Tíminn - 24.08.1975, Qupperneq 30

Tíminn - 24.08.1975, Qupperneq 30
30 TÍMINN Sunnudagur 24. ágúst 1975 Stofu- hljóm- sveitin Stuð- menn! Það var stór hópur kvenna sem var stálheppinn um dag- inn, er Stuðmenn lcku i stof- unni heima hjá þeim, en eins og greint hefur verið frá i Nú-timanum iaumuðu Stuðmenn miða inn i eina plötu, sína og átti sá, cr keypti plötuna að fá Stuðmenn heim I stofu til sin. Það kom i hlut nokkurra kvenna að kaupa þessa eftirsóttu plötu og þegar Stuðmenn fóru i stofuna, — fylgdist Nú-timinn með. ,,Já, það var þannig”, hóf einn Stuðmannanna máls, ,,að konurnar hringdu i viðtais- tima Stuðmanna (milli 5—7 á föstudögum) og sögðu, að þær hefðu þennan miða undir höndum, en simanúmer okkar var ritað á miðann i Stuðmannastöfum.” Það var árla þriðjudags- morguns að Stuðmenn fóru á stjá, og vissu konurnar ekki af komu þeirra, fyrr en þeir birtust Ijóslifandi. „Okkur þykir það gott.að miðahafar skuli vera stór hópur kvenna”, sagði annar Stuðmanna”,,,þvi okkur verður vcl til kvenna”. Konurnar hrifust mjög af fágaðri framkomu Stuð- manna, og hljómsveitin gisti stofuna i þrjá tíma samtals, og lék öll lög plötu sinnar tvisvar og B-hiiðina á næstu plötu einu sinni. Urðu konurnar nær máttlausar af hrifningu, enda stigu Stuðmenn dans við þær, — og höfðu konurnar á orði, að jafn fölskvalausu látbragði hefðu þær aldrei kynnzt. Stuðmenn sögðu vio okkur, að nú stæðu fyrir dyrum hat- rammar deilur innan hljómsveitarinnar um kjörorð næstu plötu, og væri alls ekki vitað, hvernig þeirri deilu lyktaði. — En hvernig þykir Stuðmönnum að leika i stofu? — Við Höfum aldrei leikið i stofu áður og vorum þvi ákaf- lega taugaóstyrkir til að byrja með, en ósvikin hrifning kvennanna svo og þessi út- lenzki hijómburður hér, gerði það að verkum að tauga- óstyrkurinn hvarf eins og Stuðmannap1ata úr hljómplötuverzlunum! Er stofuhcimsóknin var á enda, brugðu Stuðmenn sér út á götu og hittu þar nokkur börn. En Stuðmenn hröðuðu sér brott er ibúar hverfisins komu fylktu liði I skrúðgöngu með lárviðarsveig. Þá hurfu Stuðmenn. Myndirnar skýra sig eflaust sjálfar. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.