! Alveg út í hött,“ segir Nína. Svo las hún góða sögu eftir vin- konu sína og komst á bragðið, tók sér höfundarnafnið Miss Pince, eftir bókaverðinum Madame Pince í Hogwarts, og fór að setja eigin sögur á spjallþráðum netsins. Aðaláhugamálið hennar er Harry Potter en hún er einnig í RPS-fandominu, sem stendur fyrir „real people slash“ og fjallar um leikarana í þekktum bíómynd- um, bókmenntum eða hljómsveit- um. „Real people slash byrjaði í kringum boy-böndin, sérstaklega Nsync. Það var rosalega stór hóp- ur af stelpum sem skrifuðu væmn- ar ástarsögur af JC og Justin,“ segir Nína. Í dag eiga leikararnir í Lord of the Rings og Pirates of the Caribbean miklu fylgi að fagna. Skilgreiningin á slashi er eitt- hvað á reiki því sumir vilja meina að hugtakið nái bara yfir tvo karl- menn og nota þá hugtakið “fem slash“ til að lýsa sögum um tvær stelpur. “Het“ (heterosexual) kall- ast sögur um gagnkynhneigt fólk og “gen“ (general) eru sögur sem innihalda engin ástarsambönd. Allt er þetta hluti af “fanfiction“, skáldskap sem er skrifaður um persónur eða leikara í bókum eða bíómyndum. Á Íslandi hefur orðið áhugaspuni stundum verið notað fyrir fanfiction. „Áhugaspuni er eldgamalt fyrirbæri sem held ég að hafi fyrst komið fram í kring- um 1930. Þá var þetta gefið út í tímaritum. Áhugaspuni varð ekki svona stórt fyrirbæri, svona stórt batterí, fyrr en í kringum 1970 þegar Star Trek kom til sögunn- ar,“ segir Nína. Fyrsta slashið var skrifað í kjölfar útgáfu Star Trek-mynd- anna og með tilkomu internetsins varð sprenging í slash-skrifum. Aðdáendur ýmissa bóka og bíó- mynda gátu nú rottað sig saman á netinu og deilt hugmyndum sínum um framhaldslíf aðalpersónanna eða ástarsögur aukapersóna sem aldrei birtust í bókunum sjálfum. „Það er til fanfiction fyrir nokkurn veginn allt. Bara nefndu það, það er til. Ég hef lesið biblíu- fanfiction. Ég hef lesið biblíu- slash. Sambandið á milli Jesúsar og Jóhannesar... Það er mjög vina- legt! Það er líka til alveg hellingur af Shakespeare slashi. Lord of the Rings fandomið er það stærsta og elsta.“ Gagnkynhneigðar konur skrifa um ástarsambönd karla Slash-lesendur og höfundar eru í miklum meirihluta konur. „Þetta eru 95 prósent konur, flestar gagnkynhneigðar eða tvíkyn- hneigðar,“ segir Nína. „Hefurðu einhvern tímann pælt í því að karlmönnum finnst rosalega æsandi að sjá tvær konur saman? Af hverju er þetta tabú? Ef ein kona er „hot“ þá hljóta tvær kon- ur að vera tvisvar sinnum meira „hot“. Af hverju má þetta ekki eiga við um tvo karlmenn líka? Þetta er mín skoðun á þessu. Mér finnst þetta alltaf liggja beint við; ef einn er „hot“ eru tveir betri og síðan kannski þrír, fjórir, fimm. Ég held líka að þetta sé svolítið feminískt mál. Konur eru ekkert öðruvísi en karlmenn. Það er bara einhver viðtekin skoðun í þjóðfé- laginu að konur séu eitthvað öðru- vísi. Mikið af ungum konum í dag finnst bara ekkert nóg að horfa á rómantískar gamanmyndir. Kon- ur eru að verða miklu meðvitaðri um klám, þær sækja meira í það að vita eitthvað um klám, að horfa á klám. Svo er ekkert óeðlilegt að sumt af slashinu sé gróft. Þetta er bara sami skali og í bíómyndum; það eru til drama-myndir, það eru til rómantískar gamanmyndir,“ segir hún. Nína hefur skrifað sögur á öll- um skalanum, bæði het, gen og slash-sögur. Sú hefð hefur skapast í áhugaspunaheiminum að taka fram í byrjun hverrar sögu hversu gróf hún er. Til þess er notað bandaríska bíómyndakerf- ið. „Ef það eru tveir karlar að kyssast þá er það alltaf hærra heldur en PG 13. Allt slash er PG13, af því að í bandaríska kerf- inu er það tabú. Það þykir kurteisi að nota frekar hátt frekar en lágt,“ segir Nína. Einnig er tekið fram hvaða par sagan er um, t.d. Remus / Sirius, en slash er einmitt enska orðið fyrir greinarmerkið / sem notað er í parinu. „Eftir þessu koma yfirleitt aðvaranir. Það eru til alls konar kinks-sögur, bonda- ge, BDSM, non-consentual, sem er eiginlega nauðgun, þetta er allt merkt þannig að þú þarft ekki að lesa söguna ef þú vilt það ekki. Í Harry Potter til dæmis er kennari stundum látinn sofa hjá einhverj- um af nemendunum. Nemendurn- ir eru yfirleitt hafðir frekar gaml- ir, en þetta truflar rosalega mikið af fólki svo almennt er mikið var- að við þessu,“ segir Nína. Af hverju að nota persónur úr verkum annarra? „Þú ert að halda áfram með ævin- týrin. Það eru virkilega áhuga- verðir aukakarakterar í mikið af þessum bókum, sem fólk er í rauninni að gefa nýtt líf,“ segir Nína um það hvers vegna áhuga- spuni er svona vinsæll. „Margir spyrja mig af hverju ég skrifi ekki eitthvað „original“. Og ég segi alltaf; ég skrifa eigin smásög- ur en þær eru velfaldar, ég hef aldrei póstað þær. Ég er bara að bíða eftir hugmynd. Þangað til mun allt sem ég skrifa hjálpa mér þegar ég fer að skrifa eigin verk. Málið við fanfiction er að þú færð svo mikið „instant feedback“. Ef þú ert að skrifa sögu fyrir sjálfan þig, sögu sem þú hefur hugsað þér að gefa út í bók, þá skrifarðu sög- una og sendir hana svo til rit- stjóra. Svo er líka bara ánægja af því að búa eitthvað til. Það er ögrun í því að skrifa sögu og nota persónur sem kannski ekki allir sjá fyrir sér saman,“ segir hún. Nína segir að ævintýrasögur á borð við Harry Potter og Lord of the Rings séu vinsælasta við- fangsefnið í áhugaspuna því að ævintýraheimurinn er óraunveru- legur og býður upp á fleiri mögu- leika. „Heimurinn er tilbúinn. Fólk er að búa til sína eigin kar- aktera og stinga þeim inn í heim- inn. Það er mikið skrifað um fólk sem er ekki á sama tíma og Harry í skólanum, um kynslóðina sem foreldrarnir hans voru í. Það er mjög auðvelt að skrifa um pabba hans og vini hans. Það eru skrifað- ar sögur um kynslóð Voldemort og framtíðarsögur sem eru algjör- lega uppspunnar. Um börn sem gætu komið í heiminn.“ Quarashi slash bannað börnum Nína lenti í óvenjulegri stöðu í ársbyrjun þegar hún var beðin 32 13. ágúst 2005 LAUGARDAGUR Interneti› hefur a› geyma flúsundir af sögum sem fjalla um ástarsambönd milli karlpersónanna í Harry Potter og Lord of the Rings. Fyrirbæri›, sem heitir slash, blómstrar um flessar mundir bæ›i hérlendis og erlendis. Rósa Sign‡ Gísladóttir hitti íslenskan „slash“-höfund og forvitna›ist um hvers vegna gagnkynhneig›ar konur skrifa um ástarsambönd karla. ORÐAFORÐI Í ÁHUGASPUNA FANDOM Samfélag fólks í kringum sameiginlegt áhugamál. Til dæmis tilheyra þeir sem skrifa og lesa Harry Potter-sögur á netinu Harry Potter fandominu. HET Stytting á heterosexual. Fanfict- ion-sögur um sambönd gagnkyn- hneigðra. GEN Stytting á general. Sögur sem innihalda ekki ástarsögu. SLASH Sögur um ástarsambönd milli karls og karls eða konu og konu. FEM Slash-sögur um ástarsambönd milli tveggja kvenna. SMUT Kynlífssena eða saga sem er lítið annað en kynlífssena/senur. REC/RECCARI/AÐ RECCA Stytting á recommendation. Reccarar eru mik- ilsmetnir í fandomum því þeir búa til lista yfir sögur sem þeir mæla með. WORKSAFE/NOT WORKSAFE Not worksafe þýðir að ekki sé hægt að skoða síðuna í vinnunni, því augljóst er að efnið er ekki vinnutengt (til dæmis vegna klámfengra mynda). AÐ SHIPPA Dregið af orðinu relationship. Að shippa er að styðja eða vera hlynntur einhverju ákveðnu sambandi eða pari. Harry Potter fandomið skiptist til dæmis í tvo hópa: Einn hópurinn shippar Ron og Hermione en hinn Harry og Hermione. RPS Real people slash-sögur fjalla um raunverulegt fólk, oft fræga leik- ara eða tónlistarmenn. Alltaf er tek- ið fram í byrjun RPS-sögu að höf- undurinn þekki ekki viðkomandi og að sagan sé uppspuni. LOTRPS Lord of the Rings real people slash fjallar um leikarana í Lord of the Rings. Þetta er mjög vin- sælt fandom. BNF Big name fan. BNF er einhver sem mjög stór hluti af fandominu þekkir og hefur annað hvort skrifað sögur sem eru mjög vinsælar eða teiknað myndir. Stærsta BNFið í Harry Potter fandominu heitir Cassandra Claire en hún skrifaði sögur sem heita The Draco Trilogy. MERKINGAR Á SÖGUM G Hentar öllum aldurshópum. PG Koss milli konu og karls í sög- unni. PG13 Sagan er aðeins grófari, eða hún inniheldur kossi milli karla. Allt slash er PG13 eða hærra. R Frekar gróf saga. NC-17 Bönnuð innan 16 á Íslandi. HARRY POTTER VINSÆLASTA „FANDOMIГ „Ég fór til London alveg sérstaklega til þess að kaupa bókina þar þegar hún kom út og hitta vinkonu mína úr fandominu. Ég var í stóru biðröðinni á Oxford Street og hitti þar stelpu sem heitir Melissa. Hún tók aðalvið- talið við Rowling þegar bókin kom út. Ég hitti líka vinkonu mína frá Portúgal sem er einn þekktasti myndskreytir í Harry Potter-fandominu og sennilega einn þekktasti persónuleiki í því. Hún teiknar myndir út frá bókunum, það er kallað fanart. Ég er alveg viss um það að ef ég hefði ljóstrað því upp í röðinni í London hver stæði þarna við hliðina á mér hefði orðið smá uppþot,“ segir Nína. VIGGO MORTENSEN OG ORLANDO BLOOM Kapparnir úr Lord of the Rings eru eitt vinsælasta Real people slash-parið, enda bráðmyndarlegir. SÖLVI, TINY OG ÓMAR Í QUARASHI Ómar og Tiny eiga í eldheitu ástarsambandi í einni af sögum Nínu, sem hún skrifaði að beiðni Péturs í Nexus og lesin var í þrítugsafmæli Ómars. Ómar og Tiny segjast með naumindum hafa komist í gegnum söguna sem er fimm blaðsíð- ur og inniheldur nokkuð grófar kynlífslýsingar. NÍNA, AKA MISS PINCE „Ég er ekkert þekkt í fandominu en ég er með slatta af BNFum á friends-listanum mínum á blogg- inu. Þannig séð er ég komin í innsta hringinn. Ég er oldbie svokallaður, er búin að vera lengi í fandom- inu, frá því árið 2001. Ég hef „moderatað“ á síðunni Sug- arquill, það er að segja stýrt spjallborði. Þá þarf einhver sem er ábyrgur að lesa spjallið, passa upp á að enginn móðgist og eyða svoleiðis póst- um. Þetta gerir mig sjálfkrafa að oldbie og tengir mig stóra fólkinu í fandominu,“ segir Nína. Harry Potter nýtur ásta með Draco Malfoy
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.