Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 9. júní 2006 3
Hægt er að slá morgunverði
og hádegisverði saman í eitt á
sunnudögum í veitingastaðnum
Skrúði á Hótel Sögu.
„Við kjósum að kalla þessa máltíð
bröns en íslenska heitið dögurður
hef ég líka heyrt,“ segir Kristján
Daníelsson, veitingastjóri í Skrúði,
um hina nýju sunnudagsmáltíð
sem boðið er upp á frá 11.30 til 14.
Hann kveðst bjóða upp á allt sem
venjulega er á morgunverðarhlað-
borðinu, svo sem ferskan ávaxta-
safa, brauð, álegg, beikon og egg,
jógúrt, eggjahræru og morgun-
korn og svo bætist hádegisverðar-
hlutinn við, sem er fiskisúpa,
kjúklingur á teini, amerískar
pönnukökur með sírópi og aðrir
heitir réttir. „Svo erum við með
eftirrétti líka,“ segir Kristján og
leggur áherslu á að vel sé gert við
börnin. „Það er 50% afsláttur fyrir
6-12 ára og frítt fyrir yngri. Svo
erum við með horn fyrir börnin
við hliðina á veitingasalnum þar
sem gæsla er og börnin hafa ýmis-
legt að dunda við. Við reynum að
hafa þetta fjölskylduvænt.“ Að
lokum er Kristján rukkaður um
eina uppskrift af nýja bröns-mat-
seðlinum og þá kemur til kasta
matreiðslumannsins Kristófers
Bachman Þórðarsonar. Hann
gefur uppskrift að hleyptum eggj-
um með ristuðu brauði, beikoni og
hollandaise-sósu. Rétturinn heitir:
EGG BENIDIKT
1 egg
1l vatn
50 ml edik
Edik og vatn sett í pott og látið sjóða
(ekki bullsjóða). Eggið sett út í vatnið
og hrært í kringum eggið í um fimm
mínútur.
HOLLANDAISE SÓSA
1 eggjarauða
100 g smjör, brætt
1 tsk. edik
salt og pipar
Eggjarauðan og edikið sett í skál yfir
vatnsbaði, þeytt upp þar til sósan
þykknar. Smjöri, salti og pipar bætt
út í.
Sunnudagsdögurður
Skrúðs á Hótel Sögu
Á nýjum matseðli Skrúðs er meðal annars boðið upp á Egg Benidikt, sem eru hleypt egg
með ristuðu brauði, beikoni og hollandaise-sósu.
Boðið er uppá fjölbreytt fæði í hádeginu
á sunnudögum í Skrúði bæði fyrir börn og
fullorðna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er nokkuð útbreiddur mis-
skilningur að tófú og sojakjöt
sé sama varan. Hólmfríður
Þorgeirsdóttir, næringarfræð-
ingur hjá Lýðheilsustöð, segir
að svo sé þó alls ekki.
Þó að báðar vörurnar séu unnar úr
sojabaunum þá er vinnslan á þeim
gjörólík. „Þetta er nú reyndar ekki
sama afurðin. Sojakjöt er í raun
þurrkað sojaprótín, það er nánast
bara helmingurinn prótín og það
er einnnig mjög trefjaríkt,“
útskýrir Hólmfríður.
„Síðan þegar við erum að tala
um tófú, þá inniheldur það áttatíu
og tvö prósent vatn. Þannig að
þetta eru gjörólíkar afurðir,“ segir
hún. „Tófú er í raun sojabauna-
hlaup sem er unnið þannig að soja-
baunir eru lagðar í bleyti, þær eru
því næst malaðar, þá soðnar og
síaðar. Þannig verður til mauk
sem hlaupefni er svo bætt út í.“
Báðar afurðirnar eru vinsælar
í ýmsa heilsurétti og þá einkum og
sér í lagi í austurlenska matar-
gerð. Afurðir úr sojabaunum hafa
verið unnar í Kína og Japan allt
frá á áttundu öld.
-vör
Tófú er ekki það
sama og soja
Hólmfríður Þorgeirsdóttir næringarfræð-
ingur
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNAR
Girnileg ommeletta úr tófú. NORDICPHOTO/GETTY
Sítrónu-basil
pasta fyrir fjóra
500 g tagliatelle
2-3 msk. olía með sítrónubragði
1 box sveppir, skornir smátt.
1 box kirsuberjatómatar, skornir í
tvennt.
2 hvítlauksrif, smátt skorin.
1 búnt ferskt basilikum, skorið smátt.
150 g rifinn parmesanostur (má líka
vera Óðalsostur).
Maldon-salt og nýmulinn svartur
pipar.
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeining-
um á pakkanum. Setjið helminginn
af sítrónuolíunni á pönnu og steikið
sveppi og hvítlauk í smá stund, saltið
og piprið. Látið renna af pastanu og
setjið það á pönnunna. Það er gott
að setja smá af soðinu með. Setjið
rifna ostinn, tómatana, basilikum og
afganginn af sítrónuolíunni saman við
og blandið vel saman.
Berið fram með salati, t.d. ferskum
spínatblöðum með ristuðum möndlu-
flögum sem er stráð yfir ásamt smá
olíu og balsamik ediki.
Sætir chili kjúklinga-
vængir fyrir fjóra
500 g - 1 kg kjúklingavængir
Rúmlega 2 dl chilisósa frá Heinz
1 dl ólífuolía
1-2 tsk hvítlaukssduft
1 dl hrásykur
Maldon-salt og nýmalaður svartur pipar
Klippið hvern kjúklingavæng í tvennt
og setjið í eldfast
mót. Blandið
chilisósunni, olí-
unni, sykrinum,
hvítlauksduftinu
og salti og pipar
vel saman og hellið
yfir. Blandið vel
saman við vængina
þannig að sósan þekji
vel alla bitana. Látið
bíða í kæli í nokkra
tíma (ekki nauðsynlegt
en betra). Bakað í 200
gráðu heitum ofni í
u.þ.b 30 mín. Réttur sem
gott er að narta í meðan
beðið er eftir grillmatnum
eða borið fram sem aðalrétt-
ur með salati og brauði.
Uppskriftir Signýjar}
������������
�����������������
����� ����������������������� ������� �
������������������������������ ������� �
����������� ��
���������
������������������������������
Jói
Fel
F
A
B
R
IK
A
N