Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 80

Fréttablaðið - 13.08.2005, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ÍSKALDUR EINN LÉTTUR Málum bæinn RAUÐAN! SVENNING skrifstofustóll 2.950,- Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is Skóladagar 50 02 .V .B s met sy S AEKI re tn I © MIKAEL hornvinnustöð eik 5.950,- 290,- Barnakjötbollur TERTIAL vinnulampi 590,- ROBIN tölvuborð blátt SNAJDA vekjaraklukka 75,- 590,- 190,- DIDRIK tölvuhirsla 1.290,- LINGO BLOMMA tímaritahirslur 5 stk. 250,- MACKIS ritfangahirsla FNISS ruslafata 890,- 14.900,- 110x60 sm KASSET kassi með loki ýmsir litir 890,-37x29x17 sm 120x120x166 sm 34x16x17 sm Græjur fyrir góða námsmenn.Hringur Mér telst svo til að þeir séu orðniræði margir í gegnum tíðina sem hafa freistað þess að safna fjársumm- um til góðra málefna með því að fara hringinn í kringum landið á alls konar mismunandi vegu. Reynir Pétur gekk, annar bakkaði bíl sínum hér um árið og bara núna í sumar hefur einn hjólað, annar róið, tveir – annar haltur og hinn blindur – gengið og gott ef einhver sýndi ekki tilburði til þess að synda hringinn, sem yrði nýbreytni. ÉG segir bara Guði sé lof, út af öll- um söfnunum til líknarmála, að land- ið skuli vera hringur. Lítum bara á land eins og Chile sem er eiginlega bara ein strandlengja og langur fjall- garður niður eftir vestanverðri Suð- ur-Ameríku. Ekki safna menn miklu þar með því að ganga í hring. Hvað hring? Landið er strik og ef menn ætla að safna þar einhverju þurfa menn að byrja á einum stað og enda annars staðar, sem er ekki næstum því eins flott og hér, eða ganga fram og til baka, sem er frekar bjánalegt. ÞETTA er auðvitað hið besta mál og gaman að alltaf skuli vera hægt að grípa til hringsins til þess að safna fé, en ég hef samt örlitlar áhyggjur af því – þótt ekki missi ég svefn af þeim sökum – að þessar hringferðir allar í þágu góðra mál- efna lýsi fremur bágu ímyndunarafli þjóðarinnar þegar kemur að söfn- unarátökum. Steingrímur J. Sigfús- son fær prik fyrir að hafa brotið þetta mynstur upp göngulega séð, en hann gekk þvert yfir landið á dög- unum, frá Reykjanestá að Langanesi, og þótt svo Steingrímur hafi ekki safnað neinu fé í þágu eins eða neins á þessari göngu, að þá getur samt verið að þessi nýja gönguleið kveiki hugmyndir hjá öðrum um að hægt sé að safna fé öðruvísi en að ganga í hring. EN auðvitað, ef menn ætla að ganga þvert yfir, þá verða menn að gæta þess að vera með far til baka, því ekki viljum við að allir helstu hug- sjónamenn þjóðarinnar og velgjörð- armenn líknarsamtaka verði strandaglópar á Langanesi til þess eins að þurfa síðan aðstoð líknar- samtaka sjálfir um lengri eða skemmri hríð út af vosbúð. Í ANNAN stað er ég alveg viss um að lögreglan er hæstánægð með þennan almenna skort á ímyndunar- afli, því samkvæmt nýjustu tíðind- um er augljóst að lögreglan vill helst ekki að menn fari mikið út fyr- ir hringinn þegar kemur að því sýna borgaralega virkni. Vissulega er söfnun til líknarmála eitt og mót- mæli annað, en bæði er þó dæmi um það að almennir borgarar láti til sín taka, í sér heyra, og freisti þess að vekja fólk til umhugsunar og jafn- vel stuðla að breyttu samfélagi. EKKI verður betur séð, samkvæmt lögreglunni, en að mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar ættu líka að halda sig við það að ganga, hjóla, synda eða keyra hringinn afturábak til þess að vekja athygli á málstað sínum og láta þar við sitja. Þeim sem fara út fyrir hringinn er veitt eftirför af lögreglu og ef þeir eru útlenskir er þeim helst vísað úr landi. Dálítið eins og í Chile einu sinni, þó svo Chile sé reyndar strik, eins og áður kom fram, en Ísland hringur. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.