Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 2
2 9. júní 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
��������������
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
SPURNING DAGSINS?
Daði, var þetta ekki vítavert
af þér?
„Jú, þetta var vítavert gagnvart Keflvík-
ingum og ásetningurinn algjör.“
Daði Lárusson, markvörður FH, var í gær
valinn leikmaður fimmtu umferðar Lands-
bankadeildarinnar af Fréttablaðinu en hann
varði tvær vítaspyrnur gegn Keflvíkingum á
mánudag.
Maðurinn sem lést
í umferðarslysi á
Elliðavatnsvegi á
þriðjudagskvöld
hét Hallgrímur Páll
Guðmundsson og
var til heimilis að
Hegranesi 25 í
Garðabæ.
Hallgrímur Páll
var 34 ára, fæddur
12. nóvember 1971. Hann var
ókvæntur en lætur eftir sig fjög-
urra ára son. - sh
Hallgrímur Páll Guðmundsson:
Lést í bílveltu
HALLGRÍMUR
PÁLL GUÐ-
MUNDSSON
ÍSLAND-RÚSSLAND Mikhaíl Y. Frad-
kov, forsætisráðherra Rússlands,
átti viðræður við íslenskan starfs-
bróður sinn í Ráðherrabústaðnum
í gær, í kjölfar leiðtogafundar
Eystrasaltsráðsins sem báðir sátu.
Bar þar meðal annars á góma
áhuga Rússa á samstarfi við
Íslendinga í virkjun jarðhita.
Fradkov tók fram að rússnesk
yfirvöld hefðu ekki í hyggju að
hindra innflutning á íslenskum laxi
til Rússlands en fregnir fyrr í vik-
unni hermdu að Rússar hygðust
setja upp tollahindranir þar sem
Norðmenn hefðu reynt að komast
hjá slíkum hömlum sem gilda um
norskan lax með því að merkja
sinn lax sem íslenskan. - aa
Forsætisráðherrafundur:
Ræddu jarðhita
og viðskipti
FUNDUÐU Í RÁÐHERRABÚSTAÐ Forsætis-
ráðherrar Rússlands og Íslands, Mikhaíl Y.
Fradkov og Halldór Ásgrímsson, í Tjarnar-
götunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍRAK, AP Æðsti maður al-Kaída
hryðujuverkanetsins í Írak, Abu
Musab al-Zarqawi, lét lífið í loftár-
ásum Bandaríkjahers skammt frá
Bagdad aðfaranótt fimmtudags, að
sögn Nouri al-Maliki, forsætisráð-
herra Íraks, í gær. Fregnin var
jafnframt staðfest á vefsíðu al-
Kaída í Írak.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti var kampakátur yfir fregnum
af láti al-Zarqawis og sagði dauða
hans vera mikið áfall fyrir hryðju-
verkanetið. Jafnframt væri fráfall
uppreisnarforingjans mikil hvatn-
ing fyrir lýðræðið í Írak, að sögn
Bush. Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tók undir með Bush, en
báðir bættu við að dauði foringj-
ans þýddi ekki endalok stríðsins.
Faðir eins meints fórnarlambs
al-Zarqawi, Bandaríkjamaðurinn
Michael Berg, sagði blaðamönnum
í gær að hann óttaðist að dauði
hryðjuverkaforingjans myndi ein-
göngu leiða til enn frekari hefnd-
araðgerða og meira mannfalls.
Ný skoðanakönnun sem birt var
fyrr í vikunni sýndi að 59 prósent
Bandaríkjamanna telja að Banda-
ríkin hafi gert mistök með því að
ráðast inn í Írak, en ljóst þykir að
ráðgjafar Bush vona að þessar nýj-
ustu fregnir auki vinsældir forset-
ans og stuðning við stríðið.
- smk/sjá bls. 6 og 16
Æðsti maður al-Kaída hryðjuverkanetsins í Írak:
Al-Zarqawi fórst í loftárás
DAUÐA FAGNAÐ Þessir lögreglumenn frá
Írak ásamt aldraðri konu fögnuðu í gær
fregnum af fráfalli Abu Musab al-Zarqawi,
leiðtoga al-Kaída í Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Verkfall leyst á NRK Fréttamenn
Ríkisútvarps Noregs aflýstu verkfalli
og sneru aftur til starfa í gær eftir
sáttatilboð um launahækkun upp á
14.000 krónur norskar á ári, eða 168.000
íslenskar. Þeir höfðu áður hafnað um
það bil 72.000 króna launahækkun.
NOREGUR
Töf á flugi Bilað ratsjárkerfi neyddi
flugyfirvöld í Svíþjóð til að stöðva alla
flugumferð um aðalflugvelli landsins í
gær. Lá allt flug niðri í um tvo tíma frá
25 flugvöllum. Töfin hófst um klukkan
10:30 að staðartíma og tók neyðar-
ratsjárkerfi þegar til starfa svo að vélar
sem voru í loftinu gátu lent með aðstoð
þess. Ekki bárust tilkynningar um nein
óhöpp vegna atviksins.
SVÍÞJÓÐ
STJÓRNMÁL Enn er óvíst
hvenær flokksþing
Framsóknarflokksins
verður haldið en það
er verkefni miðstjórn-
arfundar að taka um
það ákvörðun. Mið-
stjórnin kemur saman
í Súlnasal Hótel Sögu
klukkan fjögur í dag, líkt og lands-
stjórn ákvað fyrir réttri viku. Um
150 manns sitja í miðstjórninni
sem fundar að jafnaði tvisvar á
ári.
Enn hefur ekki tekist að halda
fund í framkvæmdastjórn flokks-
ins en í henni sitja formaður,
varaformaður, ritari og formenn
þingflokks, Landssambands
framsóknarkvenna og Sambands
ungra framsóknarmanna. Reynt
verður að koma framkvæmda-
stjórninni saman fyrir miðstjórn-
arfundinn í dag og ná sátt um til-
lögu að tímasetningu
flokksþingsins. Sú
tillaga verður svo
borin undir mið-
stjórn. Náist ekki
sátt er viðbúið að
tvær eða jafnvel
fleiri tillögur að
tímasetningu verði
bornar upp til atkvæðagreiðslu á
miðstjórnarfundinum.
Halldór Ásgrímsson hefur sagt
það vilja sinn að flokksþingið
verði haldið snemma í haust en á
því mun hann láta af formennsku.
Aðrir, meðal annars Guðni Ágústs-
son, vilja á hinn bóginn að þingið
verði haldið sem fyrst.
Á fundinum í dag mun Halldór
Ásgrímsson flytja ræðu og í kjöl-
farið verða almennar umræður um
stöðu Framsóknarflokksins. Er við-
búið að margir láti skoðanir sínar í
ljós enda málið brennandi. - bþs
Miðstjórn Framsóknarflokksins fundar síðdegis:
Staðan rædd í þaula
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær fimm ára fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir Guð-
bjarti J. Sigurðssyni fyrir tilraun
til manndráps í júlí 2004.
Guðbjartur var dæmdur fyrir
að hafa lagt til leigubílstjóra með
eggvopni með þeim afleiðingum
að hann hlaut hættulegan skurð-
áverka á hálsi. Einn dómari
Hæstaréttar skilaði séráliti og
vildi sýkna Guðbjart því ekki hefði
verið sannað að félagar hans, sem
voru með honum í leigubílnum,
hefði ekki getað lagt til bílstjór-
ans. Guðbjartur var dæmdur til að
greiða tæpar 660.000 krónur í
áfrýjunarkostnað. - shá
Dæmdur í fimm ára fangelsi:
Skar leigubíl-
stjóra á háls
Fékk þjáningabætur Fangi á
Litla-Hrauni fékk í gær staðfestan rétt
sinn fyrir Hæstarétti til þjáningabóta
vegna meiðsla sem hann varð fyrir á
Litla-Hrauni þegar annar fangi réðst á
hann og veitti honum áverka í andliti.
Fanginn sem varð fyrir árásinni var
ósáttur við þjónustuna sem hann fékk
hjá fangelsisyfirvöldum og fer fram á
þjáningabætur.
DÓMSMÁL
KJARAMÁL Læknanemar sem hafa
átt í kjaradeilu við yfirstjórn
Landspítalans undanfarna viku
náðu í gær samningum við yfir-
stjórn spítalans og samkvæmt
Eyjólfi Þorkelssyni, talsmanni
þeirra, hugðust þeir mæta til
vinnu strax í dag.
Læknanemar efndu til mót-
mælasetu í anddyri spítalans í
hádeginu gær og þangað mættu
flestir þeirra 35 nema sem réðu
sig til starfa á spítalann. Talsmenn
þeirra, Eyjólfur og Gunnar Thor-
arensen, áttu í kjölfarið fund með
Nils Christian Nilsen, staðgengli
lækningaforstjóra, sem kynnti
þeim nýtt sáttaboð og var gengið
að því boði eftir að talsmennirnir
áttu fund með læknanemunum.
Læknanemar mættu ekki til
vinnu í vikunni eins og til stóð þar
sem stjórn Landspítalans hafði
ákveðið að greiða þeim ekki það
tólf prósenta vaktaálag sem þeir
höfðu fengið undanfarin ár. Yfir-
stjórn spítalans sagði ástæðuna
vera nýlega kjarasamninga ung-
lækna sem gerðu það að verkum
að ekki væri lengur réttlætanlegt
að greiða þeim vaktaálagið, þá
væri verið að tvíbæta kjörin.
„Hérna áður fyrr voru unglæknar
á lélegum kjörum. Læknanemar
fá hlutfall af þessum launum
unglækna og því fengu þeir mjög
lítið í sinn hlut. Nú í síðustu kjara-
samningum fengu unglæknar hins
vegar mjög miklar kjarabætur
umfram aðra lækna. Þess vegna
var þetta álag á vaktirnar dregið
til baka,“ sagði Nils Christian fyrir
fundinn í gær.
Þetta sættu læknanemar sig
ekki við. „Við teljum að það sé
ekki rétt að breikka launamun
milli læknanema og unglækna. Á
vöktunum göngum við í störf
aðstoðarlækna með allri þeirri
ábyrgð og álagi sem því fylgir. Við
sjáum enga ástæðu fyrir því að
við eigum að fara varhluta af eðli-
legu launaskriði og verðþróun í
landinu,“ sögðu talsmenn þeirra í
gær fyrir fundinn.
Talsmenn læknanema funduðu
svo með Nils, sem kynnti þeim til-
boðið. Í kjölfarið kynntu þeir það
fyrir læknanemunum, sem féllust
á það og sögðust myndu mæta til
vinnu í dag. Ekki fékkst uppgefið
hvernig samningarnir hljóðuðu
eða hvað í þeim fólst en Eyjólfur
segir að í tillögunni hafi málið
verið „nálgast frá nýjum grund-
velli“. stigur@frettabladid.is
Nemarnir hugðust
mæta til vinnu í dag
Kjaradeila 35 læknanema við Landspítalann hefur verið leyst og nemarnir sögð-
ust í gær myndu mæta til vinnu í dag. Lausnin fékkst í kjölfar mótmælasetu
nemanna í anddyri spítalans. Ekki fékkst uppgefið hvað fólst í samningunum.
MÓTMÆLI Læknanemarnir sátu í anddyri Landspítalans í gær í mótmælaskyni en hugðust mæta til vinnu í dag. Gunnar Thorarensen og
Eyjólfur Þorkelsson, talsmenn læknanemanna, eru fremstir á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SLÖKKVILIÐ Bruni varð í gærmorg-
un í tómu húsnæði við Súðarvog
36 sem verktakar voru að gera
upp. Þrír menn lokuðust inni á
annarri hæð hússins vegna reyks
og þurfti slökkvilið að reisa stiga
til að bjarga mönnunum út. Menn-
ina sakaði ekki.
Eldurinn virðist hafa átt upptök
sín í loftræstistokki hússins og
þurfti slökkvilið að rífa hann burtu
ásamt hluta af þakinu til að komast
að eldinum. Reykræsta þurfti einn-
ig nærliggjandi hús. Húsnæðið var
áður í eign 66° Norður, en bíður nú
þess að nýir eigendur taki við því
eftir að viðgerðum lýkur. - sgj
Eldsvoði í Súðavogi:
Þrír menn
lokuðust inni
BRUNINN Í SÚÐAVOGI Slökkviliðsmenn við
störf í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dýr vatnsréttindi Lögmaður
Landsvirkjunar segir að kröfur eigenda
vatnsréttinda vegna Kárahnjúkavirkjunar
séu í engu samræmi við fordæmi. Land-
eigendur krefjast 96 milljarða króna en
Landsvirkjun segir að hæfilegt verð sé á
milli 150 og 375 milljóna króna.
NÁTTÚRA