Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 42
2 ■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Við giftum okkur á annan í jólum
árið 1950 og vorum þá búin að þekkj-
ast frá því í apríl það ár. Athöfnin
fór fram heima hjá sr. Bjarna dóm-
kirkjupresti. Kirkjan hefur sjálfsagt
verið upptekin og sennilega höfum
við heldur ekki haft efni á kirkju-
brúðkaupi. Ríkidæmið var nú ekki
mikið,“ segir Árni þegar þau hjón
eru beðin að rifja upp brúðkaups-
daginn. Kristín tekur við frásögn-
inni. „Svo var smá kaffisopi heima
hjá systur minni á eftir og þar mætti
eitthvað af systkinum okkar en um
kvöldið fór Árni niður í leikhús og
giftist þar annarri konu. Ég lét mér
það í léttu rúmi liggja!“ Kristín er
svo fjörleg að ekki er hægt að efast
um að hún segi satt. „Já, ég tví-
gifti mig sama daginn, sitt hvorri
konunni en ég man ekkert hvað sú
seinni hét,“ segir Árni og hlær. Svo
heldur hann áfram að lýsa alvöru
brúðkaupinu.
„Við þurftum að fá svaramenn
og það voru faðir Stínu og systir
hans. En þau gátu ekki komið
svo við fórum bara með blöð til
prestsins. Það voru svaramennirn-
ir. Við vorum bara ein inni í stofu
hjá presthjónunum í húsi þeirra
við Lækjargötuna. Þetta gekk allt
vel fyrir sig og við vorum pússuð
saman. Sjálf vorum við kórinn og
prestsfrúin Áslaug spilaði undir.
Það voru sungnir tveir sálmar og
annar þeirra var dálítið hástemmd-
ur í tónum og þegar sr. Bjarni komst
ekki nógu hátt þá hætti hann og
þegar lagið var komin niður í hæfi-
lega hæð fyrir hann þá kom hann
inn í aftur. Þetta var alveg ágætt.“
Kristín hristir höfuðið kæruleysi-
lega þegar hún er spurð um brúð-
arkjólinn. „Ég keypti mér ekkert
sérstakt fyrir þessa athöfn og man
ekkert í hverju ég var.“ „Hún var nú
aðeins farin að þykkna undir belti
en hún var smart klædd. Það man
ég,“ upplýsir Árni.
Engin mynd er til af brúðhjón-
unum Árna og Kristínu frá 1950 en
á fimmtíu ára hjúskaparafmælinu
var þeim samt gefin glæsileg brúð-
kaupsmynd. „Okkur datt í hug að
láta gifta okkur aftur nú á seinni
árum og þá í kirkjunni í Hrísey en
það varð ekkert af því. Hinsvegar
komu krakkarnir okkar með falsaða
mynd til okkar í fimmtíu ára hjú-
skaparafmælið. Það var brúðkaups-
mynd af dóttur okkar og tengdasyni
en þau höfðu skipt um hausa og
sett gamlar andlitsmyndir af okkur
í stað þeirra réttu. Svo sungu þau
brúðarmars fyrir okkur,“ segir Árni
hlæjandi og nær í myndina.
Þótt giftingarathöfnin hafi verið
látlaus hjá Árna og Kristínu fyrir
55 árum og lítið tilstand í kringum
hana hefur hjónabandið enst og enn
eru þau með blik í augum er þau
horfa hvort á annað. Hver er upp-
skriftin? „Okkur hefur alltaf komið
vel saman og við virðum hvort
annað. Í mörg ár rerum við saman
til fiskjar á sumrin og nú förum við
daglega saman í sund,“ segir Kristín
brosandi og lítur á Árna. „Það er
bara eins og við höfum verið ætluð
hvort öðru.“
Eins og við höfum verið
ætluð hvort öðru
Rúm 55 ár eru liðin síðan Árni Tryggvason leikari og Kristín Nikulásdóttir kona hans
gengu í það heilaga. Þau eru samt eins og nýtrúlofuð.
Árni og Kristín hafa fylgst að í fimmtíu og fimm ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Börn Árna og Kristínar settu gamlar
andlitsmyndir af foreldrum sínum inn á
nýlega brúðkaupsmynd og gáfu þeim hana
í gullbrúðkaupinu.
Brúðkaup geta verið kostnaðarsöm
og er þar veislan stærsti útgjalda-
liðurinn. Margir bera það fyrir sig
að þeir muni aðeins gifta sig einu
sinni og því best að gera það með
stæl. Fólk hefur þó mismikið fé á
milli handanna og er alger óþarfi
að bjóða mörg hundruð manns og
splæsa í dýrasta kampavínið svo
að dagurinn verið fullkominn, rétti
makinn og góðir vinir nægja til
þess.
Til eru fjölmargar leiðir til að
halda veislu án þess að eyða of
miklu. Til að byrja með er best að
ákveða hversu miklum peningum
má eyða í brúðkaupið. Næst skal
skipta fjárhæðinni niður í kostnað-
arliði, til dæmis hversu miklu má
eyða í fatnað, blóm og skreytingar,
og loks veisluna sjálfa. Kostnaðar-
mesti liðurinn við veisluhöldin er
alltaf áfengið. Ef brúðhjónin hafa
lítið fé á milli handanna er hægt að
stinga upp á því að veislugestir gefi
ekki gjafir, heldur komi þess í stað
með eina eða tvær vínflöskur til
að hafa með matnum. Auk þess er
hægt að hafa kaffiboð að deginum
til og hreinlega sleppa öllu áfengi.
Partí í heimahúsi getur einnig
verið skemmtilegt, þar sem boðið
er upp á smá bjór og ef til vill smá
kampavín en partígestir mæta að
öðru leyti sjálfir með veigarnar.
Heimabruggað áfengi er kostur sem
brúðhjón ættu aldrei að hugleiða,
þó svo það kosti minna. Slíkt vín
fer misvel í fólk og getur hreinlega
eyðilagt stemninguna. Salur og
matur geta kostað mikið en heil-
margt er hægt að gera til að draga
úr þeim kostnaði. Jafnvel er hægt
að halda veisluna í heimahúsi og
notast við allt húsrými, þar á meðal
bílskúrinn. Með hvítum lökum,
kertum, rósabúntum keyptum beint
af rósabóndanum og nokkrum silki-
borðum er hægt að breyta hvaða
heimili sem er í veislusal.
Langborð er hægt að útbúa með
spónaplötum og búkkum, auk þess
sem hægt er að leigja borð og bekki
víða. Hvað matinn varðar er hægt
að fá stórfjölskylduna til að leggj-
ast á eitt og útbúa matinn. Einn-
ig er hægt að útbúa súpu, baka
heilan helling af brauði og bjóða
upp á salat með. Ostabakkar og
súkkulaðikaka í lok máltíðar ættu
svo að gera alla glaða.
Aðalmálið er þó að hafa góðan
veislustjóra, vera afslappaður og
hlæja mikið. Þá er veislunni borg-
ið, sama hvar hún er og hvað er á
borðum.
Aðalmálið er að vera
afslappaður og hlæja
Hægt er að fara ýmsar leiðir til að draga úr kostnaði við
brúðkaup.
Bílskúrinn getur breyst í veislusal með smá hugmyndaflugi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Boðskortin þurfa að berast tíman-
lega til gesta, sérstaklega ef brúð-
kaupið er um sumar. Þá er fólk á
ferð og flugi og helgar skipulagð-
ar langt fram í tímann. Ágæt regla
er að senda út boðskortið þremur
mánuðum fyrir brúðkaupið. Á boðs-
kortinu þarf að koma fram nafn
brúðhjónanna, staðsetning á
athöfn og veislu, auk
t ímase tn inga .
Afar mikil-
vægt er að þar
komi einnig
fram símanúm-
er og netföng
þar sem fólk getur
tilkynnt komu sína
eða afþakkað boðið,
og þá þarf að setja
fram tiltekna dagsetn-
ingu og biðja fólk að
svara fyrir þann tíma.
Boðskort eru oftast hvít, en það
getur verið gaman að breyta
til og hafa ein-
hvern lit í kortinu. Skreyta það með
blómamynstri, eða jafnvel dopp-
um sem gerir það öðruvísi. Þar
að auki getur verið fallegt að
hafa umslagið í einhverjum
lit, sem gefur viðtakanda
strax til kynna að inni-
haldið sé spennandi.
Nú er mikið í tísku
að hafa ljósmynd
af brúðhjónun-
um í kortinu.
S k e m m t i -
legast er að
hafa nýlega
mynd af þeim, eða
jafnvel gamla mynd
frá þeim tíma sem parið
var að byrja saman. Barna-
myndir af brúðhjónunum, láta
kortið frekar líta út eins og verið sé
að bjóða til afmælisveislu en brúð-
kaups.
Boðskortin á réttum tíma
Boðskort frá Stafrænu hugmynda-
smiðjunni í Hafnarfirði.