Tíminn - 24.08.1975, Síða 31

Tíminn - 24.08.1975, Síða 31
Sunnudagur 24. ágúst 1975 TÍMINN 31 * HLJÓMPLÖTUDÓMAR NÚ-TÍMANS Janis Ian — Between The Lines Columbia — PC 33394 ALDREI fyrri hefur nokkur plata listamanns, sem ég hef ekki heyrt I áöur, komið mér jafn mikið og þá ekki siður skemmtilega á óvart, — enda er þessi plata Janisar Ian, Be- tween The Lines, að minum dómi ein af allra beztu plötum þessa árs. Nú haldið þið eflaust að óþarflega sterkt sé að orði komizt, en þvl harðneita ég með öllu og skal éta hatt minn ef ég stend sjálfan mig að þvi að breyta um skoðun. (Nú haldið þið eflaust, að ég eigi engan hatt, — og það er náttúrlega alveg rétt) ..en ég er ekki að grínast! Ég viðurkenni fúslega, að hér viðhef ég stór orð, en það er bjargföst trú min, að ég hafi efni á þvl að nota stórorð I dag. Janis Ian er söngkona, gítarleikari (kassagltar) planóleikari, tón- skáld og útsetjari, fædd árið 1951 (viljirðu vita fæðingardag- inn, — skrifaðu mér þá) I New York. Janis hefur gefið út 5 LP-plötur, þrjár þær fyrstu hjá Verve-fyrirtækinu en siðustu tvær hjá Capitol. 16 ára gaf Janis út tveggja laga plötuna „Society’s Child” (Verve), sem var bönnuð I fjölmörgum út- varpsstöðvum vestra, — og sama ár kom út fyrsta LP-plata hennar, For All Seasons Of Your Mind. (Þvl miður hef ég ekki heyrt fyrri plötu Janisar Ian, og þvi get ég ekki dæmt Between the Lines út frá fyrri plötum hennar, en ég vona, að hljóm- plötuverzlanir sjái sóma sinn I þvi að panta fyrri plötur henn- ar). En i hverju eru gæðin fólgin? Tónlistin er fyllt meö þessum einfaldleika, sem svo margir þrá,enfáirfá hendurá fest. All- ur hljóðfæraleikur er afar ein- faldur og fábrotinn, en smekk- legur með eindæmum og fellur fullkomlega inn I heildarmynd- ina. Melodíurnar sjálfar eru á tlðum flóknar og fara á stundum I einkennilegar áttir, en þó þannig, að það eru engir útúr- dúrar frá heildinni. Tónlistin er melódlsk og tær, en I henni miklar andstæður, sem má rekja til textanna, — og erum við hér komin að veigamesta at- riði plötunnar, að mlnum dómi. Textar Janisar Ian (hún sem- ur þá sjálf) eru stórmerkilegir og „bara” sem ljóðskáld stæði hún mjög vel að vlgi. (Hún hefur gefið út ljóðabók, „Who Really Cares” (1969)). Textarnir eru grunnur plötunnar og öll tónlist- in er samin til þess að ná fram einni heild I lögum og texta. (Þúsundir tónlistarmanna virð- ast aldrei fá skilið að til að búa til „gott lag” þarf að vera fyllsta samræmi milli laga og texta). Þessari frábæru sam- ræmingu, eða öllu heldur sam- runa nær Janis Ian fram með tvennum hætti, annars vegar með þvi að túlka textana I söngnum og hins vegar með þvi að túlka þá I sjálfri tónlistinni (melódiu-hljóðfæraleik). Þess- um frábæra samruna tveggja aöálþátta hvers lags geta fáir státað af. Tilfinningalegar andstæður hvað textana áhrærir I einu og sama laginu eru ekki einsdæmi, en Janis hefur algjört vald yfir viðfangsefni, og hvort heldur hún túlkar gleði eða vonbrigði, ást eða sorg, — ber allt að sama brunni. Hún getur verið reið, nöpur, og hæðin, en llka bllð, ljúf og ástríðufull, — en hún hef- ur vald á tilfinningunum og það er heilsteyptur persónuleiki, sem að baki býr. Yrkisefni Janisar Ian eru kannski ekki ýkja margvlsleg, — en hún er persónuleg og hreinskilin og það er hreint ótrúlegt hvað hún virö- ist eiga létt með að tjá sig I orð- um. Það er hinn sterki heildar- svipur plötunnar, sem vegur þyngst, — og einnig það, að öll tónlistin er svo blátt áfram og eðlileg. Þetta er einlæg tónlist, sem er laus við allan rembing og stæla. Einföld, fáguð, ljóðræn og blátt áfram. Afar erfitt er að gera upp á milli einstakra laga, en ég nefni fjögur, „Bright Light & Promis- es”, „At Seventeen” „Between the Lines” og „Watercolours”. Að kalla Janis Ian þjóðlaga- söngkonu, eins og einn hljóm- plötugagnrýnandi gerði fyrir viku, er hreint rangnefni. Tón- list hennar er soft-rock eins og það gerist bezt. Ég lýk þessu svo með sömu orðum og ég viðhafði við einn kunningja minn fyrir nokkru: „Það nálgast brjálæði, hvað hægt er að gera góða plötu”. — G.S. LP-plata vikunnar: Janis lan — Between The Lines Dr. Hook — Bankrupt Capitol — ST 11397 ★ ★ ★ + EFTIR langa þöng er Dr. Hook kominn á kreik á ný og nú undir breyttu nafni, þvl hann hefur sleppt langlokunni „and the medicine show” og þvl heitir hljómsveitin aðeins Dr. Hook og platan heitir Bankrupt. Sem fyrr eru það lög Shel Silverstein, sem bera af (hann á fjögur lög plötunnar) ásamt lagi Cooke „Only Sixteen” sem þeir félagar flytja I Loving Spoon- ful-stll og gera mjög vel. Eitt finnst mér setja leiöinleg- an svip á plötuna, en það eru óþarfa hlátrasköll og vein á milli laga, hvort sem það á viö eða ekki. Að öðru leyti er litið hægt að segja um plötuna. Þetta er dæmigerð Dr. Hook plata, sett upp samkvæmt gömlu formúl- unni og ætti þvl samkvæmt ann- arri formúlu að falla öllum Dr. Hook aðdáendum vel I geð. — G.G. Stephen Stills — Stills Columbia PC 33575 ★ ★ ★ ★ EFTIR AÐ þeir félagar Crosby, Stills, Nash og Young hættu samstarfi slnu hefur Stephen Stills verið þeirra einna at- kvæðamestur. Hann hefur gefið út þrjár sólóplötur (að þeirri nýju meðtaldri) og tvær plötur með súperhljómsveitinni Man- assas, sem hann stofnaði 1972 og lifði I rúmt ár. Síðan kom löng þögn, eða þar til nú, að hann er aftur kominn á stjá með nýja plötu — og um það ieyti, er hún kom út, stofnaði hann nýja hljómsveit. Tónlistin á plötunni — sem ber einfaldlega heitið „Stills” — er meira I ætt við Manassas en S,S,N,Y enda koma gamlir kunningjar úr þeirri hljómsveit mikið við sögu ásamt fjölda annarra, s.s. Leland Sklar, Russ Kunkel, Donnie Docus og Cros- by og Nash taka undir og radda frábærlega I tveimur lögum. Meira þarf ekki að segja öll- um (eða flestum), sem kunnugt er um snilli Stills, — og þvl ætti enginn, sem er á bandarlsku „west-cost”-lInunni að verða fyrir vonbrigðum með „Stills”. — G.G. Blood, Sweat & Tears — New City Columbia PC 33484 ★ ★ ★ + ÞESSI nýja LP-plata frá Blood, Sweat and Tears markar tvenns konar þáttaskil I sögu hljóm- sveitarinnar, — þau fyrri á þann veg, að ekki hefur I langan tlma komið jafnbetri plata frá hljóm- sveitinni, og I annan stað hefur hljómsveitin endurheimt sinn söngvara, David Clay- ton-Thomas. Það er eflaust eng- um vafa undirorpið, að þessi tvö atriði eru veigamikil og ugg- laust hljómsveitinni hvatning til frekari sigra, — jafnvel enn stærri sigra (kannski eins og þá er hljómsv. varð fræg fyrir fyrr á árum). Nú er langt frá því að þessi nýja plata sé nokkurt meistara- verk, — hún er góð miðað við siðustu plötur hljómsveitarinn- ar og glöggt merki þess, að Blood, Sweat and Tears eru að rétta úr kútnum. Platan sýnir framfarir, en litið meira. Nokk- ur lög plötunnar eru þó harla at- hyglisverð, s.s. „Applause” (eftir Janis Ian) „Naked Man” (eftir Randy Newman) og „One Room Country Shack” (eftir John Lee Hooker). Blood, Sweat and Tears gera heiðarlega tilraun til að afla sér sinna fyrri vinsælda aftur meö gömlum slögurum, „Ride Cap- tain Ride” (eftir Frankie Konte og Carlos Pinera) og „Got to Get you Into My Life” (eftir Lennon-McCartney) og það má vel vera að þeim verði eitthvað ágengt. Llklegasta lagið til vin- sælda er þó að mínum dómi lag David Clayton-Thomas, „Yest- erday’s Music”. Fyrir aðdáendur hljómsveit- arinnar er þetta kærkomin plata og aðrir rokkjass aðdáendur geta vel unað við nokkur góð lög á plötunni. Óliklegt er þó, að New City afli Blood, Sweat and Tears allra sinna fyrri vin- sælda. En stefnan er uppávið, og batnandi manni er vlst bezt að lifa. Ekki satt? — G.S. David Bromberg Band — Mid- night On The Water Columbia — PC 33397 ★ ★ ★ ★ + ÞAÐ FER varla á milli mála þegar maður hlustar á David Bromberg að þar er kunnáttu- maður á ferð, enda lagði hann stund á tónlist I háskólanum I Columbíu. Slðan eru liðin mörg ár og reynsla hefur bætzt við lærdóm- inn, þannig að Bromberg er orð- inn heimsmaður I tónlistar- heiminum. Nýjasta plata hans og hljóm- sveitar hans heitir „Midnight on the Water” og er gott dæmi um þetta. Þar bindur hann sig ekki við neina eina tónlistarstefnu, heldur spilar fjölbreytta tónlist úr ýmsum áttum, eins og blues, soft rock, country, blue grass og lögin I stil viö gömul irsk og skozk þjóðlög. Allur flutningur er mjög fágaður og oft frumlegur og hvilir yfir honum mikil ró. Midnight on the Water er ein af þessum plötum, sem maður setur á fóninn, þegar maður vill virkilega hlusta á tónlist i ró og næði og slappa vel af. TAKIÐ ÞÁTT í SKOÐANAKÖNNUN NÚ-TÍMANS: Mest seldu LP-hljómplötur vikuna 11.—15. ógúst 1. Sumar á Sýrlandi Stuðmenn 2. Stuð, Stuð, Stuð, Lónlí Blú Bojs 3. One of These NightsEagles 4. Venus & Marz 5. Stardust 6. Sailor 7. Hearts 8. Return to Fantasy 9. One Size Fits All 10. Gylfi Ægisson Wings David Essex o. fl. Sailor America Uriah Heep Zappa Gylfi Ægisson Hljómdeild FACO — Laugaveg 89, Hljómdeild FACO — Hafnarstræti 17 SENDUM I PÓSTKRÖFU Atkvæðaseðillinn er birtur á bls. 25

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.