Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 26
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR26
Umsjón: nánar á visir.is
Auglýsingastofan Fíton hefur
eignast fimmtungshlut í Öflun,
sem vinnur að yfirtöku á Office
Line, stærsta smásala Norður-
landa með Apple-vörur.
„Við komum inn í hluthafahóp
Öflunar til að fjármagna yfirtök-
una og styrkja Öflun til frekari
verkefna,“ segir Þormóður Jóns-
son, framkvæmdastjóri Fítons.
Um leið ætlar Fíton að efla sig
sem auglýsinga- og markaðsfyrir-
tæki.
Aðrir stórir hluthafar eru
meðal annars Bjarni Ákason og
Frosti Bergsson.
Yfirtakan á Office Line er í
fullum gangi og hefur Öflun eign-
ast um áttatíu prósent hlutafjár í
norska félaginu. Verðmæti norska
fyrirtækisins nemur um 1,2 millj-
örðum króna. - eþa
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.298 -3,02% Fjöldi viðskipta: 815
Velta: 6.199 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,90 +1,58% ... Alfesca
3,91 -2,01%... Atorka 6,00 -1,64% ... Bakkavör 50,30 -1,37% ...
Dagsbrún 6,94 +0,43% ... FL Group 24,80 -4,98% ... Flaga 3,79
+0,00% ... Íslandsbanki 19,40 -3,48% ... KB banki 900,00 -3,33%
... Kögun 66,00 -0,75% ... Landsbankinn 27,50 -5,17% ... Marel
69,00 -0,29% ... Mosaic Fashions 17,50 -0,57% ... Straumur-Burða-
rás 18,60 -4,12% ... Össur 111,50 +0,45%
MESTA HÆKKUN
Grandi +5,34%
Actavis +1,58%
Atlantic Petroleum +1,19%
MESTA LÆKKUN
Landsbankinn -5,17%
FL Group -4,98%
Straumur-Burðarás -4,12%
Krónan féll um þrjú
prósent fyrri partinn í
gær í kjölfar frétta af
viðskiptahalla við út-
lönd og nýrrar skýrslu
verðbréfafyrirtækisins
Merrill Lynch þar sem
dregin er í efa láns-
hæfiseinkunn íslensku
bankanna. Merrill Lynch
segist ekki spá krísu, en
telur innbyggða áhættu í
bankakerfinu.
Gengi krónunnar og íslensku bank-
anna lækkaði um rétt þrjú prósent í
gærmorgun. Eru þar talin koma inn
áhrif nýrrar skýrslu verðbréfafyr-
irtækisins Merrill Lynch um stöðu
bankanna og nýbirtar tölur Seðla-
banka Íslands um að viðskiptahalli
hafi nálægt því tvöfaldast milli
ára.
Merrill Lynch telur óvissu um
hvort mjúk lending náist í íslenska
hagkerfinu og telur matsfyrirtæk-
in Moody‘s og Fitch hvorugt hafa
tekið nægilegt tillit til „kerfis-
lægrar áhættu“ bankanna í láns-
hæfismati sínu á þeim. Skýrslan er
að einhverju leyti samhljóma álit-
um greiningarfyrirtækjanna Barc-
lays Capital Research og Credit
Sights í byrjun síðasta mánaðar.
Skýrsla Merrill Lynch er þó heldur
ítarlegri og gerir ákveðinn grein-
armun á stöðu bankanna. Íslands-
banki er sagður standa einna best
og komu þau áhrif strax fram á
erlendum skuldabréfamörkuðum í
gær. Íslandsbanki hefur notið
aðeins betri kjara í útgáfu og jókst
sá munur í gærmorgun þó svo að
kjör allra bankanna hafi versnað
eitthvað. Álag á vexti nam í gær 55
punktum hjá Íslandsbanka, 75 hjá
KB banka og 79 punktum hjá
Landsbankanum, en var daginn
áður 47, 58, og 68 fyrir sömu
banka.
Tómas Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Íslandsbanka, segir almennt ekki
margt koma á óvart í skýrslu
Merrill Lynch. „Hún er í takt við
svipuð skrif sem við höfum séð
undanfarið. Margt er samt óum-
deildar staðreyndir, en neikvæð
túlkun á þessum staðreyndum er
ekki alltaf vel rökstudd.“ Hann
segir hins vegar skýra aðgreiningu
á stöðu Íslandsbanka og annarra
banka í skýrslunni og hún hafi
komið fram á markaði í gær. „Í
skýrslunni er sérlega jákvæð
umfjöllun um viðskiptamódel
Íslandsbanka og stöðugleikann í
tekjum hans,“ segir hann og bendir
á að á þessu ári hafi bankinn aflað
fjár sem nemi meiru en endurfjár-
mögnun ársins.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, áréttar að
bankakerfið standi geysilega sterkt
og hafi í raun aldrei verið sterkara.
Hann segir aukin umsvif bankanna
hafa vakið áhuga fleiri greiningar-
deilda. „En það sem okkur hefur
þótt einkenna þessar nýju grein-
ingar er að í þeim gætir misskiln-
ings og að hluta til vanþekkingar á
íslenskum aðstæðum,“ segir hann
og kveður bankann hafa komið á
framfæri leiðréttingum. „Og það
hefur væntanlega áhrif á frekari
umfjöllun.“
Halldór segir bankann standa
vel undir lánshæfismati sínu og
telur að í samanburði Merrill Lynch
á bönkunum gæti ákveðins mis-
skilnings. „Landsbankinn kemur
mjög sterkt út úr hvaða saman-
burði sem er og ályktanir sem
dregnar eru í skýrslunni ekki fylli-
lega byggðar á réttri greiningu
talna.“ Hann segir þó mikilvægast
að minna á að þeir sem greint hafi
bankana í um áratug og veiti form-
legt lánshæfismat, Moodys og
Fitch, hafi á síðustu dögum staðfest
mat sitt á bönkunum og á síðustu 12
mánuðuðum báðir hækkað láns-
hæfismatið á Landsbankanum.
olikr@frettabladid.is
EVRUMERKI VIÐ SEÐLABANKA EVRÓPU Í FRANKFURT Í ÞÝSKALANDI Íslenskir bankar fjár-
magna starfsemi sína að stórum hluta með útgáfu skuldabréfa á erlendum fjármálamörk-
uðum. Ný skýrsla Merrill Lynch segir að kjör þeirra eigi að vera verri en ráðsettra evrópskra
banka vegna áhættu sem byggð sé inn í íslenska bankakerfið. NORDICPHOTOS/AFP
Segja áhættu kalla á hærra
vaxtaálag skuldabréfa
Sniglar hjá Atlantsolíu
Samkvæmt könnun sem gerð var á vef Sniglanna,
bifhjólasamtaka lýðveldisins, kaupa þeir flestir
eldsneyti hjá Atlantsolíu. Á vegum stjórnar sam-
takanna er hins vegar unnið að því að semja við
olíufélögin um afslátt á fleiru en eldsneyti einu.
Í könnuninni, sem gerð var í liðinni viku og
um 200 manns tóku þátt í, kom fram að
34 prósent Sniglanna versla við Atlants-
olíu, 19 prósent við Olís, 16 prósent við
Esso, 14 prósent við Skeljung og 14
prósent sögðust kaupa eldsneyti þar
sem ódýrast væri hverju sinni.
Vilja semja um meiri
viðskipti
Jóhann Ágúst Jóhannsson,
vefstjóri Sniglanna, segir
reynt að vera með nýja
könnun vikulega og að því
gætt að ekki sé svindlað.
„Þetta er náttúrlega ekki
mjög vísindaleg könnun
samt,“ segir hann en
telur þó að þarna
sé að finna nokkra
vísbendingu um
kauphegðan Snigl-
anna.
Jóhann Ágúst
segir að á vegum
stjórnar samtakanna
sé unnið að því að fá
afslátt hér og þar fyrir
félagsmenn. „Og ég
veit til þess að viðræður
standa yfir við eitt olíu-
félaganna en þar kemur
náttúrlega miklu meira inn
í en bara bensín.“
Peningaskápurinn...
FL Group hefur keypt tæplega 9
prósenta hlut í norska fjármála-
fyrirtækinu Aktiv Kapital.
Markaðsvirði hlutarins er um
4,7 milljarðar króna. Starfsemi
félagsins skiptist í kaup á lána-
söfnum sem eru í vanskilum, inn-
heimtu viðskiptakrafna og
umsýslu reikninga. Starfsemin
er í ellefu löndum og var hagnað-
ur í fyrra um 2,5 milljarðar
króna. - jab
Kaupa í Aktiv
Kapital í Noregi
ÞORMÓÐUR JÓNSSON, FRAMKVÆMDA-
STJÓRI FÍTONS Félagið hefur keypt tuttugu
prósent í Öflun, sem vinnur að yfirtöku á
Office Line.
Fíton eignast
fimmtung í Öflun
Umsvif voru óvenju mikil á fast-
eignamarkaði í síðustu viku. Geng-
ið var frá 206 kaupsamningum,
160 samningum um kaup á eignum
í fjölbýli, 30 kaupsamningum um
sérbýli og 16 samningum um ann-
ars konar eignir.
Meðalupphæð samnings nam
23,6 milljónum króna, að því er
fram kemur í hálffimm fréttum KB
banka, þar sem vísað er í upplýsing-
ar frá Fasteignamati ríkisins. ■
Mikil umsvif
í fasteignum
JÓHANNES GEORGSSON FRAMKVÆMDA-
STJÓRI FLYME Farþegum FlyMe heldur
áfram að fjölga.
Enn eykst fjöldi þeirra sem ferð-
ast með sænska lággjaldaflugfé-
laginu FlyMe. Farþegum fjölgaði
um 49,5 prósent í febrúar saman-
borið við sama mánuð í fyrra en
sams konar aukning var 44,4 pró-
sent í janúar.
Alls ferðuðust 68.600 farþegar
með FlyMe í febrúar.
Sætanýting var 61,9 prósent í
febrúar og jókst um 2,5 prósentu-
stig á milli ára. - eþa
Kröftug upp-
sveifla FlyMe
MARKAÐSPUNKTAR...
Verð á norskum laxi hefur hækkað
verulega sökum mikillar eftirspurnar,
meðal annars því margir kjósa að borða
lax í stað fuglakjöts af hræðslu við
fuglaflensu.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sölu til þriðja aðila hjá
Actavis Group, keypti í gær 3.333.333
hluti í félaginu á genginu 57 og seldi
1.052.632 hluti á sama gengi.
Evrópsk hlutabréf náðu þriggja vikna
lágmarki í gær vegna vaxandi áhyggna
af að hækkandi stýrivextir um allan
heim muni draga úr hagvexti.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
8
2
2
Aðalfundur Símans hf. verður haldinn miðvikudaginn
22. mars 2006 kl. 17.00 á Nordica hotel sal H og I.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að berast
stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins
liggja frammi á skrifstofu Símans, Ármúla 25, hluthöfum til sýnis
viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Símans
Dagskrá:
1. Tillaga um breytingu á gr. 19.1. í samþykktum þess efnis að
stjórnarmenn verði allt að sjö talsins.
2. Tillaga um að gr. 26.2. í samþykktum félagsins falli niður.
3. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa
hluti í félaginu samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995.
4. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
5. Önnur mál löglega fram borin.
Aðalfundur
2006