Fréttablaðið - 23.06.2006, Síða 2
2 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
������� ������������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
ÍSRAEL, AP Ísraelsk lögregla vinnur
nú að rýmingu á ólöglegum land-
tökubyggðum Ísraela á Vesturbakk-
anum, en margir gyðingar hafa
byggt hús eða sett niður hjólhýsi án
leyfis á svæðum Palestínumanna.
Lögreglan ætlar sér að flytja land-
tökufólkið burt með herinn sér til
fulltingis, en þessar byggðir eru um
hundrað talsins, sumar hverjar
nálægt löglegum byggðum gyð-
inga.
Með þessu efnir Ísraelsstjórn
loforð sem hún gaf Bandaríkja-
stjórn fyrir þremur árum um að
rýma landtökubyggðir, en nýr varn-
armálaráðherra Ísraels, Amir Per-
etz, vill rýma þær allar. - sgj
Ísraelsk lögregluaðgerð:
Rýming land-
tökubyggða
SPURNING DAGSINS
Einar, eru veðurhorfurnar
góðar fyrir umhverfisráð-
herra?
„Umhverfisráðherra, eins og aðrir
landsmenn, horfir björtum augum
fram á sumarið sem rétt er að byrja.“
Einar Sveinbjörnsson var nýverið ráðinn
aðstoðarmaður Jónínu Bjartmarz umhverfis-
ráðherra. Einar er veðurfræðingur að mennt
og hefur starfað sem slíkur undanfarin ár.
SJÓNVARP Sjónvarpið fær sýning-
arrétt frá heimsmeistarkeppninni
í knattspyrnu árið 2010, sem hald-
ið verður í Suður-Afríku.
Þetta staðfesti Páll Magnússon-
útvarpsstjóri, í samtali við blaða-
mann Fréttablaðsins.
Samtök evrópskra sjónvarps-
og útvarpsstöðva, EBU, sem Rík-
isútvarpið á aðild að, fær sýning-
arréttinn að keppninni nú á
dögunum.
Páll segir að Sjónvarpið muni
hvergi slá slöku við í umfjöllun
sinni um heimsmeistaramótið
þegar þar að kemur og mögulega
verði hægt að sjá alla leikina í
beinni útsendingu, eins og íslenskt
fótboltaáhuga-
fólk hefur vanist.
„Á þessum
fjórum árum sem
eru í næstu
keppni, verða
gerðar margvís-
legar breytingar
á dreifikerfi
Sjónvarpsins hvað varðar staf-
ræna tækni. Ég reikna fastlega
með því að tæknilegir möguleikar
okkar til að senda út alla leikina
beint verði fyrir hendi eftir fjögur
ár,“ segir Páll.
Hins vegar er alls óvíst að sögn
Samúels Arnar Erlingssonar, yfir-
manns íþróttadeildar Ríkisút-
varpsins, hvort Sjónvarpið verði
með sýningarréttinn á Evrópu-
mótinu í knattspyrnu, sem fram
fer í Sviss og Austurríki að tveim-
ur árum liðnum. - æþe
Sjónvarpið fær sýningarrétt á HM í knattspyrnu árið 2010:
RÚV opni íþróttarás fyrir HM
DÓMSMÁL Sigurður Tómas Magn-
ússon, settur saksóknari í Baugs-
málinu, mótmælti því harðlega í
munnlegum málflutningi fyrir
dómi í gær að svo viðamiklir gall-
ar væru á ákæruliðum í málinu að
vísa þyrfti því frá í heild sinni.
Þvert á móti væri það „brýnt að
málið fengi efnislega meðferð“.
Verjendur sakborninga í mál-
inu hafa haldið því fram til þessa
að svo miklir ágallar væru á
ákærunni, að dómarinn hefði ekki
aðra kosti „en að vísa málinu frá í
heild sinni“, eins og Jakob Möller,
lögmaður Tryggva Jónssonar,
sagði í ræðu sinni fyrir dómi í
gær.
Sigurður Tómas lagði áherslu á
það að öllum réttarfarsreglum
hefði verið fylgt við meðferð máls-
ins. Hann sagði það ekki óeðlilegt
að ákært hefði verið í málinu að
nýju, þrátt fyrir að Hæstiréttur
hefði vísað 32 ákæruliðum af
fjörutíu frá dómi vegna ágalla og
sýknað sakborninga í þeim átta
liðum sem eftir voru. „Ákærðu, og
verjendur þeirra, höfðu aldrei
réttmæta ástæðu til að ætla að
frávísunardómur Hæstaréttar
væri endanlega niðurstaða,“ sagði
Sigurður Tómas.
Sigurður Tómas deildi við verj-
endur um fyrningarfrest vegna
endurákæru í Baugsmálinu og
sagði löggjafann hafa markað
„ákveðin tímamörk sem miði að
því að aðgerðarleysi ákæruvalds-
ins í sex mánuði leiði til fyrning-
ar“. Sagði hann sex mánuði ekki
hafa liðið þangað til endurákært
hefði verið.
Gestur Jónsson, lögmaður Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar, hélt því
fram fyrir dómi að þar sem engar
reglur væru um fyrningarfrest
vegna endurákæru í íslenskum
lögum þá væri það „háð geðþótta-
ákvörðunum sem sakborningar
geti ekki með nokkru móti séð
fyrir“, hvort endurákært yrði í
málum eða ekki. Gestur sagði það
ekki stutt neinum reglum eða
lögum, að fyrningarfresturinn í
málum eins og þessum væri sex
mánuðir. Þvert á móti myndi það
„stríða gegn Mannréttindasátt-
mála Evrópu“.
Sigurður Tómas vísaði því
alfarið á bug að Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra, væri vanhæf-
ur í málinu. „Bréfaskiptin skipta
engu máli um það hvort settur
saksóknari í málinu er vanhæfur í
málinu eða ekki. Eins og Stefán
Eiríksson, skrifstofustjóri dóms-
og kirkjumálaráðuneytisins,
greindi frá í Fréttablaðinu, var
eingöngu um að ræða formlega
afgreiðslu að ræða sem ráðuneyt-
ið setur ekki sjálfstætt mark sitt
á.“
Jakob Möller sagði bréfið und-
irritað fyrir hönd dómsmálaráð-
herra og það sýndi að afskipti hans
af málinu hefðu verið óeðlileg.
„Ljóst er að bréfið var sent
17. mars, tveimur dögum eftir að
sýknudómur héraðsdóms féll, og
með bréfinu hafði dómsmálaráð-
herra bein afskipti af rannsókn
málsins. Þess vegna er ljóst, að
hann er vanhæfur í málinu, sem
gerir settan saksóknara vanhæfan
til þess að fara með málið fyrir
hönd ákæruvaldsins,“ sagði Jakob
í lok ræðu sinnar í gær.
Munnlegum málflutningi um
frávísunarkröfu ákærðu í málinu
er lokið. Arngrímur Ísberg, dóm-
ari í málinu, kveður upp úrskurð
um frávísunarkröfuna innan
þriggja vikna. magnush@frettabladid.is
Hæstaréttardómur
ekki lokaniðurstaða
Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, sagði fyrir dómi
í gær að ákærðu hefðu aldrei getað ætlað það að frávísunardómur Hæstaréttar
væri endanleg niðurstaða. Það verður að vísa málinu frá, segir Gestur Jónsson.
SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON Sigurður Tómas lagði á það áherslu í máli sínu að Baugsmálið yrði að fá efnislega málsmeðferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GESTUR JÓNSSON, JAKOB MÖLLER OG BRYNJAR NÍELSSON Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, Tryggva Jónssonar og Jóns Geralds Sullenberger krefjast frávísunar á málinu. Jón
Ásgeir er ákærður fyrir fjár- og umboðssvik en samtals nema upphæðirnar í málinu 358,6
milljónum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
DÓMSMÁL Brynjar Níelsson, lög-
maður Jóns Geralds Sullenberger,
hélt því fram fyrir dómi í gær að
það stríddi gegn
stjórnvaldsákvörð-
un að ákæra Jón
Gerald Sullenber-
ger, þar sem Jón H.
Snorrason, sækjandi
í fyrra Baugsmál-
inu, hefði ekki séð
ástæðu til þess að
ákæra Jón Gerald.
Sú ákvörðun að
ákæra Jón Gerald
væri því nægilegt tilefni til þess
að vísa málinu frá dómi.
Sigurður Tómas Magnússon
sagði ekkert hafa verið því til fyr-
irstöðu að ákæra Jón Gerald. Hann
hefði að mati sækjanda gerst brot-
legur og mikilvægt væri að fá úr
því skorið með efnislegri meðferð
fyrir dómi. - mh
Verjandi Jóns Geralds:
Segir ákæruna
ekki standast
DÓMSMÁL Jón H. Snorrason, yfir-
maður efnahagsbrotadeildar rík-
islögreglustjóra, segir boðun Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar til yfir-
heyrslu ekki hafa átt að koma
honum á óvart. „Jón Ásgeiri var
gerð grein fyrir því, skömmu fyrir
áramótin 2004 til 2005, af hálfu
skattrannsóknarstjóra að meint
brot hans yrðu send til ríkislög-
reglu. Þetta mál varðar allt önnur
sakarefni heldur en þau sem eru
til umfjöllunar fyrir dómstólum.“
Samkvæmt boðunarbréfi Jóns
Ásgeirs hefur ríkislögreglustjór-
inn til meðferðar mál vegna
meintra brota gegn skattalögum,
lögum um bókhald, lögum um árs-
reikninga og almennum hegning-
arlögum í tengslum við rekstur
félaganna Baugs Group hf., Fjár-
festingafélagsins Gaums ehf. og
Fjárfars ehf.
Fleiri hafa verið kallaðir til
yfirheyrslu í tengslum við málið
en Jón H. Snorrason vildi ekki
gefa upp hverjir það væru,
aðspurður. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins eru það Kristín
Jóhannesdóttir, systir Jóns
Ásgeirs, Stefán Hilmarsson, end-
urskoðandi og Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Baugs.
Jón Ásgeir hefur verið boðaður
til yfirheyrslu miðvikudaginn
28. júní klukkan tíu, á skrifstofu
efnahagsbrotadeildar á Skúlagötu
21. - mh
Jón H. Snorrason segir mál gegn Jóni Ásgeiri hafa verið rannsakað um skeið:
Átti ekki að koma á óvart
DÓMSMÁL Jón Þór Ólason, aðstoð-
armaður Sigurðar Tómasar Magn-
ússonar, setts saksóknara í Baugs-
málinu, er samkvæmt
upplýsingum frá dómsmálaráðu-
neytinu enn starfsmaður ráðu-
neytisins.
Hann er skráður í leyfi frá
störfum sínum hjá ráðuneytinu
þar sem hann hefur unnið í
Háskóla Íslands við kennslu, auk
þess að vinna við framgang og
rannsókn Baugsmálsins.
Verjendur ákærðu minntust á
það fyrir dómi að „tengsl dóms-
málaráðuneytisins við framgang
málsins væru öllum ljós“, og
tengsl Jóns Þórs Ólasonar við
ráðuneytið sýndu það, þar sem
hann væri starfsmaður ráðuneyt-
isins. - mh
Aðstoðarmaður saksóknara:
Vinnur í dóms-
málaráðuneyti
JÓN H. SNORRASON Segir boðunina ekki hafa átt að koma Jóni Ásgeiri á óvart.
PÁLL MAGNÚSSON
UNGVERJALAND, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í
Búdapest í gær að „frelsinu megi
slá á frest en ekki ræna því varan-
lega af fólki“, og vísaði þar með
bæði til áratugalangrar baráttu
Ungverja fyrir því að losna undan
oki kommúnismans, en einnig til
núverandi stöðu íröksku þjóðarinn-
ar og baráttu fleiri þjóða gegn oki
og ófrelsi.
„Þær munu sækja innblástur í
fordæmi ykkar og eygja von í
árangri ykkar,“ sagði Bush í ávarpi
til valinna boðsgesta í Búda-kastala.
Bush minntist þess að nú eru liðin
rétt 50 ár frá uppreisninni í Ung-
verjalandi, sem Sovétherinn barði
niður með blóðugu valdi. - aa
Bandaríkjaforseti í Búdapest:
Bush minntist
frelsisbaráttu
Í BÚDA Bush talar í garði Búda-kastala,
með Dóná og Pest í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Sættir hafa ekki náðst í
máli starfsmanna IGS, sem sér
um þjónustustörf í Leifsstöð,
vegna fyrirhugaðrar vinnustöðv-
unar þeirra á sunnudagsmorgun.
Samkvæmt þeim sem aðild eiga að
málinu er allt í járnum og hefur
starfsfólk enn í hyggju að hætta
vinnu milli klukkan fimm og átta á
sunnudagsmorgun.
Ragnar Árnason hjá Samtökum
atvinnulífsins sagðist vona að þeir
sem ætluðu að taka þátt í mótmæl-
unum sæju að sér þar sem um
ólöglegt athæfi sé að ræða. Hann
sagði að ekki væru sérstakar
samningaviðræður á takteinum
vegna þessa máls. - sþs
Mótmæli í Leifsstöð:
Enn áform um
vinnustöðvun
JÓN GERALD
SULLENBERGER
HM Útvarpsstjóri telur að Sjónvarpið muni
geta sent alla leiki HM árið 2010 beint út.