Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 9. júní 2006 21
www.bluelagoon.is
Orka
edda.is
Þessar leiðir eiga eftirfarandi
sameiginlegt
· Stuttar, viðráðanlegar gönguleiðir
· Farið er um fjölbreytilegt land utan alfaraleiða
· Gengið er með vistir og búnað og gist í tjaldi
· Ferðirnar enda á sama stað og þær hófust
– við bílinn
Þeir sem unna útivist og láta heillast af
einstæðri náttúru landsins eru ávallt á
höttunum eftir spennandi gönguleiðum. Í
þessari nýstárlegu leiðsögubók vísar
höfundurinn, Páll Ásgeir Ásgeirsson einn
kunnasti útivistarmaður og leiðsögu-
bókahöfundur landsins, á 10 nýjar leiðir
um ævintýralandið Ísland.
Með nesti og nýja skó ...
Ómissandi
bók fyrir alla
göngugarpa!
Verð aðeins 2.490
DÓMSMÁL Héraðsdómur eystra
dæmdi nýverið Húsvíking fyrir
veiðilagabrot, en hann hafði geymt
þrjá fálka, tvær branduglur og tvo
smyrla í frystikistu sinni. Lögregl-
an fór upphaflega í hús mannsins
til að leggja hald á skotvopn og
koma eiturefnum í viðeigandi
geymslu, en fann þá fuglana sjö og
lagði hald á þá.
Maðurinn sagðist hafa geymt
tvo fálka fyrir föður sinn og að
honum hefði verið gefin önnur
uglan og annar smyrillinn. Einn
fálkann hefði hann fundið dauðan,
aðra ugluna hefði hann ekið á, en
annan smyrilinn skotið sjálfur.
Smyrill er alfriðaður fugl og því
refsivert að skjóta hann, en auk
þess ber öllum þeim sem finna
friðaða fugla dauða eða ósjálf-
bjarga að afhenda þá Náttúru-
fræðistofnun Íslands.
Manninum var gert að greiða
tuttugu þúsund krónur í sekt fyrir
brot sitt, auk þess sem hann þarf
að láta af hendi smyrilinn sem
hann skaut sjálfur. Óvíst er hvað
verður um hina fuglana.
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son, fuglafræðingur hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands, telur að
endurskoða þurfi refsiákvæði við
svona brotum, svo ekki sé hægt að
hafa friðaða fugla í sinni vörslu
nema með leyfi. Löggjöfin sé of
flókin sem stendur, of auðvelt sé
að fela brot á borð við ólöglegar
veiðar og í raun þurfi sjónarvotta
til að sakfella þá sem stundi þær.
- sgj
Húsvíkingur sektaður fyrir að hafa fálka, branduglur og smyrla í frystikistu:
Viðurkenndi dráp á smyrli
FÁLKI Þrír fálkar fundust í frysti ákærða, en
íslenski fálkastofninn telur um eitt til tvö
þúsund fugla.
HONG KONG, AP Um 1.600 manns
láta lífið árlega í Hong Kong úr
sjúkdómum sem rekja má til loft-
mengunar, samkvæmt niðurstöð-
um rannsóknar sem kínverskir
háskólar kynntu nýlega.
Loftslag í borginni þykir fara
sífellt versnandi og mengunarský,
sem stafar af gríðarlegri bílaum-
ferð, kolaorkuverum og verk-
smiðjum, hylur gjarnan himininn.
Könnunin tekur til áranna 1995-
2000 og sýnir fram á sífellt fleiri
spítalainnlagnir vegna kvilla eins
og hjartaáfalla, heilablóðfalla,
lungnabólgu og fleiri lungnasjúk-
dóma. Í Hong Kong fara um 6,8
milljónir manna til læknis árlega
vegna mengunartengdra öndunar-
sjúkdóma. - kóþ
Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa áhyggjur af mengun:
Loftmengun banar
1.600 manns á ári
BÍLAUMFERÐ Í KÍNA Loftmengun í stórborgum Kína er mikið áhyggjuefni heilbrigðisyfir-
valda. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Fangi á Litla-Hrauni var
í gær dæmdur til að greiða máls-
varnarlaun verjanda síns en slepp-
ur að öðru leyti við dóm vegna
hálfs gramms af hassi sem fannst
í klefa hans.
Fanginn á langan sakaferil að
baki. Hann hefur sætt refsingum
fyrir umferðarlaga- og fíkniefna-
brot, líkamsárásir, skjalafals og
þjófnaði. Hann var dæmdur í
tveggja ára fangelsi og sviptur
ökuréttindum ævilangt með dómi
Hæstaréttar í október. Dómurinn
nær til 35 brota, þar af fyrir að
aka tíu sinnum sviptur ökurétti og
tvisvar undir áhrifum, sex þjófn-
aði, níu skjalafalsbrot, eina grip-
deild, fjóra nytjastuldi og tvö
fíkniefnalagabrot. - gag
Hass fannst í klefa:
Fangi dæmdurVerkfall í flugi Öryggisverðir á Kastrup-flugvelli lögðu niður störf í tvo tíma í
gærmorgun til að halda verkalýðsfund.
Kom þetta stjórn flugvallarins að óvörum
og seinkaði morgunflugi frá Kastrup um allt
að þrjátíu mínútur.
DANMÖRK
Keyrði fullur og próflaus Nítján
ára karlmaður var dæmdur til að greiða
sextíu þúsund króna sekt til ríkissjóðs.
Hann missir bílprófið í mánuð og þarf
að greiða tæp tvö hundruð þúsund í
málsvarnarlaun fyrir að hafa ekið ölvaður
og próflaus í Borgarnesi. Hann var ekki
orðinn sautján ára þegar hann braut af
sér. Dæmt var í Héraðsdómi Vesturlands.
DÓMSMÁL
Ekið á hjólreiðamann Hjólreiða-
maður varð fyrir bíl á Reykjavegi á
níunda tímanum í gærmorgun. Hann
slapp vel og var fljótt útskrifaður af
bráðamóttöku.
LÖGREGLUFRÉTTIR