Fréttablaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 73
FÖSTUDAGUR 9. júní 2006 57
FÓTBOLTI Eftir læknisskoðun er
komið í ljós að Wayne Rooney
verður með enska landsliðinu á
HM. Þessi tvítugi framherji sneri
aftur til Þýskalands frá Englandi
og æfði með enska liðinu í gær.
„Ég geri þetta í hag Rooney,
enska landsliðsins og fjörutíu
milljón aðdáenda enska landsliðs-
ins. Ég er tilbúinn að hlusta á hvað
sem er og ræða um Rooney en
þetta er ákvörðunin,“ sagði Sven-
Göran Eriksson landsliðsþjálfari
en spurningar vakna um það hvort
hann eigi að hafa Rooney með ef
hann er ekki í neinu formi.
Ólíklegt er að að hann geti spil-
að í riðlakeppninni en hann mun
nú æfa af krafti í von um að geta
spilað eftir hana, svo lengi sem
Englendingar komist áfram.
Óvíst er þó um þátttöku Steven
Gerrard í fyrsta leiknum gegn
Paragvæ á morgun en hann æfði
ekkert á miðvikudaginn og tók
aðeins lítillega þátt í æfingu í gær
vegna bakmeiðsla.
„Bakið hefur verið að angra
mig undanfarna daga. Ég fékk
högg á mjöðmina og sársaukinn
leiddi út frá sér. Ég á fína mögu-
leika á að spila ef ég held áfram að
leggja hart að mér og ef þetta
heldur áfram að gróa. Eins og
staðan er núna á ég samt aðeins
helmingsmöguleika á því að spila,“
sagði Gerrard.
- hþh
Wayne Rooney getur spilað á HM í sumar og enska þjóðin varpar öndinni léttar:
Meiðslalaus en skortir leikform
GAMAN Það var ekki leiðinlegt á æfingu
hjá enska landsliðinu í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Að stöðva hinn ógnar-
hávaxna Peter Crouch er aðal-
áhyggjuefni Paragvæa fyrir leik-
inn gegn Englandi á HM á
laugardaginn. „Peter Crouch veld-
ur mér áhyggjum. Maður sér
sjaldan svona leikmenn, mjög
sjaldan. Hann er mjög sterkur
leikmaður og boltameðferð hans
er mjög góð. Hann hefur auk þess
mjög gott auga fyrir spili,“ sagði
Anibal Ruiz, þjálfari Paragvæ, um
hinn 2,04 metra háa Crouch.
Crouch spilaði mjög vel með
enska landsliðinu í lokaæfingaleik
þess gegn Jamaíka í vikunni þar
sem hann minnti rækilega á vél-
mennadansinn ódauðlega sem
hann tekur þegar hann fagnar
mörkum sínum, en hann skoraði
þrennu í leiknum.
„Ég er hrifinn af þessu fagni,
en ég vil alls ekki sjá það á laugar-
daginn,“ sagði Roque Santa Cruz,
leikmaður Paragvæ. - hþh
Þjálfari Paragvæ:
Óttast mjög
Peter Crouch
GNÆFIR UPP ÚR Peter Crouch gnæfir yfir
alla leikmenn enska landsliðsins.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Vonir Liverpool um að
selja Djibril Cisse í sumar eru
roknar út í veður og vind eftir að
hann fótbrotnaði í landsleik
Frakka og Kína í fyrradag. „Ég
finn mikið til með Djibril. Hann er
mjög óheppinn en núna er ómögu-
legt að við getum selt hann,“ sagði
Rafael Benítez, stjóri Liverpool, í
gær.
Liverpool var í viðræðum við
Lyon og Marseille um átta milljón
punda sölu á Cisse. „Við ætluðum
að selja hann og nota peninginn í
aðra leikmenn. Núna höfum við
ekki peningana og engan leikmann
í hálft tímabil,“ bætti Benítez við.
Liverpol vonaðist eftir því að
kaupa Daniel Alves og Dirk Kyut
auk annars framherja, líklega
Darren Bent eða Craig Bellamy.
Hvort Liverpool hafi efni á þrem-
ur dýrum leikmönnum, án þess að
fá peninga fyrir Cisse, verður að
koma í ljós.
- hþh
Mikið áfall fyrir Liverpool:
Óheppnin eltir
Djibril Cisse
ÓTRÚLEGA ÓHEPPINN Djibril Cisse fót-
brotnaði einnig í október árið 2004 og var
frá mestan hluta tímabilsins. Hann verður
líklega frá út árið 2006 í þetta skiptið.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Ronaldo
gat ekki æft með brasilíska liðinu
í gær vegna veikinda. Hann fór af
velli í æfingaleik gegn Nýja-
Sjálandi síðasta sunnudag vegna
þess að hann var með blöðrur á
fótunum en hefur jafnað sig af
því.
Hann vaknaði með hita í gær-
morgun og tók ekki þátt í æfing-
um. Fyrsti leikur liðsins á HM
verður gegn Króatíu hinn 13. júní.
Ronaldo var markakóngur á
HM 2002 með átta mörk en hann
missti af síðustu leikjum spænsku
deildarinnar í vetur vegna meiðsla.
Hann hefur skorað jafn mörg
mörk á HM og Pelé, tólf talsins.
- egm
Brasilíska landsliðið:
Ronaldo æfði
ekki í gær
FÓTBOLTI Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, fer fram á að aðeins
verði átján lið í stærstu deildum
Evrópu frá og með tímabilinu
2007-08. „Við erum tilbúnir að fara
að vinna að því af krafti að helstu
deildir innihaldi í mesta lagi átján
félög,“ sagði Sepp Blatter, forseti
FIFA. Þar er hann að tala um deild-
irnar á Englandi, Spáni, Ítalíu og
Frakklandi.
Ef þessar breytingar verða
koma fjórir landsleikjadagar til
viðbótar inn á ári hverju. Dan
Johnson, talsmaður ensku úrvals-
deildarinnar sem hefur tuttugu lið
innanborðs, segir að ólíklegt sé að
fækkað verði í deildinni.
FIFA ætlar að gefa út beiðni:
Vill bara átján
lið í deildunum