Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 54
14 ■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Við val á brúðkaupsferðum er best
að velja sér ákveðið svæði og kanna
til hlítar hvað er á boðstólum og
miða ferðina út frá því. Erlendis má
brjóta upp sólarstrandavanann og
skella sér í ævintýraferð eða heim-
sækja framandi heimshluta.
Hvort sem ferðast er innanlands eða
utan ætti brúðkúpsferðin að vera sú
ferð sem ekkert er sparað til og skil-
ur eftir margar góðar minningar.
Ferðaskrifstofan Prima Embla er
með gott framboð af mögulegum
brúðkaupsferðum. Með sérsamning-
um við helstu lúxushótel, flugfélög
og skipafélög heims getur ferða-
skrifstofan boðið gott verð. Meðal
annars er veittur allt að 75 prósenta
afsláttur af gistingu fyrir brúðina í
brúðkaupsferðum til Máritíus, sem
er meðal vinsælustu áfangastaða
brúðhjóna víða um heim og ýmis
tilboð eru í fyrir brúðhjón.
Máritíus mætti kalla himneska
paradís og er eftirsóttur áfanga-
staður þeirra sem kjósa gott lofts-
lag og glæsilegan aðbúnað. Eyjan
er aðeins um 865 ferkílómetrar að
stærð en afar fjölbreytt frá nátt-
úrunnar hendi. Hótelin eru hvert
öðru glæsilegra enda er eyjan
áfangastaður efnameiri ferðamanna
hvaðan æva af. Aðalgististað-
ur Prímu Emblu á Máritíus er hið
stórglæsilega hótel Legends sem
er innréttað eftir hugmyndafræði
Feng Shui. Fjölbreytt afþreying er
í boði, áhugaverðar skoðunarferðir
og skemmtilegt mannlíf. Þessa ferð
má skoða nánar á www.embla.is
Snæfellsnes er einn fallegasti
staður Íslands og kjörinn áfanga-
staður fyrir brúðhjón. Hótel Búðir
eru glæsilegt hótel með rómantísku
andrúmslofti og þar er meðal ann-
ars boðið upp á Deluxe-herbergi
sem hentar vel fyrir brúðkaups-
ferðina. Deluxe-herbergið er vel
útbúið fyrir rómantískar stundir
með frístandandi baðkari á miðju
herbergis og stórbrotið útsýni yfir
Snæfellsjökul.
Mikið er um afþreyingu í
nágrenni hótelsins. Á Arnarstapa
er starfrækt vélsleðaleiga sem fer
með áhugasama á topp Snæfells-
jökuls á vélsleða eða snjótroðara.
Frá Arnarstapa, Ólafsvík og Stykk-
ishólmi er hægt að fara í sjóferðir
af ýmsu tagi, svo sem hinnar þekktu
hörpuskels- og eyjaskoðunarferð-
ir frá Stykkishólmi, en einnig hafa
sjóstangaveiði- og hvalaskoðun-
arferðir frá Arnarstapa og Ólafsvík
verið afar vinsælar. Margar skemmti-
legar reiðleiðir og gönguleiðir eru í
nágrenni Búða, jafnt á endalausum
sandfjörunum, eftir moldargötum og
gömlum stígum um Búðahraun.
Ferðaskrifstofan Trans Atlantic
er með skemmtilega ævintýraferð
til Mexíkó, Belís og Guatemala þar
sem veitt er innsýn í hinn forna
menningarheim Maya og ferð-
ast inn á töfrandi regnskógasvæði
Suður-Ameríku. Synt verður og
snorklað í sjónum við næststærsta
kóralrif heims. Dagskrá ferðarinnar
má skoða á www.transatlantic.is en
þetta er án efa ferð sem skilur eftir
sig góðar minningar og skemmti-
lega upplifun.
Upphaf hjónabandssælunnar
Brúðkaupsferðin er oft það skemmtilegasta við sjálft giftingarferlið. Kannski hugleiða ekki mörg nýgift hjón brúð-
kaupsferðir innanlands en af nógu er að taka bæði í gistingu og afþreyingu.
Snorklað við strendur Mexíkó. Ævintýraferð er kjörin fyrir nýgifta og skilur eftir sig skemmtilegar minningar.
Hótel Búðir á Snæfellsnesi er í námunda við stórkostlegt landslag ásamt því að stutt er í
fjölbreytta afþreyingu af ýmsu tagi.
Hótel Legends á Máritíus í Indlandshafi.
Tilvalið fyrir rómantíska og afslappaða
brúpkaupsferð.
Þemabrúðkaup færast í
vöxt og hér eru nokkrar
aðferðir til þess að gera
brúðkaupið enn eftir-
minnilegra.
Það færist í vöxt að brúðkaup séu
haldin með einhverja ákveðna
grunnhugmynd eða „þema“ að
leiðarljósi. Þannig eru brúðhjónin
kannski klædd í kántríföt og farið
fram á að gestirnir klæðist í þeim
stíl líka, veislan haldin í hlöðu og
dansaður línudans fram eftir nóttu.
Hugmyndir að þemabrúðkaupum
eru óþrjótandi og hér eru nokkrar
sem ekki ætti að vera of flókið að
gera að raunveruleika.
FRIENDS
Brúðhjónin eru klædd eftir langnýj-
ustu tísku. Besti vinur þeirra giftir
þau og heldur langa ræðu um að
gefa og þiggja, skipta með sér og
elskast. Brúðguminn segir vitlaust
nafn við altarið, helst nafn gamall-
ar kærustu sem er einmitt stödd í
kirkjunni. Brúðurin lokar sig inni á
klósetti og skríður út um gluggann.
Lag: I´ll Be There for You.
Veitingar: Pítsa, brúðarflan og
kjúklingabringur.
TÓGA
Allir gestirnir mæta í hvítum lökum
og brúðurin og brúðguminn líka.
Þau eru hins vegar eina fólkið með
lárviðarkransa. Skemmtiatriðin eru
magadans, eldgleypar og dansandi
geitur. Gjarnan má athuga hvort
gæludýr eða eftirlætishestur getur
framkvæmt athöfnina.
Lag: That´s Amore.
Veitingar: Innbakaðir gíraffaháls-
liðir með hunangi, einn obbolítill
villigöltur og auðvitað vínber eins
og hver getur í sig látið.
HRYLLINGSMYNDIR
Brúðurin er með hvítar rendur í
hárinu og brúðguminn með skrúfu
á hálsinum. Drakúla greifi leikur á
orgelið og Varúlfakórinn spangólar
brúðarmarsana. Allir gestirnir koma
sem uppáhalds hryllingsmyndahetj-
an sín og taka eitt tíðhnitið enn.
Lag: Damn It Janet og öll hin lögin
úr Rocky Horror Picture Show.
Veitingar: Grilluð innyfli, lifrar-
kæfa, rauðvín og blóðmör.
Brúðkaup sem bragð er að
N‡ju vorvörunum
frá OROBLU