Tíminn - 04.07.1976, Qupperneq 6

Tíminn - 04.07.1976, Qupperneq 6
6 TÍMINN Sunnudagur 4. júli 1976 Ingólfur Davíðsson: Byggtog búið í gamla daga 129 Litum á gamla virbulega húsið Vallastræti 4 i Reykjavik — á mótum Aðalstrætis og Austurstrætis aðkalla. Húsið er nú rauðmálaö, en glugga- búnaður og flúr hvitt. 1 þessu aldna timburhúsi hafa þrjú fyrirtæki, það er Björnsbakari, gullsmiðavinnustofa og Hótel Vik haft aösetur, og iöngum gert garöinn frægan. Nokkru fyrir aldamót haföi Sigurður Jónsson járnsmiður þama smiðju í húsi sinu. En árið 1895 kaupir Sturla Jónsson kaupmaður húsiö og lóðina á 5.500 krónur. Rak hann þar bakari og byggði ibúðarhús. Um aldamótin keypti Björn Simonarson gullsmiður eignina á 11 þúsund krónur og byggði seinna ofan á húsið. Stundaði Björn þarna gullsmiði og rak gullsmiðaverkstæði og búö til dauðadags 1914. Kona hans Kristin Björnsdóttir annaöist brauðgerðarhúsiö og jafnframt greiðasölu á staðnum. Ariö 1935 tekur Karl Kristjánsson við og kaupir eignina árið 1941. Theódór Jónsson leigði hjá honum ogstarfrækir Hótel Vik á árunum 1935-1950. Siðan tók Karl við hótelinu og rak þaö frá 1950 til 1973-1974. Voru hótel- herbergi 24. Brauðgeröarhúsið starfar áfram á vegum Karls. Leikskólastarfsemi var i miklum hluta hússins 1974, en núerþar ibúðarhúsnæöi. Einnig söngkennsla Guömundu Elías- dóttur. Elzti hluti hússins var upprunalega plankabygging og múrbindingsverk meö strái. Bakvið hefur i seinni tiö veriö byggt úr steini, þ.e. geymsluhús áriö 1921, brauðgerðarhús með nýjum rafmagnsofni, ein- hverjum þeim fyrsta á landinu 1938, og hótelpláss 1951. Upp- lýsingar hefur Karl Kristinsson gefið og léð mynd af byggingunni eins og hún leit út 1960. Þá hefur framhlið verið ljósgul og rauður glugga- búnaður, þak og kjallarahæð. Mynd tekin vorið 1976 sýnir hve risastórar byggingar eru þarna aö þrengja að og fullskipað er böastæöiö. Litum siðan á litiö timburhús, grátt með brúnum glugga- búnaöi á mótum Suðurgötu og Vonarstrætis. „Járnrunninn” fuglinn Fönix i forgrunni, en „happadrættisgaflinn” t.v. Þar bjuggu lengi bræðurnir Bjarni Hjaltested prestur og kennari og Pétur Hjaltested stjórnar- ráðsritari meö fjölskyldum sinum. „Electrichúsið” Túngötu 6 er rammlegra, grunnur hlaöinn úr grásteini, gráar tiglaflögur á þaki. Gamallegt er þaö aö sjá. Bjó ekki Sveinbjörn Svein- björnsson tónskáld um skeið þarna á næstu grösum? Rétt hjá stendur frægur álmur, sem er meö mestu og elztu trjám i Reykjavlk. Ef við löbbum upp Suður- götuna góðan spöl, ber fyrir augu gamall torfbær „Litla-Brekka”. Þar i kring er nú umrót mikiö, moldarbingur i forgrunni, en stór hús I byggingu aö baki. Litið hús i borg er nú sem mús undir fjala- ketti! Hótel Vik og grennd 19. mai 1976 Litið hús á horni Suðurgötu og Vonarstrætis ' 0* „Electrichúsiö” viö Túngötu 6 (1975) - I Htel Vik (Reykjavik) 1960 Torfbærinn viö Suöurgötu „Litla-Brekka”

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.