Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 09.03.2006, Blaðsíða 4
4 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR Bandaríkjadalur 68,82 69,14 Sterlingspund 119,64 120,22 Evra 82 82,46 Dönsk króna 10,996 11,06 Norsk króna 10,241 10,301 Sænsk króna 8,663 8,713 Japanskt jen 0,5839 0,5873 SDR 98,84 99,42 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 8.3.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 115,2111 ATVINNULÍF Samtök iðnaðarins segja stjórnvöld ekki gæta hlutleysis gagnvart fyrirtækjum í landinu. Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri sam- takanna, segir að grípa þurfi til aðgerða gegn þeim vanda sem hafi skapast hjá fyrirtækjum eins og Marel, sem starfi í útflutningi á hátækni. „Ríkið veitir stóriðju fyrir- greiðslu sem það veitir ekki öðrum,“ segir Jón Steindór. „Ríkið þarf að gæti viss jafnræðis í hvaða atvinnu- greinar byggjast hér upp þannig að arðsemi rekstursins skipti höfuð- máli.“ Ekki megi stilla fólki upp með eða á móti stóriðju eða hátækni. Jón Steindór segir að samtökin hafi lagt fram tillögur í janúar um hvernig halda megi hátæknifyrir- tækjum í landinu og skorað á stjórn- völd að bregðast við. „Þau sýna skilning en við höfum ekki séð brugðist við beiðninni. Þessum fyrirtækjum dugir ekki skilningur einn.“ Jón Steindór segir samtökin á móti því að stjórnvöld stýri upp- byggingu atvinnulífsins. Þau eigi þess í stað að móta almenna stefnu og skapa almenn starfsskilyrði fyrir atvinnulífið. Hann hvetur stjórn- völd til að skapa almennar leikregl- ur svo allir sitji við sama borð. „Þá lifir arðbær atvinnuvegur af. Ef álver verður ofan á í slíkri sam- keppni er það vel.“ Iðnaðarráðherra veitti ekki viðtal vegna anna. - gag Samtök iðnaðarins telja hátækifyrirtæki þurfa meira en skilning á vandanum: Segir fyrirtækjum mismunað JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON Hvetur stjórnvöld til að setja almennar leikreglur fyrir atvinnulífið. BRUNI Júlía Bjarney og Inga Rún Björnsdætur, ásamt Braga Ólafs- syni, kærasta Ingu Rúnar, björg- uðust með naumindum úr bruna á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöldi þegar þeim tókst að yfirgefa fjölbýlishús þar sem Júlía Bjarney og Inga Rún búa. „Skömmu fyrir tvö um nótt vakn- aði Bragi við væl í reykskynjara og hann vakti Ingu Rún í kjölfarið. Þau vöktu mig síðan og ég hringdi strax í neyðarlínuna og tilkynnti um eldinn. Síðan tókum við til fót- anna og yfirgáfum húsið í snatri,“ sagði Júlía Bjarney. Inga Rún og Bragi gengu á hljóðið í reykskynjaranum en þeim mætti þéttur reykur af gang- inum þegar þau opnuðu dyrn- ar. „Eldhúsið fylltist af reyk fljót- lega eftir að Bragi opnaði hurðina. Þau hlupu síðan út á gang og hófu að banka á dyr íbúðanna í stiga- ganginum. Nágrannar okkar vökn- uðu fljótt. Ég hljóp svo niður til þess að opna fyrir slökkviliðinu en það kom örfáum mínútum eftir að ég hafði hringt.“ Slökkviliðið hafði mikinn við- búnað vegna eldsins. Töluverður eldur logaði á efstu hæðum húss- ins en allir íbúar þess komust út og var þeim fljótlega boðið að bíða í rútu sem kom að húsinu hálftíma eftir að eldsins varð vart. „Slökkvi- liðsmennirnir hlupu um allt hús og vöktu alla íbúa með því að öskra „politiet“ og bönkuðu þeir hressi- lega á allar dyrnar í húsinu. Við biðum fyrir utan húsið í dálitla stund. Það var svolítið erfitt þar sem það var mikill kuldi. Ung hjón með nýfætt barn þurftu að bíða úti í kuldanum dálitla stund en að lokum fór þetta nú allt saman vel.“ Íslendingunum var hleypt inn í íbúðina sína tæplega fjórum tímum eftir að slökkviliðið hafði verið kallað til og sváfu þeir með alla glugga opna til þess að reyk- ræsta íbúðina almennilega. „Þetta var köld nótt en við hörkuðum þetta af okkur,“ sagði Júlía Bjarney. magnush@frettabladid.is Björguðust úr bruna í Kaupmannahöfn Mikil mildi þykir að ekki fór verr þegar eldur kom upp í fjölbýlishúsi á Norður- brú í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. Þrír Íslendingar vöknuðu við hljóð frá reyk- skynjara og kölluðu til slökkvilið sem kom fljótt á staðinn. SYSTURNAR JÚLÍA BJARNEY OG INGA RÚN Júlía Bjarney, Inga Rún og kærasti Ingu brugðust skjótt við eftir að þau urðu elds- ins vör. FRÉTTABLAÐIÐ/JÚLÍA ELDUR LOGAR GLATT Í ÞAKI HÚSSINS Eins og sést á þessari mynd logaði glatt í þaki hússins en slökkviliðið náði fljótt tökum á eldinum og kom íbúum hússins í skjól. FRÉTTABLAÐIÐ/JÚLÍA ÞAK HÚSSINS ILLA FARIÐ Þak fjölbýlishússins var illa farið eftir eldinn. FRÉTTABLAÐIÐ/JÚLÍA KONUDAGURINN, AP Tugmilljónir kvenna víðs vegar um allan heim héldu alþjóðlega baráttudag kvenna hátíðlegan í gær. Í Bangladess mættu þúsundir karla og kvenna á fjöldafundi til að mótmæla sýru-árásum á konur sem enn viðgangast þar í landi. Ellen Johnson Sirleaf Líberíu- forseti hrósaði konum fyrir þátt- töku þeirra í uppbyggingu þróun- arlandanna, og Levy Mwanawasa Sambíuforseti lofaði að gefa konum fleiri valdastöður innan ríkisstjórnar Sambíu. Jacque Chir- ac Frakklandsforseti hvatti franskar konur af innflytjenda- ættum til að velja sér lífsstíl sinn sjálfar, og minnti á að með því væru þær hvorki að brjóta lög né hafna uppruna sínum. - smk Alþjóðlegi konudagurinn: Konur fögnuðu um allan heim BARIST FYRIR RÉTTINDUM Pakístanskar konur kröfðust jafnréttis um alla Palestínu í gær, á alþjóðlega konudeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hvalveiðar í atvinnuskyni Sjávar- útvegsráðherra fullyrti á Alþingi í gær að Íslendingar stefndu að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Íslendingar hétu því við inngöngu í Alþjóðhvalveiði- ráðið að ekki yrðu hafnar atvinnuveiðar hér fyrr en í fyrsta lagi sumarið 2006. HVALVEIÐAR HEILBRIGÐISMÁL Unglæknar hafa dregið til baka kæru sem þeir höfðu sent siðanefnd Læknafélags Íslands. Hún var til komin vegna ummæla framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala, Jóhannesar M. Gunn- arssonar, um ástæðu þess að fulltrúi þeirra ætti ekki sæti í notendahóp- um sem undirbúa byggingu hátækni- sjúkrahúss. Framkvæmdastjórinn bað þá í Fréttablaðinu í gær velvirð- ingar á ummælunum. Bjarni Þór Eyvindsson, formaður Félags ungra lækna, sagði að ung- læknar hefðu frá og með gærdegin- um fengið sinn fulltrúa inn í not- endahópana. Þessu máli væri því lokið og menn væru sáttir. - jss Unglæknar í notendahópi: Hafa dregið kæru til baka VIÐSKIPTI Stjórn Sparisjóðs Vest- firðinga hefur ákveðið að flytja afgreiðslu sína á Ísafirði í nýbygg- ingu sem nú rís við Hafnarstræti og er reiknað með því að spari- sjóðurinn verði kominn í hið nýja húsnæði í haust. Húsakostur Sparisjóðsins stækkar mikið og breytir það einnig miklu að öll starfsemin verður nú á einni hæð og mögu- legt verður að fjölga starfsmönn- um bankans. Ástæða þess að þetta er gert nú er að viðskipti Spari- sjóðsins eru sífellt að aukast, bæði á sviði einstaklinga og smærri fyrirtækja. - shá Sparisjóður Vestfirðinga: Stækkar við sig og fjölgar fólki BAGDAD, AP Bandarískir og íraskir hermenn hafa á síðustu tveimur sólarhringum fundið 24 lík víðs vegar um Bagdad, höfuðborg Íraks. Átján líkanna fundust í litl- um sendiferðabíl sem skilinn hafði verið eftir. Í gær réðust vopnaðir menn inn á skrifstofur einkarekinnar örygg- isþjónustu í Bagdad og rændu fimmtíu starfsmönnum. Þessi ofbeldishrina kemur á sama tíma og hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum milli sjía, súnnía og Kúrda um stjórnar- myndun. - gb Ofbeldishrina í Bagdad: Lík finnast á víð og dreif ÆTTINGJAR SYRGJA Þessir tveir menn syrgja einn hinna látnu. Efst á lista Viðgerðir á Þjóðleikhús- inu munu kosta um 1,6 milljarð króna. Menntamálaráðherra greindi frá þessu í gær og sagði jafnframt að viðgerðum á menningarstofnunum hefði verið for- gangsraðað og að komið væri að því að ráðast í viðgerðir á Þjóðleikhúsinu. ÞJÓÐLEIKHÚS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.