Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 46
6 ■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Anna Kristín Magnúsdóttir hjá Brúð-
arkjólaleigu Dóru segir að brúðar-
kjólar fylgi alltaf ákveðnum tísku-
straumum eins og annað. „Flestar
konur taka auðvitað þá kjóla sem
klæða þær best en kjólarnir breytast
samt alltaf aðeins eftir því hvað er í
tísku hverju sinni,“ segir hún.
Anna segir að núna sé tjull mest
áberandi. „Tjullpils eru áberandi og
tjull yfir kjólana líka. Kjólarnir eru
svolítið nýtískulegir og en það er
líka verið að fara svolítið aftur.“ Hún
segir að nælur séu ennþá mjög mikið
notaðar á kjólana. „Slaufurnar eru að
detta út en ennþá eru notaðir borðar
og þá eru settar nælur í þá.“ Anna
segir að það sé ennþá svolítið um að
konur vilji hafa rykkingu í mittið og
blúndur. „Sá stíll er svolítið gamal-
dags og þeir kjólar hefðu alveg getað
verið í notkun í kringum 1920.“ Hún
segir að kjólarnir séu ýmist með
miklum pilsum eða mjög einfald-
ir og að hlýralausir kjólar séu enn
mjög vinsælir. „Við erum með mikið
úrval af kjólum og í ár ákváðum við
að taka smá áhættu. Við tókum inn
svolítið öðruvísi kjóla, með krögum
og með miklu tjulli, þannig að við
erum með alls konar kjóla.“
Anna segir að kjólarnir komi í
ýmsum litum. „Kjólarnir eru í hvítu,
beinhvítu og gylltu. Beinhvítt er vin-
sælast en ástæðan fyrir því er sú að
það klæðir flestar íslenskar konur
betur en hvítt, frekar en sú að þær
eigi börn.“
Fylgihlutir eru mjög vinsælir að
sögn Önnu. „Margar konur eru mjög
hrifnar af svona litlum ermapeysum
úr blúndu og slör eru ennþá mjög
vinsæl. Við vorum til dæmis að fá
dálítið mikið af nýjum slörum sem
eru mjög falleg.“
María Gunnarsdóttir, kjólameist-
ari og eigandi MG saumastofu, seg-
ist ekki verða eins vör við að tísku-
straumar hafi áhrif á viðskiptavini
hennar. „Konurnar sem koma til
mín hafa mjög ólíkan smekk og þær
leggja meiri áherslu á hvað klæðir
þær vel heldur en hvað er í tísku, en
viðskiptavinir mínir eru náttúrlega
konur sem vilja hafa kjólana eftir
sínu höfði,“ segir hún.
María segist hins vegar hafa tekið
eftir því að konur hafi viljað leggja
meira í kjólana síðustu ár. „Kjólarn-
ir eru ekki eins einfaldir og það er
meira um handsaum. Konurnar vilja
hafa kjólana bróderaða, með perlu-
saumi og ýmsu þess háttar. Konurnar
vilja hafa kjólana vandaða og hugsa
ekki eins mikið um verðið og áður.“
María er sammála Önnu um það
að konur vilji kjóla í ýmsum litum.
„Það er mikið um beinhvítt og gyllt.
Konurnar vilja geta notað kjólinn
áfram og þess vegna velja þær síður
hvítt. Fólk er líka orðið aðeins eldra
þegar það giftir sig í dag og þess
vegna vill það kannski ekkert endi-
lega hvítt.“
Meira lagt í kjólana en áður
Brúðarkjólar fylgja ákveðnum tískustraumum eins og aðrir kjólar en þó skiptir það
flestar konur meira máli að kjólinn klæði þær vel en að hann fylgi nýjustu tísku.
Anna Kristín Magnúsdóttir hjá Brúðarkjólaleigu Dóru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
María Gunnarsdóttir kjólameistari á MG
saumastofu. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Blóm í hendi eru flestum brúð-
um ómissandi. Blómum skreyttur
brúðkaupsdagur er langt frá því að
vera nýr af nálinni því rómverskar
brúðir, og reyndar brúðgumar líka,
báru blómakransa um hálsinn á sér
sem tákn um langlífi og frjósemi.
Einnig hefur viðgengist í hundr-
uð ára að bera blóm, hvítlauk og
jurtir sem gefa frá sér sterka lykt á
brúðkaupsdaginn til þess að fæla
frá illa anda.
Sú venja að brúðir kasti vend-
inum til kvenkyns ættingja sinna
og vinkvenna er ekki nándar nærri
jafn gömul og brúðarvöndurinn
sjálfur. Fyrstu heimildir um þessa
hefð koma frá Bandaríkjunum
en síðan hefur hún náð mikilli
útbreiðslu. Reyndar má við bæta
að sums staðar er líka vani að
brúðgumar kasti ermahnöppunum
sínum í sama tilgangi!
Kastaðu vendinum!
Rætur brúðarvandarins liggja aftur til Rómarveldis.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Brúðarkjólar frá Brúðarkjólaleigu Dóru.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN