Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 34
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR4
Versluninni Kronkron hefur verið
vel tekið og næstu helgi verður
opnuð stækkuð og betri verslun
með nýjum vörumerkjum. Þá eru
vor- og sumarvörurnar farnar að
streyma inn í verslunina frá
merkjum eins og Humanoid og
Henrik Wibskov. Skærir litir koma
sterkir inn, létt efni og stuttbuxur.
Talsvert er um pils sem eru víð að
ofan og þröng að neðan, með svo-
kölluðu túlípanasniði.
Stuttbuxur fyrir karla eru
áberandi bæði sem kvartbux-
ur og hefðbundnar stuttbuxur,
og koma þær jafnvel með
fínum jökkum. Boli, kjóla,
skyrtur, peysur, skó, fylgihluti
og margt fleira er þar að
finna. Svarti liturinn heldur
áfram inn í sumarið í þeim fata-
línum sem er að finna hjá Kron-
kron en hvíti liturinn er ekki eins
sterkur.
Flipp og fágun
í Kronkron
Léttur kjóll úr sumarlínu Humanoid.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grár bolur frá
Humanoid.
Græn og grá prjónapeysa frá Siv Ftoldal.Renndur jakki úr sumarlínu Henrik
Wibskov.
Litrík hettupeysa frá
Henrik Wibskov.
Svört kvenblússa úr sumarlínu
Henrik Wibskov.
Við hjá Klipparanum bjóðum
Ágústu Skúladóttur velkomna í hópinn
Björgvin, Linda, Ingibjörg og Systa
opið virka daga til 20 sími 533 1311
Rýmingarsala
Opið laugardag frá 11-16
Gullbrá, Nóatúni 17 • Sími 562 4217
Útsölustaðir: apótek og snyrtivöruverslanir.
Nú nýtt*
Hin frábæra glernaglaþjöl og hin frábæra
þriggja flata þjöl frá Trind í
Magic Boxi
Skaðlaus aðferð til að verða
brún og sæt.