Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 67
FÖSTUDAGUR 9. júní 2006 51
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
Opnun í Ljósafossstöð
laugardaginn 10. júní kl. 13.00
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
3
1
1
Með aðstoð Alþjóðahússins hefur Landsvirkjun efnt til sýn-
ingar sem hlotið hefur nafnið „Perspekti“ þar sem kynnt eru
verk nokkurra listamanna sem eru af erlendu bergi brotnir.
Þeir eiga það sammerkt að tilheyra nú íslensku samfélagi
og telja list sína hafa orðið fyrir áhrifum af dvölinni hér. Þá
eru jafnframt á sýningunni tvær myndasýningar ásamt texta
sem lýsir samspili ólíkra þjóða.
Perspekti
Ísland í augum innflytjenda
Alice Olivia Clarke • Amy Clifton • Glenn Barkan • Jacqueline Downey • Claudia Mrugowski • Timour Fastovski • Denni Karlsson
Markús Meckl og nemendur hans við Háskólann á Akureyri
Kórsöngur: klukkan 14.00 munu Lögreglukór Reykjavíkur
og kvennakórinn Ljósbrá syngja nokkur lög.
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
Sýningin er opin í sumar frá 13–17 virka daga og 13–18 um helgar.
Hjá venjulegu fólki flokkast það að fara
„út að borða“ undir „að gera sér daga-
mun“ og einungis auðkýfingar ellegar
þeir sem vegna afburða gáfna og hæfi-
leika hefur verið trúað fyrir kreditkortum
frá stofnunum eða fyrirtækjum hafa ráð
á að láta þjóna sér til borðs að staðaldri.
Miðað við aðra afþreyingu er það fremur
dýr skemmtun á Íslandi að borða á
veitingahúsum. Merkilegt nokk er samt
ódýrara að borða en drekka. Og auð-
vitað ræður efnahagur og lundarfar því
hvað hver og einn telur dýrt eða ódýrt.
Allir eru þó sammála um að vilja fá sem
mest fyrir peningana sína. Hátíðarkvöld-
verður handa tveimur, tvö glös af víni,
16.950 kr.
Ódýrt? Nei.
Gott? Já.
Peninganna virði? Tja, það er matsatriði
- en betri mat er varla hægt að fá.
Í stað þess að velja sjálf af girnilegum
matseðli á Grillinu ákváðum við að gefa
matreiðslumeisturum staðarins frjálsar
hendur, en þeir bjóða upp á máltíðir
sem þeir hafa sjálfir sett saman eftir
eigin höfði, óvissuveisla á 6.900 og
sjávarfangsveisla á 7.500.
Daman valdi sjávarfangið og glas af
hvítvíni hússins (Norton, Chardonnay
frá Argentínu, ísúrt og ferskt, afar gott
vín, sagði hún) en herrann hélt sig við
landdýrin og skolaði þeim niður með
blávatni.
Hófst svo hin besta veisla með örðu
af kóngakrabbasalati með mangósósu
sem lystauka en það kalla Frakkar víst
„amuse-bouche“.
Forréttir. Hún: Rauðspretta á rabarbara-
mauki í sítrónugrassósu. Hann: Steiktur
hörpudiskur með gljáðum humarkrafti.
Staðan 1-1.
Hún: Kóngakrabbi á saltfiskþynnu
(carpaccio), djúpsteikt hrísgrjón vafin
með þara (nori) og tómatkrem. Hann:
Sandhverfa, kartöflumús, sítrusmauk
(confit). 2-2.
Aðalréttir. Hún: Risahumarhalar, annar
íslenskur og hinn frá Kanada, á kartöflu-
beði með tómatmauki og rjómabættri
hvítvínssósu (Sauternes). Því miður var
kanadíski humarinn jafn bragðgóður
og sá íslenski, en aðeins grófari. Hann:
Dádýrslund og kartöflu- og svartrótar-terr-
ine. („Terrine,“ vel að merkja, er yfirleitt
notað um kæfur sem bakaðar eru í leir-
ílátum. „Svartrót“ heitir á ensku „salsify“
og er stundum kölluð „geitarskegg“ og
hefur aldrei komið nærri söltum sjó - en
hefur þó svipað bragð og ostrur).
Þetta var æsispennandi. Hver rétturinn
öðrum betri og mátti ekki milli sjá hvort
láðs- eða lagardýr hefðu yfirhöndina.
4-4.
Af tillitssemi við svanga lesendur verður
máltíðinni ekki lýst nánar, en þó er
rétt að það fylgi sögunni að ávaxtak-
rap, eftirréttir og kaffi voru af sama
gæðastaðli og það sem á undan var
gengið sem og kvöldroðinn, sólarlagið og
Snæfellsjökull sem auk matreiðslu- og
þjónustufólks á Grillinu áttu sinn þátt í
að gera okkur verulegan dagamun.
Grillið er staður sem veitingahús á Íslandi
geta miðað sig við.
MEÐ HNÍF OG GAFFLI ÞRÁINN BERTELSSON SKRIFAR
Að gera sér dagamun
Kjólar úr kaffipokum, dagblöðum,
kartöflupokum, ruslapokum, gard-
ínum, dömubindabréfum og Hag-
kaups- og Bónusplastpokum: það
gætti margra grasa á umhverfis-
vænni tískusýningu sem haldin
var í Góðtemplarahúsi Hafnar-
fjarðar á Björtum dögum. „Fötin
eru öll úr endurnýttu efni, úr ein-
hverju sem átti að fleygja,“ segir
Nikulína Einarsdóttir, sem á heið-
urinn að kjólunum á sýningunni.
Nikulína, sem er 74 ára, vann á
saumastofunni á Hrafnistu í Hafn-
arfirði í sextán ár og þar hirti hún
ýmsa afganga sem féllu til og not-
aði í saumaskap á kjólunum, sem
hefur tekið nokkur ár. Nikulína lét
gott af sér leiða með sýningunni,
en hún ákvað að ágóðinn af sýn-
ingunni skyldi renna í Styrktar-
sjóð krabbameinssjúkra barna.
„Við misstum fjórtán ára gamlan
dreng úr krabbameini. Ég hugsaði
með mér að ég væri orðin það
gömul að nú væri tækifærið til að
gera þetta, mig hefur langað til að
gera eitthvað svona lengi,“ segir
Nikulína hæstánægð með góðar
móttökur, en aðgangseyririnn að
sýningunni rann óskiptur í styrkt-
arsjóð krabbameinssjúkra barna,
alls sjötíu þúsund krónur.
Kjólar úr
ruslapokum
BRÚÐKAUPSFATNAÐUR „Ég sá þetta í
grímubúningablaði, tók upp sniðið og
saumaði eftir því úr afgangsefni,“ segir
Nikulína.
FRÍÐUR FLOKKUR Nikulína er í fremstu röð
með blóm í hendi. Hún fékk systur sína,
tengdadóttur, dóttur og vinkonur til að
sýna endurnýta fatnaðinn.