Fréttablaðið - 09.03.2006, Síða 73
FRÉTTIR AF FÓLKI
Geri Halliwell talaði nýlega í fyrsta sinn
opinberlega um barnið
sem hún á von á í maí.
Meðal annars sagði
hún frá því að hún
væri að hugsa um
nöfnin Leonardo
ef það yrði strákur
en Stella ef hún
fengi stelpu. „Fyrsti
sónarinn sýndi mér
eitthvað sem líktist
meira kartöflu en
manneskju. Ég var
hrædd um að ég
væri með Kartöflu
Halliwell í maganum,“
sagði hún. Hún hafði
áður verið smeyk um að
hún gæti ekki eignast börn og var því
yfir sig ánægð að verða ófrísk. „Ég er
mjög þakklát og hoppaði af gleði þegar
ég komst að þessu. Mér fannst ég svo
heppin.“
Jerry Hall er orðin hundleið á
leikfangastrákum.
Semsagt er hún
leið á að dandalast
með yngri mönnum
og segir þá lélega
í rúminu. „Eldri
menn eru betri
elskendur. Þeir
eru reyndari og
kunna á allt saman. Yngri menn neyða
mann til að hlusta á Coldplay, og það er
engin lækning til við því,“ sagði Hall.
Mariah Carey er hrædd um að
rassinn á henni sé að
minnka. „Ég hef verið
að æfa á fullu, þú
gætir kýlt mig í
magann og fund-
ið hversu harður
hann er,“ sagði
hún í viðtali við
The Daily Mirror.
„En ég verð að
hægja á mér því
einhver sagði við mig
um daginn að rassinn
á mér væri að hverfa og þá varð ég
hrædd,“ sagði Mariah, sem er einhleyp
að svo stöddu ef maðurinn í lífi hennar,
hundurinn Jack, er ekki talinn með.
Teri Hatcher hefur lýst því yfir
að hún hafi verið
misnotuð sem
barn. Hún telur
þessa hræðilegu
reynslu sína
vera ástæðuna
fyrir því hversu
erfitt hún á
með að treysta
karlmönnum.
„Ég er kona sem
ber byrðar af
hræðslu og viðkvæmni á bakinu. Þessi
reynsla hefur haft mikil áhrif á ástarlífið
mitt, sem hefur einmitt ekki gengið svo
vel hingað til,“ sagði Teri.
Pink tók mikla áhættu þegar hún bað
eiginmann sinn Carey
Hart um að gifta sér.
Kappaksturskapp-
inn Hart var í miðri
keppni þegar Pink
veifaði spjaldi
við brautina
en á spjaldið
hafði hún letrað
spurninguna.
Hart brá svo
hrikalega þegar
hann sá spjald-
ið að hann
keyrði næstum
því á. „Hann
var nýkominn
framhjá öðrum bíl og
í rauninni drap ég næstum því mann því
Carey brá svo mikið,“ sagði Pink en þau
giftust í janúar.
Madonna er aftur farin að stunda hesta-
mennskuna, sjö mánuðum
eftir að hún slasaðist illi-
lega við þá iðju. Söngkonan
braut viðbein, rifbein
og handleggsbrotnaði
þegar hún féll af hesti
á landareign sinni í
Englandi. „Ég reyndi að
standa upp og beina-
grindin mín einfald-
lega gaf sig og það
leið yfir mig. Ég grét
mikið og aðallega
vegna sársauka,“
sagði Madonna,
sem greinilega
lætur ekki bugast
svo auðveldlega.