Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 8
8 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað heitir eini maðurinn sem hefur verið ákærður vegna hryðju-
verkanna 11. september 2001?
2 Hverjir skoruðu mörkin tvö í leik Chelsea og Barcelona í fyrradag?
3 Hvað heitir nýjasta kvikmynd Woody Allen?
SVÖR Á BLS. 94
DANMÖRK Hitareikningur meðalfjöl-
skyldunnar í Danmörku mun hækka
um tugi þúsunda í ár, enda hefur
veturinn verið sá kaldasti í landinu í
fimmtán ár. Hækkandi orkuverð
hefur einnig neikvæð áhrif og því
mun hitunarkostnaður meðalíbúðar
í Danmörku hækka um að lágmarki
2.500 danskar krónur á ári.
Samkvæmt frétt danska ríkis-
útvarpsins jókst orkuframleiðsla í
orkuverum landins um tuttugu pró-
sent fyrstu tvo mánuði ársins
miðað við sama tíma fyrir ári. - ks
Háir hitareikningar:
Kuldakastið
Dönum dýrt
STÍGAMÓT Guðrún Jónsdóttir, for-
stöðumaður Stígamóta, vill að
skólastofnanir í landinu bregðist
með kröftugri hætti við staðreynd-
um sem fyrir liggja um kynferðis-
legt ofbeldi gagnvart börnum.
„Sautján prósent íslenskra barna
verða fyrir kynferðisofbeldi fyrir
átján ára aldur. Hvaða eru skóla-
stofnanir að gera til þess að bregð-
ast við þessum veruleika?“ sagði
Guðrún í gær þegar ársskýrsla
Stígamóta fyrir árið 2005 var kynnt
í höfuðstöðvum samtakanna að
Hverfisgötu 115.
Hanna Hjartardóttir, formaður
Skólastjórafélags Íslands og skóla-
stjóri í Snælandsskóla í Kópavogi,
segir marga grunnskóla haga innra
starfi sínu þannig að eftirlit með
kynferðislegu ofbeldi sé stöðugt
frá degi til dags. „Í sumum skólum
er skipulögð vinna á vegum hjúkr-
unarfræðinga þar sem 1. bekkjar
nemendur tala við hjúkrunarfræð-
ing um líkama sinn og þannig reynt
að hafa eftirlit með því ef grunur
leikur á kynferðislegu ofbeldi. Svo
hafa skólar haldið námskeið um
þessi mál fyrir starfsmenn þar sem
fagfólk ræðir við starfsmenn um
það hvernig mögulega sé hægt að
vera á verði gagnvart ofbeldinu.“
Ljóst er að sögn Hönnu að betur
má ef duga skal í þessum efnum.
„Það er óhugnanlega hátt hlutfall
barna sem verður fyrir ofbeldi og
full ástæða til þess að taka þessi
mál fastari tökum.“
Guðrún vill að eftirlit með kyn-
ferðisofbeldi innan skólastofnana
verði eflt og kallar eftir því að
málið verði sett betur á dagskrá
innan skólana. „Ég tel að það sé
nauðsynlegt að koma þessum
málum betur á dagskrá. Nemend-
ur fá aðstoð hjá sérkennara ef
þeim gengur illa að læra. Ef þeir
meiða sig vita þeir að hjúkrunar-
fræðingurinn hjálpar þeim. Að
sama skapi þurfa nemendur að
vita að hafi þeir verið beittir
ofbeldi sé líka hjálp að fá og þau
þurfa að vita hvert aðstoð á að
sækja.“
Fjöldi nýrra mála hjá Stígamót-
um á árinu 2005 var nokkru hærri
en árið á undan en 249 ný mál komu
inn á borð Stígamóta. Árið 2004
komu 228 ný mál til umfjöllunar hjá
Stígamótum og því fjölgaði málum
milli ára um rúm níu prósent.
Í sextán ára sögu Stígamóta hafa
4.233 einstaklingar leitað aðstoðar
hjá samtökunum og teljast ofbeld-
ismennirnir vera rúmlega sex þús-
und. Í raun eru þeir líklega nokkuð
færri þar sem einhverjir þeirra
hafa beitt fleiri en einn einstakling
ofbeldi. magnush@frettabladid.is
Sjötta hvert barn misnotað
Sautján prósent íslenskra barna verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Formanni skólastjórafélagsins finnst
hlutfallið óhugnanlega hátt. Nauðsynlegt að fræðsla um ofbeldi verði aukin innan skólana.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR FORSTÖÐUMAÐUR STÍGAMÓTA Guðrún kynnti ársskýrslu Stígamóta
fyrir blaðamönnum í gær en í henni kemur meðal annars fram að nýjum málum hjá Stíga-
mótum fjölgaði um rúm níu prósent milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVÍÞJÓÐ, AP Einn maður hefur verið
handtekinn í tengslum við rán sem
framið var á Landvetter-flugvellin-
um fyrir utan Gautaborg í Svíþjóð
á þriðjudag, að sögn talsmanna
sænsku lögreglunnar. Maðurinn,
sem er um fertugt, var handtekinn
norðan Gautaborgar seint á þriðju-
dagskvöld, örfáum klukkustundum
eftir að grímuklæddir byssumenn
rændu fé úr SAS-flugvél á vellin-
um.
Flugvélin var nýkomin frá Lond-
on og voru starfsmenn Securitas
að flytja úr henni fé yfir í bíl fyrir-
tækisins þegar byssumennirnir
birtust á rauðum jeppa, samkvæmt
fréttum Dagens Nyheter. Þrír
vopnaðir menn stukku út úr jepp-
anum, hrifsuðu féð og skelltu um
leið pakka á flugbrautina sem lög-
reglan taldi að innihéldi sprengju.
Svo óku þeir á brott í jeppanum og
dreifðu nöglum á götuna á eftir sér
til að hindra eftirför lögreglu.
Engan sakaði í ráninu og fannst
jeppinn og Volvo-bifreið skömmu
síðar skammt frá flugvellinum, en
kveikt hafði verið í báðum bifreið-
unum. Óvíst var hversu mikið fé
þjófarnir komust á brott með en
ljóst þótti að það væri töluvert.
Ránið þykir minna á annað sem
framið var árið 2002 á Arlanda-
flugvellinum í Stokkhólmi. Það mál
er enn óupplýst. - smk
Þrír vopnaðir menn rændu peningum á flugvelli í Gautaborg:
Einn í haldi vegna ránsins
PENINGUM STOLIÐ Þjófar stálu fé úr þessari
flugvél í Gautaborg á þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Níðingar í prestastétt Kaþólska
kirkjan á Írlandi skýrði frá því að 102
prestar í hennar röðum væru grunaðir
um að hafa níðst kynferðislega á ekki
færri en 150 börnum frá og með árinu
1940.
ÍRLAND
Uppnám í fataiðnaði Sökum
sívaxandi markaðshlutdeildar Kínverja
er hætta á að fataiðnaður í Suður-Afríku
leggist alveg af, en mörg vestræn fyrir-
tæki hafa lengi látið sauma fatnað sinn
þar. Stjórnvöld verða að grípa í taumana
ef halda á iðnaðinum gangandi.
Synti í átta og hálfan tíma Fötluð
kona komst í suður-afrískar sögubæk-
ur þegar hún varð bæði fyrsta konan
og fyrsti fatlaði einstaklingurinn til að
synda fimmtán kílómetra vegalengd frá
Robben-eyju úti fyrir ströndum landsins
og til baka.
SUÐUR-AFRÍKA
VERÐKÖNNUN Nokkur munur getur
verið á verði matvöru innan sömu
verslanakeðju, samkvæmt nýrri
úttekt Alþýðusambands Íslands.
Farið var í 22 verslanir um land
allt í vikunni og kannað hvort sama
verð gilti á ákveðnum tegundum
matvara í verslun úti á landi og
gildir í sömu verslun á höfuðborg-
arsvæðinu. Oftast reyndist mis-
munandi verð á sömu vöru í versl-
un Hagkaupa. Reyndust þar 12
vörur af 24 ekki á sama verði en
munurinn reyndist þó aldrei vera
meiri en tíu krónur. Eina verslana-
keðjan þar sem verð reyndist hið
sama í öllum tilvikum var Sam-
kaup. - aöe
Verðkönnun ASÍ:
Verðmunur í
sömu verslun
AFDRIF MÁLA ER BÁRUST STÍGAMÓTUM ÁRIÐ 2005
EKKI KÆRT 93,6%
KÆRT 4,3%
MÁLIÐ ER Í
VINNSLU
MÁLIÐ FELLT
NIÐUR
FANGELSI
SÝKNAÐUR
ÓÞEKKT0,3%
0,3%
0,3%
1,3%
2,0%
ÓVÍST 4,3%