Fréttablaðið - 09.06.2006, Síða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
– ERU BETRI EN AÐRAR!
Innifalið í verði: Flug, gisting, flugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Bókað er á www.sumarferdir.is. Símabókunargjald er 1.500,- pr. farþega.
www.kreditkort.is
Mundu eftir
MasterCard
ferðaávísuninni
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Viva Blue
12. júlí m.v. 2 fullorðna og 2 börn í viku.
79.200,- m.v. 2 fullorðna57.600,-Verð frá:
Eitt af bestu Viva hótelunum á Mallorca. Falleg staðsetning í Alcudia, frábær
sundlaugargarður og glæsilegar íbúðir.
Viva hótelin eru að okkar mati bestu
íbúðahótelin á Mallorca og við erum stolt
af því að geta boðið Íslendingum þennan
frábæra valkost á sérlega hagstæðu
verði. Mallorca er vinsælasti sumar-
dvalarstaður Evrópu og hefur allt sem
þú þarft fyrir hið fullkomna frí.
Flottar íbúðir m. svölum/verönd, ísskáp,
loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggis-
hólfi og vel búnum baðherbergjum. Þrif
5 daga vikunnar.
Viva Blue – íbúðahótel
Gestamóttaka 24/7
Strönd 450 m
Bar Já
Veitingastaður Já
Sundlaug | Garður Já | Já
Barnalaug | Leiksvæði Já | Já
Sólbekkir | Handklæði Já | Já
Skemmtidagskrá | Fyrir börn Já | Já
Heilsurækt Já
Tennisvöllur Já
Aðstaða fyrir fatlaða Já
ÍBÚÐIR
Viva Alcudia Sun Village
12. júlí m.v. 2 fullorðna og 2 börn í viku.
66.950,- m.v. 2 fullorðna51.475,-Verð frá:
Vel búnar íbúðir í fjölskylduvænu umhverfi skammt frá Muro ströndinni í Alcudia.
Glæsilegur sundlaugagarður, leikvellir fyrir börn og fullorðna og vönduð
barnadagskrá.
Þægilegar íbúðir með svölum/verönd,
ísskáp, loftkælingu, sjónvarpi, síma,
öryggishólfi og vel búnum baðher-
bergjum. Þrif 5 daga vikunnar.
Viva Alcudia Sun Village –
íbúðahótel
Gestamóttaka 24/7
Strönd 400 m
Bar Já
Veitingastaður Já
Sundlaug | Garður Já | Já
Barnalaug | Leiksvæði Já | Já
Sólbekkir | Handklæði Já | Já
Skemmtidagskrá | Fyrir börn Já | Já
Heilsurækt Já
Tennisvöllur Já
Aðstaða fyrir fatlaða Já
ÍBÚÐIR
Allar frekari upplýsingar eru á www.sumarferdir.is
Sími 575 1515 – www.sumarferdir.is – Laugavegur 26
(gengið inn Grettisgötumegin)
Sólin er farin til Mallorca
og verður þar í allt sumar!
Mallorca!
¡Viva
www.sumarferdir.is
Sími 575 1515
������ �����
���� ������
Furðu oft er ég spurður upp úr þurru: „Með hvaða liði held-
urðu í ensku?“ Alltaf mæti ég jafn
mikilli vantrú þegar ég yppi öxlum,
hristi höfuðið og segi: „Engu.“
Ekki svo að skilja að ég líti á mig
sem antísportista. Mér finnst það
alls ekki öfundsvert hlutskipti að
hafa ekki vott af áhuga á fótbolta,
því sá sem ekki hefur það verður
hreinlega utanveltu í þjóðfélaginu
á meðan heimsmeistaramótið í
knattspyrnu fer fram.
FYRIR það fyrsta get ég ekki leng-
ur tekið þátt í samræðum, hvorki í
vinnunni né utan hennar. Ég hef
fundið hvernig samræðulistin
hefur smám saman fjarað út eftir
því sem ristin á Wayne Rooney
hefur gert sig æ meira gildandi í
samræðum við kaffivélina. Sjálf-
sagt hefur karlmannsfótur ekki
verið á vörum jafnmargra frá því
á dögum Akkilesar.
FYRIR neytendur er fótboltaæðið
vissulega til góðs. Allar búðir eru
stútfullar af HM-tilboðum. Ég get
keypt mér 42 tommu plasma-sjón-
varp fyrir 150 þúsund kall og fæ
með því 36 lítra af kóki og 20 poka
af snakki í kaupbæti. Minna má
það ekki vera. Ég verð reyndar að
finna mér eitthvað annað að gera
en að horfa á nýja sjónvarpið mitt
því á dagskrá er jú ekkert nema
fótbolti. Ef ekki leikur, þá yfirlit
yfir leiki dagsins eða morgundags-
ins, Markaregn, Fótboltakvöld,
Helgarsportið, 1x2, 4-4-2, 4x4 og
hvað þetta nú allt heitir þar sem
Þorsteinn Joð talar af innlifun um
að fótbolti sé „dálítið eins og lífið
sjálft“.
EKKERT umræðuefni á eftir að
komast að í heitu pottum sund-
laugana nema vítið sem Paul
Robinson varði, aukaspyrnan hans
Ronaldinho, fáránlegi rangstöðu-
dómurinn og króatísku landsliðs-
búningarnir, sem voru miklu flott-
ari fyrir fjórum árum. Ef ég fer í
bíó þarf ég að horfa á Nike-auglýs-
ingu með Eric Cantona. „Just do
it.“ Ég man eiginlega ekkert eftir
Eric Cantona nema þegar hann
hljóp að áhorfanda á hliðarlínunni
og „just did it“. Bjóði nágrannarn-
ir til HM-veislu með tilheyrandi
látum er ekki hægt að leita skjóls á
kránni. Hver einasti veitingamað-
ur fær sér sjónvarp og barirnir
fyllast af fólki sem baular hátt og
snjallt í hvert skipti sem boltinn
kemst í grennd við stöngina.
EKKI er sökum að spyrja að fólk í
kringum er löngu orðið þreytt á
vælinu í mér og segir að ég þurfi
að „læra að lifa lífinu“. Það er
hægara sagt en gert þessa dag-
ana.
Óhæfur
�����������������������
����������
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �