Fréttablaðið - 24.05.2006, Side 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Hrefna Sigurjónsdóttir er í meistaranámi í alþjóða-
samskiptum við Háskóla Íslands. Henni finnst námið
spennandi og viðeigandi að læra um Ísland í alþjóða-
samhengi á tímum alþjóðavæðingar.
Meistaranám í alþjóðasamskiptum er sextíu eininga hagnýtt
og fræðilegt nám fyrir nemendur sem áður hafa lokið BA eða
BS gráðu úr annarri námsgrein. Námið býður upp á nokkurn
sveigjanleika þar sem nemendur geta valið á milli níu sviða
sem þeir geta sérhæft sig í en kjarni námsins miðar að því að
veita nemendum ákveðna grunnkunnáttu í alþjóðasamskiptum
og aðferðafræði félagsvísinda.
Hrefna hefur lokið BA prófi í sálfræði og er auk þess með
kennsluréttindi fyrir grunn- og framhaldsskóla. Hana langaði
þó að læra enn meira og fór að skoða hvað væri í boði síðast-
liðið sumar. „Þá rakst ég á þetta nám sem er alveg nýtt og var
fyrst kennt síðasta haust. Mér fannst það áhugavert enda
opnar það ýmsa möguleika. Mér finnst líka viðeigandi að læra
um Ísland í alþjóðasamhengi á þessum tímum og skilja betur
hvað er að gerast í kringum mann,“ segir Hrefna sem líkar
vel við námið það sem af er. „Þarna er fólk með mismunandi
bakgrunn, námskeiðin eru fjölbreytt og margt í gangi enda
námið enn í mótun,“ segir Hrefna hrifin. Hún gerir ráð fyrir
að eiga rúmt ár eftir af náminu en hefur ekki ákveðið hvað
hún vilji gera að því loknu. „Maður getur unnið til dæmis hjá
frjálsum félagasamtökum og í utanríkisþjónustunni. Ég er þó
ekki búin að gera upp hug minn enda er maður ennþá að kynn-
ast þessu fagi,“ segir Hrefna sem er nýbökuð móðir og á
tveggja vikna stúlkubarn. Húnn missti því vitanlega af loka-
törninni í skólanum en segir að sér hafi komið viðmót kennar-
anna þægilega á óvart. „Kennararnir eru mjög sveigjanlegir
með verkefnin og í Háskólanum getur maður tekið sumar-
próf,“ segir Hrefna glettin. solveig@frettabladid.is
Opnar marga
möguleika
Hrefna með dóttur sína sem vitanlega hefur dregið hug hennar frá náminu þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
24. maí, 144. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.45 13.25 23.06
Akureyri 3.04 13.09 23.17
Saab bílaverksmiðjan í Svíþjóð
verður lögð niður og framleiðsl-
an flutt til Opel í Kaiserslautern.
Einnig verður samdráttur í Vaux-
hall verksmiðjunni í Ellesmere
Port við Liverpool. Boðað hefur
verið til mikillar uppstokkunar á
vélaframleiðslu GM í Evrópu.
Tommy Hilfiger lenti í slag við
Axl Rose, rokkarann víðfræga
úr Guns ´n‘ Roses, á skemmti-
stað í New York um síðustu
helgi. Slagurinn byrjaði þegar
Axl færði til drykk sem kærasta
Hilfiger var að sötra. Hilfiger var
ekki ánægður með það og sló
Axl í handlegginn oftar en einu
sinni. Greinilegt að frægir tísku-
hönnuðir geta líka orðið pirraðir.
www.ganga.is er vefur sem
vert er að minna sumarglaða
útipúka á í upphafi sumars. Þar
inni má finna fjöld-
ann allan af góðum
gönguleiðum,
mislöngum og
miserfiðum,
víðs
vegar
um
landið.
Einnig má finna þar fréttir af
komandi gönguferðum útivistar-
félaganna.
ALLT HITT
[TÍSKA BÍLAR FERÐIR]
BÖRNIN TAKA ÞÁTT Í
UMHIRÐU DÝRANNA
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn býður upp á dýra- og
umhverfisnámskeið fyrir
börn í sumar.
NÁM 5
MEST SELDU
BÍLAR VERALDAR
Á heimasíðu Top Gear eru
taldir upp tíu mest seldu
bílar í heimi.
BÍLAR 2
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
Þau hafa
lengt sinn
sólarhring!
“Ekki eingöngu les ég hraðar.
Ég les með ...margfalt meiri skilning.”
Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi.
“...held ég sé á góðri leið með að ná
inntökuprófinu í læknadeild í vor.”
Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum
því stúdent.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, æviábyrgð, nytsamlegt, krefjandi,
skemmtilegt, mjög gott, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð,
góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta.
Nýtt námskeið - 6 vikna námskei hefst 7. júní
... næsta 3. vikna hraðnámskeið 13. júní
... Akureyri 3. vikna hraðnámskeið 26. júní
Skráning á sumarnámskeið er hafin
á www.h.is og í síma 586-9400