Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 10
10 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
H V Í TA
HÚ S I Ð
/
S Í A
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
5
NEYÐARÓP Í KENÍA Maður hjólar framhjá
stóru skilti þar sem vakin er athygli á
kynferðislegu ofbeldi í Kenía. Nærri þrjú
þúsund nauðganir voru kærðar til lögreglu
árið 2004, en læknar segja fjölmargar
konur í viðbót ekki þora að tilkynna um
glæpi af þessu tagi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDBÚNAÐARMÁL Ríkustu þjóðir
heims eyddu sem nemur vel yfir
21.000 milljörðum króna í niður-
greiðslur til landbúnaðar á síðasta
ári og héldu þannig verðlagi á land-
búnaðarafurðum háu og spilltu
fyrir frjálsum milliríkjaviðskipt-
um, að því er fram kemur í nýrri
skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar, OECD.
EFTA-ríkin Ísland, Noregur og
Sviss trónuðu efst á lista yfir þau
lönd sem greiddu mest með land-
búnaðinum. Í Sviss greiddi ríkið 68
prósent af heildartekjum bænda,
íslenska ríkið greiddi 67 prósent og
það norska 64 prósent. Til saman-
burðar má geta þess að þetta hlut-
fall er að meðaltali 32 prósent í
Evrópusambandinu og 16 prósent í
Bandaríkjunum.
Á hinum enda skalans eru Nýja-
Sjáland og Ástralía. Nýsjálenskir
bændur höfðu aðeins um þrjú pró-
sent tekna sinna frá skattgreiðend-
um, ástralskir fá fimm prósent.
Í skýrslunni er opinber stuðn-
ingur við landbúnað einnig mæld-
ur eftir því hve mikillar verndar
hann nýtur gagnvart innflutningi. Í
þeim samanburði trónir Ísland
efst, með stuðulinn 2,69. ESB-með-
altalið er 1,25.
Sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu hafa niðurgreiðslur til
landbúnaðar lækkað talsvert hér á
landi á síðustu áratugum, en eru
samt enn með því mesta sem þekk-
ist. Þær námu heilum fimm pró-
sentum af landsframleiðslu á ára-
bilinu 1986-1988 en voru á árunum
2003-2005 um 1,8 prósent. Hækk-
andi þjóðartekjur og minnkandi
vægi landbúnaðar í efnahagslífinu
hafa valdið þessari lækkun. Í
skýrslunni kemur fram að hlut-
fallslega leggja Tyrkir mest af
landsframleiðslu sinni til stuðn-
ings við landbúnaðinn, rúm 4 pró-
sent, en þar í landi hefur enn til-
tölulega hátt hlutfall íbúanna
framfærslu af landbúnaði.
Reiknað er með að skýrslan
auki þrýstinginn á iðnveldin að
höggva á hnútinn í viðræðum
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar,
WTO, um viðskipti með landbúnað-
arafurðir. Gera á enn eina atlöguna
að því að mjaka þeim viðræðum
áleiðis í Genf í næstu viku. „Nauð-
synlegt er að áþreifanlegar fram-
farir verði í þessum viðræðum sem
fyrst, til að hleypa nýju lífi í
umbætur á landbúnaðarstefnu
[aðildarríkjanna],“ segir í niður-
stöðum OECD-skýrslunnar.
audunn@frettabladid.is
HÖFTUM MÓTMÆLT Táknræn mótmæli
gegn verndartollum ESB á landbúnaðaraf-
urðum. Slík höft eru þó miklu meiri hér á
landi, eins og fram kemur í skýrslu OECD.
NORDICPHOTOS/AFP
Yfir 21.000 milljarðar í styrki
Samkvæmt samantekt OECD eyða ríkustu lönd heims vel yfir 21.000 milljörðum króna árlega í niðurgreiðsl-
ur til landbúnaðar. Íslenskur landbúnaður nýtur einna mestrar verndar, ásamt norskum og svissneskum.
DANMÖRK Danir hafa fengið leyfi
til þess að gera sér ferð suður yfir
landamærin til Þýskalands og
kaupa þar vörur af dönskum kaup-
mönnum með þýskum virðisauka-
skatti, sem er töluvert lægri en sá
danski.
Dönsk skattayfirvöld hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
dönskum kaupmönnum sé heimilt
að selja dönskum neytendum
vörur sunnan landamæranna, en
þeir verða þá annað hvort að
stunda það í samvinnu við þýskar
verslanir í Þýskalandi eða hrein-
lega stofna sjálfir þýsk dótturfyr-
irtæki á staðnum. - gb
Danskir neytendur:
Mega kaupa í
Þýskalandi
TOLLGÆSLAN Tollgæslan í Keflavík
gerði í vikunni upptækt nokkurt
magn falsaðra iPod-spilara sem
voru á leið frá Kína til verslunar í
Reykjavík. Spilararnir líta alveg
eins út og iPod nano frá Apple,
nema innihaldið er allt annað,
óvandaður spilari með kínversku
stýrikerfi. Notendaviðmót tækis-
ins er gjörólíkt iPod og algjörlega
óskiljanlegt þeim sem ekki kann
kínversku.
Þrátt fyrir að tekist hafi að
stöðva þessa sendingu gætu fals-
aðir spilarar verið í umferð og
þeir sem telja sig hafa keypt eftir-
líkingu eru beðnir um að hafa sam-
band við Apple. - sgj
Sending stöðvuð í Leifsstöð:
Falsaðir iPod-
spilarar teknir
ÁÆTLAÐUR RÍKISSTUÐNINGUR VIÐ LANDBÚNAÐ INNAN OECD
Prósent af heildartekjum bænda
Nýja
Sjáland
Ástralía Mexíkó Banda-
ríkin
Kanada Tyrkland OECD
meðalt.
ESB
meðalt.
Japan Kórea Ísland Noregur Sviss
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
■ 1986–88
■ 2003–05
HAFNARFJÖRÐUR Fréttablaðið hefur
heimildir fyrir því að töluverð
ólga sé á meðal starfsmanna
Íþrótta- og tómstundaráðs Hafn-
arfjarðar vegna pólítískrar skip-
unar Margrétar Gauju Magnús-
ardóttur í stjórn ráðsins.
Nú þegar hefur Árni Guð-
mundsson, sem gegndi stöðu
æskulýðs- og tómstundafulltrúa,
sagt upp starfi sínu og sam-
kvæmt heimildum blaðsins eru
fleiri starfsmenn að hugsa sitt
ráð. Uppsögn Árna er sögð tengj-
ast skipun Margrétar Gauju
beint, en aðspurður vildi hann
lítið segja. „Stjórnmálamenn
ákveða leiðina sem á að fara, en
embættismenn geta ráðið því
hvort þeir eru með eða ekki. Ég
hef ákveðið að fara frekar en að
una þeim samþykktum sem bæj-
arstjórnin hefur gert varðandi
æskulýðsmálin,“ segir Árni og
vísar til samþykkta um skipan
nefnda innan ÍTH sem afgreidd-
ar voru á fundi 13. júní síðastlið-
inn.
Fleiri starfsmenn innan ÍTH
eru að meta stöðuna í kjölfar
skipunarinnar og afsagnar Árna.
Einn starfsmaður hafði það á orði
að afsögn Árna væri áfall fyrir
æskulýðsstarfið í Hafnarfirði.
Margrét Gauja kannaðist ekki
við neina óánægju á meðal starfs-
manna ÍTH vegna skipunar sinn-
ar, þegar blaðamaður náði af
henni tali. aegir@frettabladid.is
Óánægja á meðal starfsmanna ÍTH vegna pólitískrar skipunar:
Æskulýðsfulltrúi segir af sér
MARGRÉT GAUJA
MAGNÚSDÓTTIR
ÁRNI
GUÐMUNDSSON
BORGARMÁL Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri kynnti í
borgarráði í gær starfshóp á vegum
borgaryfirvalda um búsetuúrræði
eldri borgara og til að hafa umsjón
með framkvæmdum í þágu aldr-
aðra. Starfshópurinn heyrir beint
undir borgarstjóra. Eitt forgangs-
verkefni hópsins verður „kaup og
jafnvel bygging söluíbúða með
þjónustukjarna með heimilis-
hjálp“.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, gagn-
rýnir þessa hugmynd borgarstjóra.
„Það er verið að innleiða gamal-
dags hugsun um uppbyggingu og
sölu íbúða. Það eru áratugir síðan
það var síðast gert á þennan hátt
og löngu komin öflug og fagleg fyr-
irtæki og sjálfseignarstofnanir
sem hafa staðið vel að þessu. Ég sé
ekki að borgin hafi neitt hlutverk
þarna nema að marka stefnu og
leggja fram lóðir.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri segir að um útúrsnún-
ing sé að ræða að hálfu Dags. Borg-
in ætli ekki að byggja og selja íbúð-
ir fyrir aldraða. „Ég sem
borgarstjóri er að mynda þarna
sérstakan hóp sem á að þoka þessu
máli eins hratt áfram og kostur er.
Við ætlum að leita allra úrræða,
kanna alla möguleika og útilokum
ekkert til þess.“
Vilhjálmur segir að vinnuhóp-
urinn sé skipaður til að þessi mál
gangi hratt og vel fyrir sig. „Það er
tími aðgerða í þessum málum og
með stofnun þessa vinnuhóps vil
ég leggja áherslu á það.“ - shá
Starfshópur um búsetuúrræði eldri borgara skipaður:
Bygging íbúða fyrir
aldraða í forgangi
UPPBYGGING Hugmyndir borgarstjóra um uppbyggingu húsnæðis fyrir eldri borgara eru
gagnrýndar af minnihluta í borgarstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
DÓMSMÁL Mál Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar gegn Jóni
Ólafssyni, vegna meiðyrðamáls-
ins svokallaða, hefur verið frestað
fram á haust.
Hannes var dæmdur í Englandi
fyrir að birta ummæli um Jón
Ólafsson á heimasíðu sinni, sem
þóttu ærumeiðandi. Honum var
gert að greiða tólf milljónir í
skaðabætur.
Hannes hefur ítrekað reynt að
fá mál sitt tekið upp aftur erlend-
is, en því hefur ávallt verið hafn-
að. - æþe
Meiðyrðamál Hannesar:
Málinu frestað