Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 81
FIMMTUDAGUR 9. mars 2006 45
Mörg góð vínræktarhéruð eru í Suður-Afríku og
er Robertson-héraðið í nágrenni Höfðaborgar eitt
það besta. Nokkrar fjölskyldur tóku sig saman og
stofnuðu víngerðina árið 1941. Þessar fjölskyldur
réðu til sín einn besta kjallarameistara Suður-
Afríku til að hafa yfirumsjón með framleiðslunni.
Hann heitir Pon van Zyl og gerði Robertson Win-
ery að þriðja stærsta vínfyrirtæki í Suður-Afríku.
Árið 1984 kom Bowen Botha til sögunar og endur-
nýjaði tækin og stórjók útflutning. Einkenni
Robertson er góð vín á góðu verði. Í dag eiga 43
fjölskyldur fyrirtækið og er mjög eftirsótt að
eiga hlut í því. Gaman er að minnast á að
Robertson-vínin ganga verulega vel í Norðurlönd-
um, virðast vera þau vín frá Suður-Afríku sem
einna best falla að norrænum smekk.
Robertson Chardonnay hefur mikið bragð af
melónu og keim af lime. Sérstaða þessa chard-
onnay er sú að þrúgan er ræktuð hátt í fjallshlíð-
um og gefur það víninu mikinn ferskleika
og fyllingu. Það er mjög kremað, með tals-
verðan keim af hnetum sem kemur frá eik-
inni en það er óvanalegt um kassavín að
þau séu þroskuð í eikartunnum. Þetta
gefur víninu tölverðan karakter og
ágæta fyllingu.
Kynningarverð á afrískum dögum
3.290 kr. í 3 lítra kössum.
Þægileg og aðgengileg cabernet vín
hafa rutt sér til rúms. Robertson Caber-
net Sauvignon er dökkt og mjúkt með
talsvert miklu bláberjabragði sem
gefur víninu skemmtilegan ávaxtak-
eim. Vínið er talið mjög góð kaup í
mörgum fagritum.
Kynningarverð á afrískum dögum
3.490 kr. í 3 lítra kössum og 1.090 kr. í
flöskum.
ROBERTSON:
Talið mjög góð kaup í fagtímaritum
VEITINGASTAÐURINN
QUIZNOS
SUÐURLANDSBRAUT 32,
105 REYKJAVÍK.
Ljúffengur
hádegisbiti
Hvernig er stemmn-
ingin: Þetta er dæmi-
gerður skyndibitastað-
ur, innréttingar eru í
ætt við sams konar staði í Ameríku
og því fer lítið fyrir frumleikan-
um. Veggirnir eru veggfóðraðir og
litasinfónían er frekar óspennandi,
dökkgrænum, ljósgulum og ferskju-
lituðum blandað saman. Fyrsti
Quiznos-staðurinn var stofnaður í
Denver í Bandaríkjunum árið 1981
og fjölgaði stöðunum jafnt og þétt.
Árið 1991 voru staðirnir orðnir
18 talsins en árið 2005 voru þeir
4.500.
Gott er að taka matinn með sér
heim ef þessi hönnun fer í taug-
arnar á fólki.
Matseðillinn:
Þótt innréttingarnar séu ekki þær
flottustu eru samlokurnar algert
lostæti. Hægt er að velja um ótal
tegundir, bæði kjöt- og grænmet-
issamlokur. Einnig er boðið upp á
girnileg salöt þar sem kjúklingur
spilar stórt hlutverk en hægt er að
fá ýmsar tegundir af kjúklingasalati.
Stærðirnar á samlokunum heita
minni, stærri og risastór. Minni
er feikinóg fyrir eina manneskju,
stærri er fínn ef maður tekur með
sér í vinnuna því þá getur verið
gott að narta í seinni helminginn
af samlokunni síðdegis. Risastóri
er fínn fyrir tvo eða mjög svangan
einstakling. Einnig er boðið upp á
súpur og smákökur.
Vinsælast:
Kjúklingasalötin eru mjög vinsæl
ásamt kjúklinga og kalkúnasam-
lokum af ýmsu tagi.
Verð:
Minni samlokan kostar í kringum
600 krónur, stærri í kringum 800
og risastór í kringum 1.300 krónur.