Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 16
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
SKIPULAGSMÁL Pétur Þór Sigurðs-
son, hæstaréttarlögmaður og einn
eigenda Hótel Plaza í Reykjavík,
vísar því á bug að breytingar á
Hlaðvarpanum séu ekki í sam-
ræmi við byggingarleyfi. Þráinn
Bertelsson skrifar í Fréttablaðið
á laugardag að hækkun Hlaðvarp-
ans sé 130 sentimetrar en bygg-
ingarleyfið hljóði upp á aðeins 75
sentimetra. Þráinn byggir á
sínum eigin mælingum og kallar
eigendur hótelsins „húsaníð-
inga“.
Mikil óánægja er á meðal íbúa
Grjótaþorpsins og húsaverndun-
arsinna með framkvæmdir Hótel
Plaza á Hlaðvarpanum og einnig
göngubrú úr gleri sem byggð
verður yfir Fischersund á milli
hótelsins og Hlaðvarpans.
Minjavernd, sem staðið hefur
fyrir endurbyggingu nokkurra
húsa í Aðalstræti, kærði þá breyt-
ingu á deiliskipulagi sem bygg-
ingarleyfi Hlaðvarpans byggði á.
Þorsteinn Bergsson, framkvæmd-
astjóri Minjaverndar, segir að
miður sé að eftir nær tólf ára
starf Minjaverndar, við uppbygg-
ingu eldri húsa við Aðalstræti,
hafi þau viðhorf sem félagið
hefur unnið eftir ekki verið höfð
til hliðsjónar, heldur ef eitthvað
er, ýtt til hliðar þegar afgreiddar
voru byggingarheimildir að Vest-
urgötu 3. Minjavernd var eigandi
húsanna við Aðalstræti 2 og Vest-
urgötu 1 og stóð fyrir endurbygg-
ingu þeirra. Þorsteinn segir mik-
inn mun á hvernig þar var farið
með hús við endurgerð og því
hvernig nú sé staðið að málum
varðandi Hlaðvarpann.
Við sölu eigna Minjaverndar
munu kærur félagsins til úrskurð-
arnefndar skipulags- og bygging-
armála falla niður, en Þorsteinn
staðfestir að sú hækkun húsa
Hlaðvarpans sem heimiluð hafi
verið sé 75 sentimetrar og ekki
fari á milli mála að Þráinn Bert-
elsson hafi rétt fyrir sér og hækk-
unin sé 130 sentimetrar. Þor-
steinn segir að það sé mál sem
byggingaryfirvöld borgarinnar
hljóti að taka á.
Magnús Sædal Svavarsson,
byggingarfulltrúi Reykjavíkur-
borgar, segist ekkert hafa heyrt
af málinu og ekki séð skrif Þrá-
ins. Hann geti því ekki tjáð sig
um hvort satt sé eða hvort og
hvernig byggingaryfirvöld muni
bregðast við.
svavar@frettabladid.is
Segja húsið
vera of hátt
Íbúar í Grjótaþorpi halda því fram að ekki hafi verið
farið eftir byggingarleyfi við breytingar á Hlaðvarp-
anum. Bull, segir eigandinn. Byggingarfulltrúi hefur
ekkert heyrt og treystir sér ekki til að tjá sig.
FRÁ GRJÓTAÞORPI Íbúar gagnrýna breytingar á Hlaðvarpanum og ásýnd Fischersunds.
Þeir eru einnig óánægðir með umgengni verktakans og óttast að viðkvæmur gróður verði
eyðilagður. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn
Álftaness hefur samþykkt að
greiða foreldrum barna og ungl-
inga í sveitarfélaginu á aldrinum
sex til sextán ára fimmtán þúsund
krónur til að greiða niður þátttöku-
gjöld í íþrótta- og tómstundastarfi.
Gildir þar einu hvort það er
ástundað utan eða innan sveitar-
félagsins. Guðmundur Gunnars-
son bæjarstjóri segir markmiðið
vera að gera börnum og ungling-
um kleift að stunda íþrótta- og
tómstundastarf óháð efnahag fjöl-
skyldna þeirra og einnig að efla
forvarnastarf á Álftanesi. - jse
Sveitarfélagið Álftanes:
Styrkur fyrir
æskulýðinn
Kosningaloforð Leiðtogi Verka-
mannaflokks Ísraels lofaði í gær að
fjarlægja 105 óleyfilegar útvarðstöðvar
landnema á Vesturbakkanum, sigri
flokkur hans í kosningunum sem fram
fara þar í landi í lok þessa mánaðar.
ÍSRAEL
STRASSBORG, AP Mannréttindadóm-
stóll Evrópusambandsins ákvað á
þriðjudag að bresk kona hefði ekki
rétt til þess að nota frosna fóstur-
vísa sína til að eignast barn án
samþykkis mannsins sem gaf
sæðið.
Natalie Evans vildi fá að nota
fósturvísana eftir að krabba-
meinsmeðferð gerði hana ófrjóa.
Fyrir meðferðina létu hún og
þáverandi unnusti hennar búa til
og frysta sex fósturvísa, en þegar
þau slitu samvistum dró maðurinn
samþykki sitt við notkun fóstur-
vísanna til baka.
Bresk lög fyrirskipa að sam-
þykki beggja foreldra þurfi að
liggja fyrir á öllum stigum glasa-
frjóvgvunar. Evans, sem er 34 ára,
leitaði til Mannréttindadómstóls
Evrópusambandsins í von um að
hann leyfði notkun fósturvísanna
þrátt fyrir neitun föðurins en dóm-
ararnir sögðu neitun mannsins
standa og að fósturvísar ættu ekki
sjálfstæðan rétt á lífi.
Evans segist ætla að áfrýja og
verður fósturvísunum ekki eytt
fyrr en eftir þau málaferli. Jafn-
framt bað hún fyrrverandi unn-
usta sinn um að endurskoða
ákvörðun sína en hann sagði blaða-
mönnum að hann vildi einfaldlega
ákveða sjálfur hvort og hvenær
hann eignaðist fjölskyldu. - smk
Bresk kona tapaði máli fyrir Mannréttindadómstól Evrópusambandsins:
Fær ekki að nota fósturvísa
NATALIE EVANS Bresk kona sem fær ekki
að nota fósturvísa sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Byrjendanámskeið
Vinsælt námskeið á sérlega hagstæðu verði ætlað byrjendum í
tölvunotkun á öllum aldri. Allar greinar eru kenndar frá grunni
og farið rólega í námsefnið með miklum endurtekningum. Á
þessu námskeiði er allt tekið fyrir sem byrjandinn þarf til að
komast vel af stað og öðlast sjálfsöryggi við tölvuna.
Windows tölvugrunnur
Word ritvinnsla
Excel kynning
Internetið og tölvupóstur
Kennt er á mánudögum og
miðvikudögum. Hægt að velja um
morgunnámskeið kl 9 - 12
og kvöldnámskeið kl 18 - 21.
Lengd: 60 std. Kennsla hefst 13. mars
og lýkur 8. maí (Páskafrí frá 6. til 19.
apríl). Verð kr. 36.000,- (Allt
kennsluefni innifalið)
Almennt tölvunám
Sérstaklega hagnýtt og markvisst námskeið ætlað þeim sem
hafa einhvern tölvugrunn að byggja á eða hafa reynslu af
tölvuvinnu en vilja auka við þekkingu sína, hraða og færni.
Mikið lagt uppúr vinnusparandi aðgerðum í tölvu.
Windows XP og skjalvarsla
Word
Excel
Internet
Outlook tölvupóstur og dagbók
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum.
Hægt að velja um morgunnámskeið kl 9 - 12
og kvöldnámskeið kl 18 - 21.
Lengd: 63 std.
Kennsla hefst 16. mars og lýkur 9. maí.
(Páskafrí frá 7. til 17. apríl)
Verð kr. 39.900,- (Allt kennsluefni innifalið)
T Ö L V U N Á M
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
� ����������� ���������������������������
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram
til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
4. Breytingar á samþykktum:
Tillaga um að stjórn bankans fái heimild til að hækka hlutafé um allt að
1.250.000.000 króna að nafnverði, með áskrift allt að 125.000.000 nýrra
hluta. Lagt er til að hluthafar falli frá forgangsrétti sínum og að stjórn verði
heimilt að ákveða að áskrifendur greiði fyrir hina nýju hluti að hluta eða öllu
leyti með öðru en reiðufé.
Núverandi ákvæði samþykkta sem varða heimildir stjórnar til hlutafjár-
hækkunar verði samtímis felld niður.
5. Stjórnarkjör.
6. Ákvörðun stjórnarlauna.
7. Kosning endurskoðanda.
8. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eigin hlutabréf.
9. Önnur mál.
Fundarstörf fara fram á ensku.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upp-
haf fundarins.
Stjórn Kaupþings banka hf.
Aðalfundur ������������������� 2006 verður
haldinn í ������������������������������
�������� og hefst klukkan �����.
AÐALFUNDUR KAUPÞINGS BANKA