Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 46
14
TILKYNNINGAR
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Vélaskýlisgrind
Fasteignir Akureyrarbæjar óska eftir tilboðum í stálgrind af skýli sem
er uppsett inn á Krókeyri við Eyjafjarðarbraut (Drottningarbraut) á
Akureyri, fastanúmer 224-3135. Grunnflötur um 78 m2. Hluti af
klæðningu fylgir grindinni. Bjóðandi þarf að taka grindina niður og
fjarlægja af þeim stað er hún stendur á fyrir 20. júní nk.
Tilboðum skal skila til Fasteigna Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Skilafrestur tilboða er til kl. 11:00 þann 12. júní 2006.
Fasteignir Akureyrarbæjar áskilja sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
FASTEIGNIR AKUREYRARBÆJAR
Geislagötu 9, 4. hæð, Sími 460 1128
Auglýsing um tillögu að
breytingu á deiliskipulagi
Sléttuhlíðar, í Hafnarfirði.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sín-
um þann 16. maí 2006 að auglýsa til kynningar
tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sléttuhlíðar
í Hafnarfirði í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Deiliskipulagið er frístundabyggð í landi Hafnar-
fjarðar, við Sléttuhlíð, Gráhelluhraun og Klifsholt.
Heildarstærð skipulagssvæðis er um 231 ha.
Deiliskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 8. júní -
6. júlí 2006. Nánari upplýsingar eru veittar á
umhverfis- og tæknisviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemdir við breyting-
una og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og
tæknisviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 20.
júlí 2006. Þeir sem ekki gera athugasemd við
breytinguna teljast samþykkir henni.
Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar.
FASTEIGNIR
39-47 smáar 8.6.2006 14:32 Page 10