Tíminn - 04.07.1976, Side 40

Tíminn - 04.07.1976, Side 40
kFk FÓÐURVÖRUR þekktar UM LAND ALLT fyrir gæði Guöbjörn Guöjónsson Heildverzlun Siöumúla 22 Simar 85694 & 85295 v> Auglýsingadeild Tímans. PLAST ÞAKRENNUR ^ Sterkar og endingagóðar Hagstætt verð. Nýborg? O Ármúla 23 — Sími t 86755 Sauðárkrókur þenst út með hverju nýju ári Mikilvægustu og erfiðustu framkvæmdirnar tengdar gatnagerðaráætlun til tíu ára hs-Rvik. — Það, sem hæst ber i framkvæmdum hjá okkur, og er jafnframt erflðast viðureignar og mikilvægast, er gatnagerðin, sem er liður I 10 ára áætlun, sem gerð var á sinum tbna að tiistuðlan Framdvæmdastofnunar rlkisins, sagði Þórir Hilmarsson, bæjar- stjóri á Sauðárkróki, i viðtali við Timann á dögunum. Þórir sagði, að gefin hafi verið út skuldabréf á lóða- og húseig- endur til að fjármagna þessar framkvæmdir, auk þess sem fé fengist úr sameiginlegum sjóðum bæjarbúa og úr svokölluðum 25%-þjóðvegasjóði. Heildarkostn- aðurinn viðþessa 10 ára áætlun er metinn á 340 milljónir, en á þessu ári verður unnið fyrir um 70 mill- jónir. 1 áætluninni felst endanleg- ur frágangur á þeim götum sem fyrireru, þ.e. undirbygging, mal- bikun, gangstéttarlagning og lýs- ing. Hafnargerð Þetta er þriðja árið i röð, sem unnið er að hafnarframkvæmd- um á Sauðárkróki i stórum stil. t fyrra var rekiö niður stálþil og komið fyrir vatnslögnum og lýsingu. t sumar verður lokið við að steypa kant og malbika planið og kostar það verk milli 40 og 50 milljónir. Auk þessa er áhverju ári unnið að þvi, að lengja öldu- brjót við höfnina, sem er úr grjóti. Hitaveita Hitaveita er á Sauðárkróki, en það má ekki bfða öllu lengur, að borað sé eftir viðbótarvatni, að sögn Þóris, oger litillega byrjað á þvi. Hins vegar eru erfiðleikar á þvi að fá nógu góðan bor, en ætl- unin er að bora niður á 800-1200 metra dýpi og freista þess að fá heitara vatn, en áður hefur verið fáanlegt. íbúðabyggingar t hinu nýja ibúðahverfi, svo- kölluöu Hliðarhverfi, er nú verið að byggja nokkur raðhús, með 30-40fbúðum. Auk þess er i bygg- ingu ein leiguibúðablokk með 14 i- búðum og nálægt 10 einbýlishús eru ismiðum, að sögn Þóris. Enn- fremur gat Þórir þess, að verið Þórir Hilmarsson, bæjarstjóri á Sauðárkróki. verður notaður undir iðnaðar- hverfi og miðbæjarhverfi að nokkru leyti. Sjúkrahús og heilsu- gæzla Staðið hefur til að stækka sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Sagði Þórir, að vonandi yrði það verk komiðifullangang á neesta sumri og hugsanlega yrði byrjað á þvi að einhverju leyti i sumar. t við- byggingunni verður ennfremur heilsugæzla til húsa. útivistarsvæði Skagfirðingar eru þekktir fyrir hestamennsku og allt er henni lýtur, og nær sá áhugi einnig til bæjarbúa á Sauðárkróki, sem margirhverjir hafa flutzt til stað- arins úr nærliggjandi sveitum. Nú hefur verið skipulagt athafna- svæði fyrir hestamenn bæjarins, nokkrusunnan við tilvonandi iðn- aðarhverfi. Verður byrjað á fyrstu þrem hesthúsunum i sum- ar. Fjáreigendum hefur á sama máta verið ætlaður staður skammt frá bænum. Sauðarkrókur er mikill uppgangsbær, þar sem mikið er um byggingaframkvæmdir um þessar mund- ir. Þrir skuttogarar eru gerðir út frá Sauðárkróki, I samvinnu við Hofsós og þar eru 2 frystihús. Útgerð smærri báta er þar einnig nokkur, en Sauðárkrókur er einnig mikil þjónustumiðstöð fyrir fjölmennar sveitir Skagafjarðar. Ungfrúin góða og pófagaukurinn Það er ætið gaman, þegar sólin skin, og það er likt með Tomma og aðra, að þá llkar honum llfið. Otureygður tyllir hann sér á öxlina á ungfrúnni, vinkonu sinni, og lætur nefið slúta. Á milii þess, sem hann talar við hana. Þvl aö Tommi er menntaður páfagaukur, sem getur sagt sitt af hverju, þegar hann vill það við hafa. Hitt getur verið undir hælinn lagt, að það séu einmitt réttu ástarorðin, sem hann bregður fyrir sig, þegar þau leggja vanga að vanga, hann og ung- frúin góða. En hún er umburðarlynd, hamingjunni sé lof, og finnur sér ekki tii, þó að Tommi sé ekki alltaf sem orðheppnast- ur. Og hann er svo sem ekki sá eini, sem stundum segir eitt- hvað annað en hann ætti helzt að segja — ég held maður þekki það. Hvernig var það ekki, þegar Þórbergur fór að sýna elsk- unni sinni stjörnurnar: Ég titra öllsömul, sagði hún. En Þórbergur hélt, að henni væri svona dauðkalt. Tlmamynd: GE. væri að stækka húsnæði sútunar- verksmiðjunnar um helming, og stórt og mikið stálgrindahús er að risa viðhöfnina, þar sem aðstaða verður fyrir bátaeigendur. Flugvallargerð Gert er ráð fyrir að hinn nýi flugvöllur verði tekinn i notkun i haust og er verið að setja upp öryggislýsingu um þessar mund- ir. Flugvöllurinn er tveggja kiló- metra langur og verður hann varavöllur fyrir millilandaflugið, eins og kunnugt er. Svæði það, sem gamli völlurinn stendur á Skólabyggingar Auk áðurnefndra bygginga- framkvæmda, er verið að reisa heimavist fyrir gagnfræðaskól- ann svo og viðbyggingu við gagn- fræðaskólann, þar sem verður verknámskennsla iðnskólans. Sagði Þórir, að þessar fram- kvæmdir gengju allar heldur treglega. Þórir gat þess að lokum að til- finnanlega vantaði stórt félags- heimili á staðinn, en þar er fyrir litið hótel og litið félagsheimili, sem engan veginn fullnægja þörfum bæjarins. I I I I ■ Vörubíla I BARUM BREGST EKKI hjólbaröar Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLAND/ H/F AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606 I I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.