Fréttablaðið - 24.05.2006, Blaðsíða 46
■■■■ { íslensk útrás } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP,
segir enga tilviljun að Kína hafi
orðið fyrir valinu „Það er gríðarleg-
ur áhugi fyrir tölvuleikjum í Asíu.
Sem dæmi má nefna að markaður
fyrir fjölþátttökuleiki í Kóreu einni
og sér er stærri en í öllum hinum
vestræna heimi samanlagt. Þar eru
það ekki íþróttastjörnur eða rokk-
hetjur sem njóta mestrar kvenhylli,
heldur þeir sem er bestir í vinsæl-
asta tölvuleiknum.“
Hilmar segist hafa eigin skýringu
á vinsældum tölvuleikja í Asíu.
„Asíubúar hafa um aldaraðir haft
mikinn áhuga á spilum. Tölvuleik-
irnir virðast falla inn á þetta áhuga-
svið. Þegar mönnum tekst svo að
búa til áskriftarmódel kringum leik-
ina þá getur þetta undið svakalega
upp á sig.“
Brátt hefjast opnar prófanir á
EveOnline í Kína þar sem áhuga-
sömum verður leyft að spila ókeyp-
is í einn mánuð. Áætlað er að um
átta hundruð þúsund manns muni
þekkjast boðið og að allt að þriðj-
ungur þeirra muni að lokum kaupa
sér áskrift.
CCP-liðar gera þó ráð fyrir að
hlutfallið verði aðeins lægra í tilfelli
EveOnline „Þeir leikir sem hingað
til hafa ratað á Kínamarkað hafa
verið tiltölulega einfaldir. Yfirleitt
gamlir kóreanskir leikir. Þetta er í
fyrsta skipti sem fjölþátttökuleikur
á borð við Eve kemur á markaðinn.
Við ætlum okkur að reyna að ná
til þeirra sem ekki hafa fundið sér
tölvuleiki við hæfi hingað til.“
Strandhögg CCP í Kína hefur
greinilega vakið athygli því kín-
verska menntamálaráðuneytið hafa
farið þess á leit að fá heimild til
að nota leikinn við kennslu í skól-
um landsins. Hilmar segir kínverska
menntamálaráðuneytið hafa gert sér
grein fyrir að Kínverjar hafa gaman
að tölvuleikjum og leiti leiða til að
notfæra sér það.
Hann er ekki í nokkrum vafa um
að EveOnline sé gott kennslutæki.
Markaðskerfi leiksins sé byggt á
raunverulegum mörkuðum, einkum
hinum bandaríska NASDAQ. Þar
gildi á margan hátt sömu reglur og
lögmál, til að mynda um framboð
og eftirspurn. „Tölvuleikir eru alltaf
á vissan hátt endursköpun á raun-
verulegum aðstæðum. Eve fjallar
mikið um að reka fyrirtæki á hag-
kvæman hátt, og góður Eve-spilari
þarf að hafa sömu eiginleika og
góður stjórnandi. Menntamálaráðu-
neytið hefur séð að þessa eiginleika
þurfi Kínverjar að tileinka sér enn
frekar.“
Hilmar segir viðskiptahætti Kín-
verja og Íslendinga líkari en margur
kann að halda. „Vissulega er margt
öðruvísi, en það kemur samt alltaf
á óvart hversu margt er eins. Við-
skipti ganga jú allstaðar út á fólk.“
Helst er það viðhorf til samn-
inga sem er ólíkt eftir menningar-
heimum. „Í Kína vegur persónulegt
samband mikið. Það sem þú segir
er jafnvel meira virði en það sem
þú skrifar. Þessu er öðruvísi farið í
hinum vestræna heimi, þar er sam-
komulag einskis virði nema það sé
fest á blað.“
Hilmar telur mikilvægast að
koma fram af hógværð. Margir hafi
brennt sig á því að fara of geyst og
ætla að sigra Asíu í einu vetfangi.
„Kínverjar hafa verið siðmenntaðir
í fjögur þúsund ár, miklu lengur en
við og ættu að vita sínu viti. Þótt
þeir beiti öðrum aðferðum þýðir
það ekki að þær séu rangar. Ég held
að stöðugur hagvöxtur í landinu
segi sína sögu. Eitthvað hljóta þeir
að gera rétt.“
Koma fram af hógværð
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið CCP opnaði nýlega skrifstofu í Peking, höfuðborg Kína.
Stefnan er tekin á að koma Kínverjum upp á lagið með að spila tölvuleikinn EveOnline.
Hilmar V. Pétursson forstjóri CCP segir marga hafa brennt sig á því að ætla að sigra Asíu í
einu vetfangi. „Kínverjar hafa verið siðmenntaðir í fjögur þúsund ár, miklu lengur en við og
ættu að vita sínu viti.“
Íslendingar keyptu erlend fyrirtæki
fyrir tæpa 536 milljarða íslenskra
króna árin 2004 til 2005. Stærstu ein-
stöku viðskiptin voru kaup KB banka
á breska fyrirtækjabankanum FIH fyrir
áttatíu og fjóra milljarða króna.
Næst komu kaup Bakkavarar á
breska matvælafyrirtækinu Geest
fyrir sjötíu milljarða. Þá keyptu KB
bankamenn Singer og Friedlander
banka fyrir sextíu og fimm millj-
arða króna.
Athygli skal þó vakin á því að gangi
kaup Actavis á króatíska samheita-
lyfjafyrirtækinu Pliva verður metið
slegið allhressilega, en hundrað tut-
tugu og fimm milljarða verðmiði er
settur á Pliva.
Íslensku bankarnir hafa verið í
fararbroddi íslensku útrásarinnar. KB
banki hefur verið þeirra duglegastur að
stækka við sig og keypti erlend fyrir-
tæki fyrir samtals 149 milljarða króna
á umræddu tímabili. Glitnir fjárfesti
samtals fyrir tæplega 38,5 milljarða í
fjórum norrænum fjármálafyrirtækj-
um. Landsbankinn var ekki alveg jafn
stórtækur keypti „einungis“ fyrir níu
milljarða króna. Landsbankamenn
hafa reyndar bætt talsvert við sig
síðan listinn kom út; keyptu evrópsku
fjármálafyrirtækin Merrion og Kepler
á rúma ellefu milljarða króna samtals.
Þrjú fjármálafyrirtæki er að finna
meðal efstu tíu og þrjú matvælafyrir-
tæki. Actavis hefur fest kaup á tveim-
ur lyfjafyrirtækjum fyrir samtals 88
milljarða króna. Þá hafa Baugsmenn
keypt skartgripasmiðinn Goldsmith
og tískuveldi Mosaic Fashions.
Greinilegt er að straumurinn
liggur til Bretlands, en fimm af tíu
stærstu fyrirtækjum sem keypt hafa
verið hafa höfuðstöðvar þar.
Keyptu fyrir
536 milljarða
KB banki og Actavis stórtækustu útrásarfyrirtækin.
Höfuðstöðvar KB banka í ReykjavíkKB banki hefur verið í fararbroddi íslensku útrásarinnar og
keypti erlend fyrirtæki fyrir 149 milljarða króna árin 2004 til 2005. Actavis sækir þó hart að
KB banka og mun hirða toppsætið gangi kaup Actavis á króatíska lyfjafyrirtækinu Pliva eftir.
NAFN FYRIRTÆKIS KAUPANDI KAUPVERÐ ÁR
FIH (BRE) KB banki 84 2004
Geest (BRE) Bakkavör 70 2005
Singer og Friedlander (BRE) KB banki 65 2005
Alpharma (NOR) Actavis 50 2005
Big Food Group (BRE) Baugur 40 2005
Amide (BNA) Actavis 33 2005
BN Bank (NOR) Glitnir 33 2005
Mosaic (BRE) Baugur 30 2005
Labeyrie (FRA) Alfesca 29 2004
Goldsmiths (BRE) Baugur 14 2004
*HEIMILD: VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS, HALLDÓR BENJAMÍN ÞORBERGSSON
**ALLAR TÖLUR Í MILLJÖRÐUM KRÓNA
Fyrirtækjakaup Íslendinga erlendis
frá árinu 2004
Ísland er fjórða samkeppnishæfasta
hagkerfi heims samkvæmt alþjóð-
legri könnun IMD-viðskiptaháskól-
ans í Sviss. Ísland er samkeppnis-
hæfasta land Evrópu.
Könnun IMD tekur til sextíu landa
og kemur út árlega. Bandaríkin eru í
fyrsta sæti listans, Hong Kong í öðru
sæti og Singapúr í því þriðja. Frænd-
ur okkar Danir eru í fimmta sæti, en
lentu í sjöunda árið 2004.
Ísland vermir jafnframt fjórða
sætið þegar litið er til skilvirkni hins
opinbera-
Samkeppnis-
hæfust í Evrópu
2004 2005
Bandaríkin 1. 1.
Hong Kong 2. 2.
Singapúr 3. 3.
Ísland 4. 4.
Danmörk 7. 5.
Samkeppnishæfustu
hagkerfi heims
Samkvæmt lista IMD viðskipta-
háskólans í Sviss
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI