Fréttablaðið - 30.09.2005, Síða 68
30. september 2005 FÖSTUDAGUR
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Lau 1/10 kl. 14, Sun 2/10 kl. 14,
Sun 9/10 kl. 14, Sun 16/10 kl. 14
WOYZECK - 5 FORSÝNINGAR
Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt.
Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000,-
Í kvöld 30/9 kl. 20 UPPSELT, Lau 1/10 kl.
20 (sýning á ensku), Fi 27/10 kl. 20.HÍBÝLI
VINDANNA
HÍBÝLI VINDANNA
Örfáar aukasýningar í haust
Su 2/10 kl. 20, fö 7/10 kl. 20, Su 16/10 kl. 20
SALKA VALKA
fim 15/10 FRUMSÝNING UPPSELT
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
FORÐIST OKKUR
– NEMENDALEIKHÚSIÐ/COMMON NONSENSE
Höf. Hugleikur Dagsson
Í kvöld Frumsýning UPPSELT
Lau 1/10 kl. 20 UPPSELT
Su 2/10 kl. 20
MANNTAFL
Su 2/10 kl. 20, Fö 7/10 kl. 20, Fö 14/10 kl. 20,
RILLJANT
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau 1/10 kl. 16 aukasýn., Lau 1/10 kl. 20 UPPSELT,
Fi 6/10 kl. 20 UPPSELT, Lau 8/10 kl. 16 Aukasýn
Lau 8/10 kl. 20 UPPSELT, Su 9/10 kl. 20 UPPSELT,
Sun 16/10 kl. 20 AUKASÝNING
BELGÍSKA KONGÓ
Sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
Fö 31/9 kl. 20, Lau 1/10 kl. 20
LÍFSINS TRÉ
Fö 21/10 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 22/10 kl. 20, Fi 27/10 kl. 20
Sími miðasölu 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
TVENNU TILBOÐ
Ef keyptur er miði á
Híbýli vindanna og Lífsins tré
fæst sérstakur afsláttur
5. sýn fös. 31 kl. 20 Örfá sæti
6. sýn lau 1. okt kl. 20 Örfá sæti
7. sýn fös 7 okt Nokkur sæti
8. sýn lau 8 okt UPPSELT
9. sýn fös 14 okt
10. sýn lau 15 okt
11. sýn fös 21 okt
12. sýn lau 22 okt
HAFNARFJARÐAR
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Lada Sport og Johnny Poo
troða upp í Gallerí Humar eða frægð
að Laugavegi 59 þar sem Smekk-
leysa plötubúð er einnig til húsa.
20.30 Á Hótel Sögu verður efnt til
Guðmundarvöku í tilefni af þrjátíu
ára afmæli Jazzvakningar. Bandaríski
píanóleikarinn Jon Weber og hol-
lenski píanóleikarinn Hans Kwakk-
ernaat leika lög Guðmundar Ing-
ólfssonar ásamt Birni Thoroddsen
á gítar, Gunnari Hrafnssyni á bassa
og Guðmundi Steingrímssyni á
trommur. Danski píanóleikarinn
Arne Forchhammer kemur einnig
fram í tilefni hljómdisks sem kemur
út um þessar mundir.
22.30 M & M kvartettinn leikur
djass á Kaffi Reykjavík og fær til sín
þrjá gesti. Fram koma Róbert Þór-
hallsson á bassa, Kjartan Valde-
marsson á píanó, Ásgeir J. Ásgeirs-
son á gítar, Ólafur Hólm á trommur,
Kjartan Guðnason á slagverk og
söngvararnir Kristjana Stefánsdóttir
og Gísli Magnason.
23.00 Hljómsveitirnar Nilfisk,
Touch og The Foghorns halda tón-
leika á Grand Rokki.
Köntrísveit Baggalúts blæs til
sveitasöngvamessu í Stúdentakjallar-
anum við Hringbraut. Leikin verða
sönglög af hljómdisknum Pabbi þarf
að vinna, í bland við sígilda sveita-
söngva bandaríska.
Brain police spilar í Sjallanum á Ak-
ureyri ásamt sænsku hljómsveitinni
Subsonic Mind og norsku hljóm-
sveitinni Zensor.
Kvaratettinn Rodent spilar á djasshá-
tíð á Kaffi Reykjavík. Kvartettinn skipa
þeir Haukur Gröndal á altó sax,
Jakko Hakala á trompet, Lars Thor-
mod Jenset á bassa og Helgi Svav-
ar Helgason á trommur.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Einleikurinn Ég er mín eigin
kona eftir Doug Wright verður frum-
sýndur í Iðnó í flutningi Hilmis Snæs
Guðnasonar.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Hljómsveitin Upplyfting
verður með dansleik á Kringlukránni.
Danshljómsveit Friðjóns skemmtir í
Vélsmiðjunni á Akureyri.
Garðar Garðars spilar á Catalinu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Vi›bur›arík ævi klæ›skiptings
„Þetta er svo falleg saga og hún er
byggð á raunverulegum atburð-
um,“ segir Hilmir Snær Guðnason
um einleikinn Ég er mín eigin
kona, sem hann frumsýnir í Iðnó í
kvöld.
Leikritið fjallar um Charlotte
von Mahlsdorf, klæðskipting sem
fæddist í Berlín árið 1926 og og
hét upphaflega Lothar Berfelde,
en ákvað snemma á lífsleiðinni að
lifa sínu lífi sem kona.
„Hann fer í gegnum bæði nas-
ismann og kommúnismann á
háum hælum,“ segir Hilmir Snær.
„Hann bjó í Austur-Berlín þangað
til undir lokin að hann fluttist til
Svíþjóðar. Sumir segja að hann
hafi hrakist þangað, en hann vildi
nú ekki viðurkenna það.“
Charlotte von Mahlsdorf lést
árið 2002 þegar hann var í stuttri
heimsókn til vina sinna í Berlín.
Ævi hans var vægast sagt við-
burðarík og alveg á mörkunum að
hægt sé að koma því öllu að á
einni kvöldstund.
„Við völdum þetta verk til sýn-
ingar fyrst og fremst vegna þess
að okkur leist svo vel á þessa
sögu. Höfundurinn sjálfur kynn-
ist þessum manni í Berlín og verð-
ur svo uppnuminn af þessum per-
sónuleika að hann ákvað að skrifa
um hann leikrit.“
Höfundurinn er sjálfur ein af
persónunum í leikritinu, þannig
að Hilmir leikur jafnt höfundinn
sem aðalpersónuna auk 33 ann-
arra persóna sem koma við sögu á
viðburðaríkri ævi Charlotte von
Mahlsdorf.
Doug Wright hefur fengið
margar viðurkenningar, meðal
annars Pulitzer- og Tony-verðlaun-
in fyrir leikritið Ég er mín eigin
kona. Einnig skrifaði hann leikrit-
ið Quills, sem fjallar um mark-
greifann de Sade og hefur verið
kvikmyndað með Geoffrey Rush
og Kate Winslet í aðalhlutverkum.
Aðalpersóna einleiksins,
Charlotte von Mahlsdorf, skrifaði
fyrir um það bil áratug sjálfs-
ævisögu sína, sem ber sama nafn
og leikritið. Þýski kvikmynda-
gerðarmaðurinn Rosa von Praun-
heim gerði skömmu síðar
kvikmynd eftir ævisögunni og
naut til þess aðstoðar Charlottu.
Það var Guðni Kolbeinsson,
faðir leikarans, sem fékk það hlut-
verk að þýða leikritið yfir á ís-
lensku. Leikmynd gerði Grétar
Reynisson en Stefán Baldursson
leikstýrði.
HILMIR SNÆR Charlotte von Mahlsdorf átti sér merka æfi, sem sagt er frá í einleiknum
Ég er mín eigin kona.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur
JANÚAR
27 28 29 30 1 2
Fös. 30. september
Lau. 1. október
Lau. 8. október