Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 64
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
Saab
Það er klassi yfir Saab 9-3 bílunum, enda á Saab sér áratugalanga sögu
og er einn öruggasti bíll sem völ er á. Saab 9-3 er margverðlaunuð
nýjung í klassíska Saab stílnum þar sem öryggi og mýkt í akstri er í
fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél og ríkulegur staðalbúnaður
gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.
*Og verðið er algert einsdæmi fyrir lúxusbíl í þessum gæðaflokki!
Klassík á viðráðanlegu verði*
2.590.000 kr.
Klassi, öryggi, stíll!
Verðið miðast við beinskiptan 1.8 lítra, 125 hestafla bíl.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
18
8
8
20% 75 47hlutur FL Group í Glitni banka. punkta stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í 12,25 prósent frá og með 23. maí. milljóna króna hagnaður Alfesca á þriðja ársfjórðungi.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hvergi er „svalara“ að stunda
viðskipti en á Íslandi ef eitthvað
er að marka vefútgáfu MSNBC.
Fram kemur að Íslendingum
hafi tekist að búa hér til sveigj-
anlegt markaðshagkerfi sem
þó stendur styrkum fótum.
Ekki spilli svo fyrir hversu
miðsvæðis landið sé; þrjá tíma
taki að fljúga til Evrópu og fimm
til Bandaríkjanna.
Þá telur fréttamaður MSNBC
að fámennið skapi sérstaklega
góð skilyrði til erfðafræðilegra
rannsókna og vitnar í Kára
Stefánsson, forstjóra DeCode.
„Stærsti kosturinn er sá að þú
þekkir alla, stærsti ókosturinn
að allir þekkja þig,“ segir Kári og
heldur áfram. „Við njótum óneit-
anlega góðs af því að vera mitt á
milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Við græðum á því að búa á grjót-
hrúgu í miðju Atlantshafi.“
Grjóthrúga í
Atlantshafi
Eitt merki þess að líf sé á
markaði er þegar sífellt ganga
slúðursögur um eitthvað sem er
í gangi. Þessa dagana eru þær
ekki mjög margar og er það eitt
merki um að lítil spenna sé í
mannskapnum. Helst er þrálát
saga um að Air Atlanta verði selt
út úr Avion. Sú saga var á fleygi-
ferð fyrir skemmstu, en svo fór
að dofna yfir henni. Hún fékk
þó nýtt líf þegar starfsmaður
Atlanta spurði kollega sinn hjá
Icelandair hvort þeir færu ekki
að sameinast. Þá blossuðu kenn-
ingarnar upp á ný og sagan fór
nýjan hring.
Sögur í deyfðinni
Önnur saga sem sennilega á við
rök að styðjast er að breytingar
muni verða á eignahaldi VÍS á
næstunni. Ekki þarf mikla spá-
menn til að sjá að Exista er
í mikilli endurskipulagningu
þessa dagana. Þar stefna menn
ótrauðir að skráningu og liður
í því er að skerpa línurnar í
eignarhaldi tengdra fyrirtækja.
Boðað hefur verið að Kaupþing
láti bréf sín í Exista til hlut-
hafa sinna. Saman eiga Exista
og Kaupþing banki kjölfestuhlut
í VÍS og ekki talið ólíklegt að
Exista eignist hlut Kaupþings í
Tryggingarfélaginu. Það myndi
svo enn styrkja stöðu Exista í
hluthafahópi Kaupþings banka,
þar sem VÍS á einnig hlut í bank-
anum. Hvernig sem þetta verður
útfært er ljóst að Exista kemur á
markað með öflugt eignasafn.
Vís breyting
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is