Fréttablaðið - 30.09.2005, Side 54
Börn að leik í haustlegri Reykjavík. / Ljósmynd: Vilhelm
SJÓNARHORN
SVIPMYND
SKEMMTILEGAST - LEIÐINLEGAST
Guðný Dóra er safnvörður á Gljúfrasteini, heimili Halldórs og Auðar Laxness.
Hún fékk yfir sig tvær sígildar spurningar:
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Mmm... mér finnst skemmtilegast að vera með góðu og skemmtilegu fólki.
En leiðinlegast?
Ég held mér þyki leiðinlegast að vaska upp!
Guðný Dóra Gestsdóttir
30. september 2005 FÖSTUDAGUR 12
Vissir þú ...
... að 76 ára gömul kona sat föst í lyftu
í fjölbýlishúsi sínu í sex daga frá 28.
desember 1987 til 2. janúar árið 1988?
... að stærsta gljúfur sólkerfisins er Val-
les Marineris á reikistjörnunni Mars,
það er 4.500 kílómetra langt, 600 kíló-
metra breitt og allt að 7 kílómetra
djúpt?
... að það tekur jörðina 23 klukku-
stundir, 56 mínútur og fjórar sekúndur
að snúast einn hring en það tekur
Venus 243,16 jarðardaga að snúast
einn hring?
... að árið á Venus stendur aðeins í
224,7 daga?
... að Venus snýst andsælis miðað við
helstu aðrar reikistjörnur og Úranus
snýst á hlið?
Allt um bíla
á laugardögum í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
R
E
28
04
9
0
4/
20
05
Ólafsfjörður: Kaupstaður við samnefndan fjörð sem gengur inn úr Eyjafirði.
Upphafið: Föst búseta hófst í Ólafsfjarðarhorni skömmu fyrir aldamótin 1900
þar sem kaupstaðurinn stendur nú en staðurinn varð löggiltur verslunarstaður
árið 1905.
Sérkenni: Ólafsfjarðarmúli er sæbratt fjall milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur og
utan í honum var vegur í um 230 m hæð en nú hafa jarðgöng leyst veginn af
hólmi.
Sorgarsaga: Í Sýrlandsvogum vestan Ólafsfjarðar varð sjóslys 1783 er ellefu
menn af þremur eyfirskum bátum drukknuðu en sex björguðust illa þrekaðir
eftir að hafa legið fimm sólarhringa sjóblautir í hríðarveðri og kulda og nærst
eingöngu á fjörukáli.
Hlunnindi: Heitar lindir eru tæpa fjóra kílómetra frá kaupstaðnum og hitaveita
hefur verið í Ólafsfirði síðan 1944.
Hæfileikafólk: Hjónin á Syðri-Á í Ólafsfirði, Jón Árnason og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, voru máttarstólpar í menningarlífi Ólafsfirðinga og Jón stofnaði
hljómsveitina South river band.
Íbúatala nú: 979 um síðustu áramót.
Mannfagnaður: Berjadagar eru árleg tónlistarhátíð í Ólafsfirði.
Gott að vita: Félagsmiðstöðin í Ólafsfirði heitir Tunglið.