Tíminn - 04.07.1976, Blaðsíða 16

Tíminn - 04.07.1976, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 4. júli 1976 Tvö hundruð ár blóðugrar velmegunar Nú, þegar Bandarikjamenn horfa til baka á tvö hundruö ára langa sögu sina, fer varla hjá þvi aö tvenntláti þar mest á sér bera. Annars vegar er þaö sú velmeg- un sem Bandarikjamenn hafa lif- að viö — með undantekningum þó bæöi á timabilum og meöal ein- stakra þjóöfélagshópa — og styrjaldarrekstur þeirra, sem hefur veriö næsta samfelldur þessar tvær aldir. Það þrennt i styrjaldarrekstri Bandarikjanna sem hæst ber er að sjálfsögðu Heimsstyrjöldin fyrsta, heimsstyrjöldin önnur og Vietnam-styrjöldin. Allar þrjár hafa staðið á þess- arri öld, allar hafa verið harðar og kostnaðarsamar, bæði i mannslifum og vopnum. Að öðru leyti eiga þær litið sameiginlegt, annað en styrjaldarnafnið. En blóðið hefur ekki siður runn- iðheima fyrir en erlendis. Banda- rikin sem slik risu upp úr blóðugri byltingu — áralöngu þjóðfrelsis- striði gegn Bretum og kúgunar- valdi þeirra. Þegar sigur hafði unnizt á kúgurunum og frelsið var fengið tóku við önnur innanrikis- átök, ekki miklu vægari. Nægir þar að minnast á borgarastyrjöldina milli Norður- rikja og Suðurrikja, þegar blökkumenn fengu frelsi sitt og mannréttindi að nafninu til. Siðan hafa önnur mál komið öðrum aðilum til að berast á banaspjótum og á þessarri öld hefur staðið borgarastyrjöld sem er með nokkuð öðru sniði eri hinar fyrri. Þar er um að ræða styrjöld milli þeirra sem vernda vilja lög og rétt, annars vegar, en hins vegar þeirra sem sjá sér ágóða i aö troða hann fótum. Eiturlyfja- smygl og dreyfing, rán, þjófnaðir, likamsmeiðingarog morð eru svo daglegt brauð innan landamæra Bandarikjanna að hinn almenni borgari er búinn að hneykslast, hættur að taka eftir, og sér ekki vandamálið lengur nema þegar fjölmiðlar fjalla sérstaklega um það. Þess má geta i þessu sambandi að aðeins eiturlyfjaafbrot og af- leiðingar þeirra kosta bandariska rikið um seytján billjónir dollara á ári. Jafnframt þessu hefur svo þró- azt i Bandarikjunum velmegun, sem að mörgu til er ákaflega sér- stæð. Svo sem annað i þessum heimshluta einkennist hún eink- um af andstæðum, jafnvel hróp- legum andstæðum. Mikill hluti þjóðarinnar lifir ákaflega góðu lifi. Þar er um að ræða þessa svokölluðu miðstétt, hinn almenna borgara, sem ekki gefur verulega mikið af sér, en fær heldur ekkert gefið á móti. Fyrir ofan þennan meginhóp er svo hin fjármunalega yfirstétt auðmanna, sem hafa nægar tekj- ur til að lifa i iburði, mismunandi miklum að visu, en engu að siður iburði. Fyrir neðan miðstéttina er svo aftur á móti hin fjármunalega lágstétt, sem einkum saman- stendur af þeldökkum og öðrum þeim sem ekki hafa „hreint” skinn. Mikill fjöldi þeirra er á framfæri fylkis eða rikis, dregur ýmis fram lifið á lágum styrkj- um, eða, sem mun vera algeng- ara, þiggur styrkinn og vinnur siöan óreglulega fyrir þvi sem ekki getur talizt lifsnauðsynlegt. Þessar andstæður eru ákaflega einkennandi fyrir bandariskt lif og bandariskt þjóðfélag. Við get- um nefnt annað dæmi um það þar sem eru annars vegar háþróuð tæknimenning og vélvæðing á öll- um sviðum, en hins vegar ótölu- legur fjöldi handverksmanna og iðnaðarmanna, sem enn beita sömu aðferðum og afar þeirra eða langafar. Skósmiðir, húsgagnasmiðir, vefarar og svo framvegis nota enn hálfrar aldar gömul tæki og tækni, ekki vegna þess að þeir hafi ekki möguleika til annars, heldur vegna vilja til þess að varðveita vandað handbragð og framleiðsluaðferðir sem ekki fel- ast í fjöldaframleiðslu. Vegna þess að Bandarikin eru samfélag andstæðnanna hefur ekki farið hjá þvi að skoðanir hafa ákaflega skipzt gagnvart þeim. Þeir eru margir sem álita þar allt ómögulegt og illa gert, en þeir eru lika margir sem dásama þar hvern hlut. Ef til vill segir það skýrasta sögu að þeir sem búsett- ir hafa verið i Bandarikjunum fylgja yfirleitt hvorugum þessum hópa að málum, heldur segja Bandarikin lik öðrum löndum — sumt gott, annað slæmt. Engu að siður verður ekki fram hjá þvi litið, nú þegar haldið er upp á tvö hundruð ára afmæli Bandarikja Noröur-Ameriku, að þessi tvö hundruð ár hafa verið tvö hundruð ár blóðugrar vel- gengni. BM yr*i> Hj á okkur fáið þið flest er ykkur vanhagar um á ferðalagi, og veitingaskáli okkar býður upp á: ÝMISLEGT TIL HRESSINGAR Verið velkomin á félagssvæði okkar Við rekum áÞÓRSHÖFN: Veitingaskála, verzlun, mjólkurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, oliu- og benzinsölu, skipa- og bifreiðaafgreiðslu, slátur- og kjötfrystihús, inniánsdeiid á BAKKAFIRÐI: verziun, oliu- og benzinsölu, skipa- og bifreiöaafgreiðslu kaupfélag Langnesinga ÞÓRSHÖFN - BAKKAFIRÐI Andstæðurnar koma alls staðar fram f bandarlsku þjóðlffi. Trúarleið- toginn og heimspekingurinn prédikar yfir söfnuði sfnum, á meðan.... Hermaðurinn er kvaddur með blómum þegar leið hans liggur á vfgvöll- inn. J « Þverstæður myndast einnig vegna velmegunar. A kreppuárunum flykktist fók úr sveitum tifborga. Nú, á velmegunartfmum, flytur fólk f hina áttina, frá borgunum og velmeguninni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.