Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 72
9. júní 2006 FÖSTUDAGUR56
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Icelandair hefur verið,
er og verður dyggur
stuðningsaðili íslenska
landsliðsins í fótbolta í
harðri keppni á meðal
stórþjóða heimsins.
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
SAN FRANCISCO
MINNEAPOLIS – ST. PAUL
ORLANDO
BOSTON
ÍSLAND
REYKJAVÍK
GLASGOW
MANCHESTER
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLIN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓAMSTERDAM
ZÜRICH
MADRID
BARCELONA
LONDON
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
ÍS
LE
N
S
K
A
A
U
G
LÝ
S
IN
G
A
S
TO
FA
N
/S
IA
.IS
I
C
E
3
3
0
7
7
0
6
/2
0
0
6
FÓTBOLTI Allt iðar nú af lífi í Þýska-
landi enda er stærsta fótbolta-
veisla heims að fara af stað í dag,
Heimsmeistarakeppnin. Mikil
spenna ríkir fyrir keppnina, sem
stendur í heilan mánuð, og munu
allar helstu fótboltastjörnur heims
láta ljós sitt skína. Mikið verður
um dýrðir þegar opnunarleikur-
inn fer fram í dag. Þá mæta gest-
gjafar Þýskalands liði Kosta Ríka
klukkan 16 en þjóðirnar hafa
aldrei áður mæst í opinberum leik.
Þjóðverjar hafa verið gagnrýndir
töluvert fyrir mótið og þeim er
spáð mjög misjöfnu gengi.
Fyrirliðinn Michael Ballack,
skærasta stjarna Þýskalands,
meiddist á kálfa í æfingaleik gegn
Kólumbíu fyrir viku síðan og verð-
ur ekki með í opnunarleiknum en
það eru gríðarleg vonbrigði fyrir
heimamenn. „Þetta er áfall en alls
enginn heimsendir. Maður kemur í
manns stað og hann ætti að vera
orðinn leikfær í öðrum leik okkar
gegn Póllandi næsta miðvikudag,“
sagði Jürgen Klinsmann, þjálfari
Þýskalands. Ballack gekk nýlega
til liðs við enska félagiðið Chelsea.
Jens Lehmann, leikmaður Ars-
enal, hafði betur í samkeppninni
við Oliver Kahn um markmanns-
stöðuna og hefur verið yfirlýsinga-
glaður að vanda fyrir keppnina.
„Við eigum að mínu mati góða
möguleika á sigri í keppninni. Við
vitum alveg hvað við þurfum að
gera og munum komast langt,“
sagði Lehmann, sem gat ekki stillt
sig um að skjóta aðeins á enska
landsliðið en það á sinn fyrsta leik
gegn Paragvæ á morgun. „Eng-
lendingar eru vissulega með gott
lið en valda alltaf vonbrigðum á
stórmótum og þetta ár verður
engin undantekning á því.“
Augu heimsins munu beinast
að helstu sóknarmönnum beggja
liða í opnunarleiknum, Miroslav
Klose hjá Þýskalandi og Paulo
Wanchope hjá Kosta Ríka. Klose
skoraði þrennu í fyrsta leik Þýska-
lands á síðustu heimsmeistara-
keppni þegar 8-0 sigur vannst á
Sádi-Arabíu en hann varð marka-
kóngur á nýliðnu tímabili í Þýska-
landi. Margir muna eftir Wanchope
frá því hann var í enska boltanum
en hann hefur gríðarlega mikla
reynslu og er leikjahæsti maður
Kosta Ríka frá upphafi með 43
mörk í 67 landsleikjum.
Sýn sendir beint út frá öllum
leikum mótsins en klukkan 14:30 í
dag hefst útsending frá opnunar-
hátíð keppninnar. Auk Þýskalands
og Kosta Ríka eru Pólland og Ekv-
ador í A-riðlinum en þau lið munu
mætast klukkan sjö í kvöld. Þess-
ar þjóðir mættust síðast í vináttu-
landsleik í nóvember á síðasta ári
og þá unnu Pólverjar öruggan 3-0
sigur. Ekvadorar eru líklega stað-
ráðnir í því að ná fram hefndum
en þeir komust upp úr hinum
sterka Suður-Ameríku riðli undan-
keppninnar.
elvar@frettabladid.is
Veislan byrjar án Ballack
Opnunarleikur Heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi fer fram í dag þegar
gestgjafarnir mæta Kosta Ríka. Michael Ballack getur þó ekki tekið þátt.
EKKI MEÐ Í DAG Michael Ballack fær hér aðstoð frá félaga sínum Torsten Frings eftir að
hafa meiðst gegn Kólumbíu. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Í Þýskalandi snýst
nákvæmlega allt um Heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu sem hefst í
dag. Búið er að framleiða ógrynn-
in öll af sérstökum minjagripum,
fótboltum, bjórglösum og ýmsi-
legu tengdu mótinu en til að toppa
allt eru þvagskálarnar í alþjóð-
legu fjölmiðlaráðstefnuhöllinni í
Munchen með knattspyrnuvelli á.
Með þessu er vonast til þess að
menn miði betur þegar þeir
skvetta af sér en það var enginn
annar en Sepp Blatter, forseti
FIFA, sem vígði skálarnar. Í þvag-
skálunum er fótboltavöllur með
marki á sem maður á að miða í.
Þrátt fyrir að maður hitti ekki í
markið rennur allt þó rétta leið,
svo lengi sem það er innan vallar-
ins. - hþh
HM byrjar í dag:
Sérstakar þvag-
skálar í boði
ÞVAGSKÁLARNAR GÓÐU Hér sést ein þvag-
skálanna sem í boði eru. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Andreas Isaksson, mark-
vörður sænska landsliðsins, getur
ekki spilað á laugardaginn gegn
Trínidad og Tóbagó. Hann fékk
þrumuskot frá Kim Källström í
andlitið á æfingu á miðvikudaginn
og fékk í kjölfarið heilahristing.
Hann verður frá í nokkra daga
vegna þessa.
Rami Shaaban, fyrrum mark-
vörður Arsenal, eða John Alvbage
sem spilar í Danmörku, mun
standa í markinu í stað Isaksson.
Hvorugur þeirra er með mikla
landsliðsreynslu en Alvbage lék
sinn fyrsta landsleik í janúar.
Annar leikur Svía er gegn Para-
gvæ hinn 16. júní og svo mæta
þeir Englandi 20. júní. - egm
Meiðsli hjá sænska liðinu:
Isaksson fékk
heilahristing
HEILAHRISTINGUR Hér er Isaksson eftir
skotið frá Källström. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Marcello Lippi, þjálfari
Ítalíu, hefur lofað því að raka silf-
urlitaða hárið á höfði sínu ef liðinu
tekst að sigra á HM.
Einn hárprúður ljósmyndari á
blaðamannafundi Ítalíu var beð-
inn um að færa sig aðeins og þá
sagði Lippi í gríni: „Færðu þig eða
klipptu af þér hárið.“ Þá sagði ljós-
myndarinn: „Ég skal lofa að raka
það af ef við vinnum HM,“ og
Lippi svaraði: „Ef við HM þá ég
lofa að gera það líka!“ - egm
Marcello Lippi, þjálfari Ítalíu:
Hárið fer ef við
vinnum HM
FÓTBOLTI Markvörðurinn Nigel
Martyn hefur neyðst til að hætta
knattspyrnuiðkun alfarið vegna
ökklameiðsla sem hafa haldið
honum frá keppni síðan í janúar.
Martyn er 39 ára og var í herbúð-
um Everton.
Hann er fyrrum landsliðsmark-
vörður Englands og leikmaður
Leeds. - egm
Meiðsli Nigel Martyn:
Martyn hættur
í boltanum