Fréttablaðið - 30.09.2005, Page 29
3FÖSTUDAGUR 30. september 2005
Fjölskyldudagur
Laugardag 1.okt
Eigið skemmtilegan dag saman
og fáið fjölskylduafslátt.
Opið 13-18.
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Keramik fyrir alla
Lokað í dag
vegna útfarar
Unnar Grétu Ketilsdóttur
GULLBRÁ, Nóatún 17 s. 562-4217
Bílauppbo› hjá Vöku
Úrvalið af uppboðsbílum er margvíslegt.
Laugardaginn 1. október verður
haldið bílauppboð hjá Vöku að Elds-
höfða 4. Uppboðið hefst stundvís-
lega klukkan 13.30. Uppboð sem
þessi eru haldin í um níu skipti á ári
og á haustin er reynt að halda þau
fyrsta laugardag í hverjum mánuði.
Úrvalið á uppboðsbílum er marg-
víslegt. „Þetta eru alls konar bílar
sem eru seldir á nauðungaruppboði
vegna skulda eða fjárnáms. Einnig
bjóðum við upp bíla sem er ekki
vitjað,“ segir Bjarni Ingólfsson hjá
Vöku. Bílarnir eru mismikið notað-
ir, sumir þeirra eru sama sem
ekkert keyrðir. „Fólk bara mætir á
staðinn og býður í bílana. Það er
ekkert lágmarksboð, þetta byrjar
einhvers staðar og endar einhvers
staðar. Svo má greiða með pening-
um eða korti hjá sýslumannsemb-
ættinu,“ segir Bjarni og nefnir að
oft verði mikið fjör í kringum upp-
boðin. Á síðasta uppboði voru boðn-
ir upp um 40 bílar en endanlegur
fjöldi bíla á uppboði ræðst mjög
seint þar sem eigendur koma oft á
síðustu stundu til að sækja þá.
Starfsfólk Vöku stefnir svo að því
að gera upplýsingar um þessi upp-
boð aðgengileg á netinu og þá er
hægt að skoða uppboðslistann sama
dag og uppboðið er. „Fólk hefur
gert ágætiskaup á þessum uppboð-
um,“ segir Bjarni. ■
Bílauppboðið fer fram hjá
Vöku, Eldshöfða 14.
Góð kaup
fyrir heimilið
LAGERSÖLUNNI HJÁ MÍRA ART
HÚSGÖGNUM LÝKUR Í DAG.
Nú fer hver að verða síðastur að
næla sér í ódýr húsgögn á lagersöl-
unni hjá Míra Art húsgögnum. Lag-
ersalan hefur staðið frá því á mið-
vikudag en henni lýkur kl. 18 í dag.
Á lagersölunni má fá ný og vönduð
húsgögn sem eru örlítið útlitsgölluð
og einnig er mikið úrval af eldri
vörum sem ekkert er að.
Valdís Árnadóttir, starfsmaður hjá
Míru, segir að úrvalið sé gott og
hægt sé að gera virkilega góð kaup.
„Vörurnar eru búnar að rjúka út hjá
okkur en við eigum ennþá nóg
eftir. Við erum til dæmis með tölu-
vert af stökum sófum, til dæmis
góðum svefnsófum og svo er mikið
úrval af smávöru sem ekkert er að.
Þetta eru til dæmis vínrekkar, lamp-
ar, púðar og teppi svo fátt eitt sé
nefnt. Hér má fá gott rúmteppi á
2.000 krónur og púða á 1.000 kall,“
segir Valdís.
Lagersalan er til húsa að Bæjarlind
4 í Kópavogi, þar sem Art húsgögn
voru áður.
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »