Tíminn - 04.07.1976, Síða 7

Tíminn - 04.07.1976, Síða 7
Sunnudagur 4. júli 1976 TíMINN 7 HELGARSPJALL Steingrímur Hermannsson: Að láta herinn borga Grundvallaratriðin I fundargerðum þeim, sem birtar voru i vetur, frá fundum islenskra forustumanna i Was- hington,fyrir innöngu okkar i Atlantshafsbandalagið, er að finna ýmsan fróöleik. Fram kemur mjög ákveðin samstaða hinna Islensku forustumanna um eftirgreind grundvallar- atriði: 1. Að tsland eigi heima I sam- tökum vestrænna þjöða, sem hafi það markmið að varð- veita grundvallarhugsjónir hins vestræna lýðræðis. 2. Að tsland þjóni þeirri þátt- töku fyrst og fremst með þvi að viðhalda hér á landi að- stöðu fyrir her frá þessum þjóðum ef tíl átaka kemur. 3. Að ekkikomi til mála, að á is- landi verði her á friðartimum og aðeins samkvæmt ákvörðun tslendinga sjálfra. A þessum forsendum gerðust tslendingar þátttakendur I At- lantshafsbandalaginu. Sumir töldu að visu ekki nægilega vel frá þvi atriði gengið, að hér á landi yrði aldrei erlendur her nema að okkar ósk og ekki á friðartimum. Þeir menn óttuðust, að erfitt gæti orðið að losna við herinn, ef hann kæmi og það hefur reynzt rétt. Það beytir hins vegar ekki verndun þeirra hugsjóna, sem við byggj- um á, lýðræði og frelsi einstak- lingsins ákveðnir i þvi, að það skuli þd verða undantekning, að hér á landi sitji erlendur her. Breytt afstaða Þegar Bandarikjamenn neituðu okkur um aöstoð þá, sem við báðum þá um i siöasta þorskastriði virðist mörgum Is- lendingum hafa orðið ljóst, að Bandarikjamenn eru hér fyrst og fremst og e.t.v. eingöngu vegna eigin hagsmuna. Þetta er vitanlega engin ný tiðindi. Sér- hver þjóð hugsar fyrstog fremst um sinn eigin hag og þurfum við Islendingar raunar ekki annað en að lita i eigin barm til þess að sjá, að svo er. Stundum geta hins vegar slikir hagsmunir farið saman, eins og t.d. þegar við sameinumst öðrum þjóöum til þess aö verja grundvallar- hugsjónir þess lýðræðis.sem við viljum búa við. Sumir, sem ekki gerðu sér grein fyrir þessum staðr.eynd- um áður, en sjá þær nú, bregðast við með þvi að segja : Fyrst svona er, skulum viö láta herinn borga. Einkum heftir verið rætt um það aö láta herinn greiða eða annast fyrir okkur varanlega vegagerð og það er skýrt meö þvi, að góðir vegir séu nauðsynlegir á friðartlmum til þess að koma fólki úr þétt- býlinu út á land. Svipuð rök má að sjálfsögðu háfa um hafnir sima, rafmagn og raunar fiestar aðrar opinberar fram- kvæmdir. Og vitanlega munar risaveldinu ekkert um að taka að sér slika hluti fyrir okkur ís- lendinga, eða taka <*kur alveg undir sinn væng. Aðrir virðast sjá I stóraukn- um tekjum af varnarliðinu lausn á okkar efnahagsvanda. Að gerast þiggjendur úr hendi erlends stór- veldis Þessar hugmyndir eru I mih- um huga hinar fáránlegustu. Með þeim er ekki aðeins kastað fyrir borð þeim grundvallar- atriðum i þátttöku okkar i At- lantshafsbandalaginu, sem ég hef rakið, heldur yrðum við is- lendingar jafnframt háðir er- lendri hersetu um aldur og æfi. ALDREI hefur reynst auðvelt að sjá af þeim tekjum, sem eitt sinn eru I hendi. Við yrðum ekki lengur sjálfstæð þjóð, sem treystir á eigin mátt sinn og framleiðslu, heldur þiggjendur úr hendi erlends stórveldis. Með þvi að gera herinn að þeirri tekjulind, sem skamm- sýnir menn boða, verður ekki lengur sagt, að við séum þátt- takendur i vestrænu samstarfi af hugsjón til verndar grund- vallaratriðum vestræns lýðræð- is, ekki verður lengur sagt, að herinn sé hér á landi aðeins þeg- ar við sjálfir teljum það nauð- synlegt til verndar þessum grundvallaratriðum og aldrei á friðartimum. Við yrðum fljótlega svo háðir tekjum af hinum erlenda her, að allt slikt yrði aukaatriði og gleymt. Herinn yrði hér á landi vegna þess, að hann yrði fljótlega talinn vera okkur nauðsyn fjárhagslega, þrátt fyrir öll þau vandræði sem her- setunni fylgja. Þeir, sem ákváðu inngöngu okkar i Atlantshafsbandalagið, lögðu rika áherslu á, að hér yrði ekki her á friðartimum. Þeir gerðu sér grein fyrir þvi, að langvarandi erlend herseta er mjög hættuleg sjálfstæði smá- þjóðar. Hersetunni fylgir margs konar spilling. t kringum toll- frjálsan innflutning varnarliös- mannanna þróast óhemju smygl, þeim hefur fylgt vaxandi eiturlyf javandamál og svo mætti lengi telja. Langsamlega alvarlegast er þó i minum huga, að heil kynslóð íslendinga vex upp viðerlenda hersetu: margir einstaklingar sannfærðir um það, að islenska þjóðin geti ekki verið án erlendrar herverndar. Fra msóknarf lokkurinn vill standa við grund- vallaratriðin Okkur Islendingum ber að standa fast á þeim grundvallar- atriðum, sem réðu þátttöku okkar I Atlantshafsbandalaginu og forustumenn lýðræðisflokk- anna lögð allir svo rika áherslu á. t samræmi við það eigum við nú að sameinast um að láta her- inn fara. Það eru eðlileg við- brögð þeirra, sem sjá að hersins er ekki þörf nú vegna þátttöku okkar i Atlantshafsbandalagi. Skjalfest er, að á þetta féllust Bandarikjamenn á sinum tima. Jafnframt eigum við einnig I samræmi við samninginn, að vera reiðubúnir til þess að við- halda aðstöðu her á landi, sem gripa má til, ef til ófriðar kem- ur. Þegar herinn er hér á landi sýnist mér eðlilegt, að hann greiði allan kostnaö, sem af dvöl hans hlýzt vegna framkvæmda og reksturs á Keflavikurflug- velli og utan vallarins sem Bandarikjamenn eða Atlants- hafsbandalagið kann að telja nauðsynlegt sin vegna. Vera má, að þessu sé eitthvað ábóta- vantog er þá sjálfsagt að endur- skoða það. En það er aukaatriði. Herinn á alls ekki að vera hér þegar hans er ekki þörf. Mér sýnist jafnframt eðlilegt, að Atlantshafsbandalagið greiði kostnað vegna viðhalds þeirrar aðstöðu, sem talin er nauðsyn- leg hér á landi, þegar herinn er farinn. Framlag okkar er landiö, og þaö er stórt framlag. Slik afstaða, sem ég hef nú rakið, lýsir staðfestu og mann- dómi. Að treysta á erlendan her sem tekjulind er uppgjöf. Stefna Framsóknarflokksins er ljós. Flokkurinn hefur hvað eftir annað itrekað á afstööu sina að standa fast við upphaf- lcga grundvallaratriði þátttöku okkar I Atlantshafsbandalag- inu. — Leiðin úr erfiðleikum Það er rétt að við tslendingar erum i töluverðum efnahags- erfiðleikum. Stórauknar tekjur af hernum mundi ekki leysa okkur úr þeim vanda. Þær mundu aðeins verka sem bensln á verðbólgubálið og sljóvga vilja þjóðarinnar til þess að standa á eigin fótum. Leiðin úr þeim erfiðleikum er vitanlega sú að herða mittisól- ina um tima og kappkosta að eyðaekkimeiraenviðöflum, en leggja jafnframt á það höfuð- áherslu að auka framleiðsluna með eigin atorku og framsýni. Sú stefna hefur stundum verið nefnd framleiðslustefnan. Þjóð, sem treystir á tekjur af erlendri hersetu mun fljótlega glata sjálfstrausti sínu. Að byggja á eigin framleiðslu, eigin atorku, eflir hins vegar sjálfstæðismet- vitund þjóöarinnar og hæfileika hennar til þess að mæta erfið- leikum og vera sjálfstæð þjóð. Frá þeirri stefnu megun við is- lendingar aldrei vikja. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN HJtlKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á lyflækningadeild frá 1. ágúst n.k. Umsóknarfrestur er til 18. júli n.k. Nánari upplýsingar veitir for- stöðukonan. H JÚKRUN ARFRÆÐIN G AR og SJÚKRALIÐAR óskast til afleys- inga i sumar. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir for- stöðukonan simi 24160. KLEPPSSPÍTALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Ósk- ast i fast starf og til afleysinga. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir for- stöðukonan simi 38160. Reykjavik, 2. júli, 1976. SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765 r i i i i Samvinnuferðir bjóða nýtt land, nýjan stað, nýtt umhverfi. Vúaga sumarleyfisferö tilPORTÚBAl meO viúkomu í 10HB0N. > Á Algarve-strönd Suður Portúgals er ein (egursta og best varðveitta baðströnd Evrópu. Eftirsóttur ferðamannastaður, sem fáir islenskir ferðamenn þekkja ennþá. I London verður gist á hótelum i hjarta borg- arinnar. Farþegar ráð stafa sjálfir tima sin- um þar en farar- stjóri Samvinnu- ferða verður þeim til aðstoð- ar allan^fmann og kemur heim með hópnum. völdum Hingað sækja þeir, sem njóta vilja fegurðar og friðsældar þessa unaðsfagra héraðs, sem varðveitt hefur gamla siði og venjur, ósnortið af erli nútímans. Ævagömul en lifandi sjávarþorp setja viðkunnanlegan svip sinn á hina breiðu og löngu, hvitu og hreinu strönd Algarve. Algarve mai júni júli ágúst sept. okt. Meðalhiti sjávar: 22.0 23.0 25.1 26.5 26.5 23.0 Meðalhiti lofts: 22.5 25.0 28.0 28.5 26.5 23.5 Á Algarve verður gist i hótelibúðum og litlum villum fast við ströndina, þar sem allur aðbúnaður er í sérflokki. Á Algarve eru golfvellir eftirsóttir af þeim, sem þá iþrótt stunda. Samvinnuferðir hafa skrifstofu á Al- garve með islenskum starfskrafti til þjónustu og öryggis fyrir farþega sína. DAGFLUG TIL ALGARVE 3. ÁGÚST Reykjavík — Algarve 3. ágúst kl. 8,30. Algarve — Loridon 16. ágúst. London — Reykjavík 19. ágúst kl. 22,05. DAGFLUG TIL ALGARVE 17. ÁGÚST Reykjavik — Algarve 17. ágúst kl. 8,30. Algarve — London 30. ágúst. London — Reykjavik 2. sept. kl. 22.05. amvinnuferöir Austurstræti 12 simi27077 i iir A

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.