Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 40
■■■■ { hús og garður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Í seinni tíð hefur það verið að fær-
ast töluvert í aukana að fólk láti
arkitekta hanna sumarhúsin fyrir
sig alveg frá grunni. Indro Candi,
arkitekt hjá VA arkitektum, segir
að fólk hafi ólíkar hugmyndir og
því taki þeir mið af þörfum hvers
og eins. Fólk hittir arkitektinn og
útskýrir fyrir honum hvernig það
vil hafa sumarbústaðinn sinn og
síðan tekur hann við.
„Stundum sýnum við fólki nokkrar
myndir af húsum sem við höfum
hannað og ef því líst vel á einhver
af þessum húsum þá getum við
notað þau sem útgangspunkt.“
Arkitektar hanna nú húsin bæði
að innan sem utan og því er ferlið
mjög misjafnt. „Þetta getur tekið
allt frá nokkum vikum og upp í
hálft ár. Sum húsin eru orðin svo
vönduð og íburðarmikil að þetta er
orðið töluvert öðruvísi heldur en
fyrir nokkrum árum, önnur hús eru
einfaldari.“
Fyrir nokkrum árum voru sumar-
hús að miklu leyti flutt inn til lands-
ins og nokkuð stöðluð í útliti, en
Indro segir það mikið hafa breyst.
„Það var ekki neitt um það að fólk
væri að láta arkitekta hanna húsin
en núna er orðið merkilega mikið
um það.“
Fagmenn hanna sumarhúsin
Arkitektar eru nú farnir að hanna glæsileg sumarhús eftir óskum viðskiptavina sinna.
Glæsilegt sumarhús í Miðhrauni.
Sumarhús hannað af Steinari Sigurðssyni, arkitekt FAÍ hjá VA arkitektum ehf. Verktaki:
Trésmiðja Sigurðar Runólfssonar.
Sumarhús hannað af Steinari Sigurðssyni, arkitekt FAÍ hjá VA arkitektum ehf. Verktaki: Trésmiðja Sigurðar Runólfssonar.
Séð inn í eldhús í sumarhúsi hönnuðu af Steinari Sigurðssyni, arkitekt FAÍ hjá VA arkitekt-
um ehf. Verktaki: Trésmiðja Sigurðar Runólfssonar.
Sumarhús hannað af Manfreð Vilhjálmssyni, arkitekt FAÍ hjá VA arkitektum ehf. Verktaki: Ólafur Sigurjónsson.
Steyptur veggur í sumarhúsi hannaður af Steinari Sigurðssyni, arkitekt FAÍ hjá VA arkitekt-
um ehf. Verktaki: Trésmiðja Sigurðar Runólfssonar.