Tíminn - 04.07.1976, Blaðsíða 27
Sunnudagur 4. júli 1976
TÍMINN
27
BÍLLINN - SEM ALLIR
TALA UAA
fjórhjóladrifsbíll með
einu handtaki inni í
bílnum — sem þýðir
að þú kemst nærri
hvert sem er á hvaða
vegi sem er.
SUBARU
fjórhjóladrifsbíllinn, sem klifrar eins
og geit, vinnur eins og hestur en er
þurftarlitill eins og fugl.
INGVAR HELGASON
Vonoríandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1
Á Vesturbrú. Þar er nú allt i upplausn eftir að upp komst um þá, scm standa að baki vændisrckstri, sem rekinn er undir
nafninu nuddstofur.
Prinsinn og
Börge hundur
Hver er Svend Thevis og hver
er Börge hundur?
Sá síðarnefndi, sem einnig
hefur veriðstefnt fyrir rétt, verzl-
aðieittsinn með hunda, ogsagt er
að hann hafi oft fengið kvartanir
frá fólki, sem hafði keypt af hon-
um litla hunda. Hann yppti bara
öxlum þegar hann sagði, að þótt
hundurinn hefði veriö litill þegar
hann seldi hann gæti hann verið
orðinn stór þrem mánuðum siðar.
þaö væri bara gangur náttúrunn-
ar. Hann gengur einnig undir
nafninu „banana Börge” þvi
hann var i bananaverzlun áður en
hann sneri sér aö klámi sem sam-
starfsmaður Svends Thevis.
Svend Theviser kallaður prins-
inn. Foreldrar hans voru Pólverj-
ar og hann fæddist i Borgergade.
Þau höfðu ofan af fyrir sér með
þvi aö selja notuð föt og það var
erfitt lif. Þau áttu ellefu börn.
Svend komst vel af þegar hann
rak verzlun i Istedgade og seldi
herraföt fyrir tugmilljónir króna.
Nú er svo að skilja, að áhugi hans
beinistað þvi, sem er undirfötun-
um, og það gefi ekki slöur ágóða i
aðra hönd.
Hann fór að hafa afskipti af
klámheiminum. þegar Leo Mad-
sen tók til að efnast á klámiðnaði
og öðru sliku eftir að refsilög i
sambandi við klám voru afnumin.
Madsen fékk 300-400% ágóða, og
svo mikið var ekki hægt að græða
á að selja herranærföt.
Thevis byrjaði með þvi að hafa
útsölu á Vesturbrú, og fljótlega
kom hann sér upp fleiri verzlun-
um. Hann keypti allt veldi Leos
Madsen fyrir 155 milljónir króna,
og nú er Thevis ekki aðeins prins
klámheimsins i Höfn heldur
konungurinn á Vesturbrú og
Strikinu, þar sem hann á 11 verzl-
anir, þar sem höfðað er til losta
ferðamanna.
öllu skuggalegri er starfsemi
nuddstofanna, en ef byggt er á
þvi, sem kom fram fyrir rétti i
Kaupmannahöfn fyrir skömmu,
má ætla að hann sé mjög viðrið-
inn hana. Sagt er aö hann eigi
hagsmuna aö gæta i 21 nuddstofu
viðs vegar I borginni.
150.000 á dag
Deilan hófst raunverulega þeg-
ar vændiskonan unga keypti
kjallaraverzlun i Istedgade áriö
1971 til að stofna þar nuddstofu.
Hún fékk þá hugmyndm að hún
ætti að borga 1.800.000 kr. fyrir
hana, en hún er nú búin að greiða
7.500.000.
Þegar fyrirtækið fór að ganga
vel, segir hún aö Börge hundur
hafi komið hennarog boðið henni
næstu nuddstofu. Hann á aö hafa
sagt, að ef hún keypti hana ekki
yrði hún fyrir harðri samkeppni.
Hann hafði sjálfur keypt stofuna
af Svend Thevis fyrir þrjár
milljónir fyrrum daginn, og seldi
stúlkunni hana fyrir 7,5 milljónir
siðdegis.
Vændiskonan iðraðist af
mörgum orsökum þessara
viðskipta,og snerisér þvi til Sally
Sandmar, sem fæst við fasteigna-
sölu. Hún bað hann um hjálp, og
hvaö sem þeim kann að hafa fariö
á milli fór svo að hann lofaði að
v?já svo um að hún fengi pening-
ana si'na aftur.
Górillurnar
23. september i fyrra sendi
hann Thevis bréf, þar sem hann
gerði kunnugt, að hann krefðist
aftur 15 milljóna, sem viðskipta-
vinur hans heföi greitt honum á
undanförnum árum, en hann
gekk út frá þvi að peningarnir
hefðu hafnaö i vasa Thevisar.
Tveim dögum síðar var allt brotiö
og bramlað i annarri nuddstofu
hennar ogung kona, sem var þar
þegar „górillurnar” voru að
verki meiddist litið eitt.
Þá lét Sandmar til skarar
skriða. Hann og unga stúlkan
sneru sér til Orla Möller dóms-
málaráðherra, þar sem að þvi er
hann sagði, lögreglan hirti ekki
um kvartanir þeirra. Ráöherra
sendi hraðboð til Eefsen lögreglu-
stjóra, sem setti af stað „hreins-
un”.
Það er sem sagt opið striö milli
Sally Sandmar og rikjandi stéttar
i Istedgade. Sally Sandmar, sem
gjörþekkir hverfið, segist hafa
lagt til atlögu vegna þess að mörg
hundruð ungar stúlkna séu eyði-
lagðar á „sál, likama og liffær-
um”.
Fjárhagshliðin
Nuddstofurnar bjóða upp á
margskonar þjónustu, sem kostar
frá 1.500 kr. upp i 4.500, sem er
saman um að gera erlendum
gestum dvölina skemmtilega. Svo
gæti farið að gestir i Kaupmanná-
höfn eigi rólega daga þar i sumar.
SUBARU
framhjóladrifsbíll
sem verður
Miðar seldir i kynlifssirkus.
verðið á venjulegum samförum.
Ungu stúlkurnar, sem vinna á
nuddstofunum borga9000kri e.k.
startgjald á hverjum degi.
Þar að aukifær sá, sem stendur
að baki stúlkunni, hver sem hann
nú er fé.helminginn af tekjunum.
Ef vændiskona fær fjóra
viðskiptavini, sem vilja venjuleg-
ar samfarir, fær hún 18.000 kr.
Þar af fær „alfonsinn” 9.000 kr.
og auk þess 2.100 frá hverjum
viðskiptavini. Þaö þýðir, að stúlk-
an fær aðeins 600 kr. fyrir fyrstu
fjóra viðskipta vinina, en „alfons-
inn” 17.400 kr.
Fyrir hvern viðskiptavin eftir
það verðurhún aðborga 2.100kr.,
en fær sjálf 2.400 kr. Fái hún átta
viðskiptavini á dag hefur hún
10.200 kr. i tekjur, en melludólg-
urinn hefur 25.800 kr.
Ef vændiskona á að vinna sér
fyrir daglaunum verður hún að
þjónaminnstátta viöskiptavinum
á dag og það þola fæstar lengur en
i fáeina mánuði. Þá eru þær
likamlega og andlega niðurbrotn-
ar.
26.000 samfarir
á tveim mánuðum
A.m.k. 55 konur eru að störfum
sólarhringinn langan i nuddstofun
um á Vesturbrú. Og á um tveim
mánuðum i vor hafa a.m.k. 150
ungar konur starfað þar og tekiö
þátt i meira en 26.000 samförum,
sem „alfonsar” þeirra hafa grætt
á litlar 60 milljónir Isl. króna.
Þessum duglegu viðskipta-
mönnum finnst að vonum
gremjulegt, að innbyrðis deilur
skyldu einmitt koma upp þegar
ferðamannatiminn var að hefj-
ast, og þegar taka átti höndum