Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 13
Landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði 26. júní – 2. júlí 26. JÚNÍ – 2. JÚLÍ 2006 VINDHEIMAMELUM www.landsmot.is Í S L E N S K A A U G L Ý S I N G A S T O F A N / S I A . I S L A N 3 2 8 9 1 0 6 / 2 0 0 6 Fjölskylduhátíð hestamanna Farðu á www.landsmot.is og fáðu nánari upplýsingar um Landsmót hestamanna, einstakan viðburð og fjölskylduskemmtun. Sjáðu bestu hesta og bestu knapa landsins fara á kostum. Hinar frábæru hljómsveitir Todmobile og Papar halda uppi dúndrandi stemningu föstudags- og laugardagskvöld og auk þess koma fram: Geirmundur Valtýsson Hundur í óskilum Karlakórinn Heimir Björgvin Franz Ávaxtakarfan Ronja ræningjadóttir Álftagerðisbræður Gísli Einarsson og margir fleiri. Hoppkastalar og leiksvæði fyrir börnin. Forsala er á eftirfarandi ESSO-stöðvum: Nesti Ármúla, Nesti Borgartúni, Nesti Gagnvegi, Nesti Geirsgötu, Nesti Háholti, Nesti Lækjargötu, Nesti Stórahjalla, ESSO Fossnesti, ESSO Hveragerði, ESSO Árbæ, Naustagil Húsavík, ESSO Hvolsvelli, ESSO Hyrnunni, ESSO Höfn í Hornafirði, ESSO Leirunesti, ESSO Varmahlíð, ESSO Aðalstöðin, ESSO Egilsstöðum. Forsölu lýkur sunnudaginn 25. júní. Nýr sveitarstjóri Steinn Eiríksson, eigandi og framkvæmdastjóri Álfasteins í Borgarfirði eystri, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps til áramóta. Fráfarandi sveitarstjóri, Magnús Þorsteinsson, tilkynnti fyrir kosningar að hann gæfi ekki kost á sér í starfið áfram. BORGARFJÖRÐUR EYSTRI DÓMSMÁL Héraðsdómur Austur- lands sakfelldi í gær konu fyrir líkamsárás. Ákvörðun refsingar var hins vegar frestað skilorðs- bundið í tvö ár. Bótakröfu var vísað frá dómi. Konan var ákærð fyrir að hafa í febrúar árið 2006, á skemmti- staðnum Hótel Egilsbúð í Nes- kaupstað, slegið konu hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að hún fékk talsverða áverka. Konan játaði brot sitt fyrir dómi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hún gerði það og sýndi iðrun. Henni var gert að greiða sakarkostnað. -jss Héraðsdómur Austurlands: Sakfelld fyrir líkamsárás UMFERÐ Stafrænar hraðamynda- vélar verða settar upp á þjóðveg- um landsins á næstunni. Allt að 350 milljónum verður varið í þær og uppsetningu þeirra. Í dag eru hraðamyndavélarnar í Hvalfjarð- argöngunum þær einu utan þétt- býlis. Fyrsta vélin verður sett upp milli Hvalfjarðarganganna og Borgarness líklega um mánaða- mótin júlí-ágúst að sögn Birgis Hákonarsonar, framkvæmda- stjóra umferðaröryggissviðs hjá Umferðarstofu. „Við byrjum á að setja bara eina myndavél þar til reynslu og til að aðlaga kerfið. Svo bætast við fleiri myndavél- ar.“ Myndavélarnar verða settar upp á þekktum slysastöðum og verður byggt á tölum úr slysaskrá Umferðarstofu. „Við erum ekki að reyna að hanka bílstjóra eða að hafa fé af fólki heldur viljum við ná hraðanum niður á þessum stöð- um,“ segir Birgir. Verkefnið er hluti af umferðar- öryggisáætlun samgönguráðu- neytisins og unnið í samstarfi við Umferðarstofu, Vegagerðina og Ríkislögreglustjóra. Hraðaverk- efni eru stærsti hluti umferðarör- yggisáætlunarinnar og fara 680 milljónir í þennan málaflokk.“ Enda er hraði langalgengasta orsök banaslysa í umferðinni,“ segir Birgir. - sdg Umferðaröryggisáætlun miðar að því að ná hraðanum niður á þjóðvegum: Setja upp hraðamyndavélar STÖÐVAÐUR FYRIR HRAÐAKSTUR Stafrænar hraðamyndavélar eru nýjung hérlendis en í þeim verður myndin til strax og fer um símalínu í tölvubúnað lögreglunnar. SVÍÞJÓÐ, AP Fulltrúi bandaríska sendiráðsins í Svíþjóð neitar því að Bandaríkjamenn hafi beitt sænsk stjórnvöld þrýstingi til að uppræta starfsemi þeirra sem skiptast ólöglega á skrám yfir netið. Í sænska ríkissjónvarpinu kom fram á dögunum að Banda- ríkjamenn hefðu hótað Svíum við- skiptaþvingunum ef yfirvöld réð- ust ekki gegn þessum hópum. Þann 31. maí voru tölvuþjónar vefræningjasíðunnar „The Pirate Bay“ gerðir upptækir af sænsku lögreglunni og eigendur hennar yfirheyrðir. Hún lá þó ekki lengi niðri, en milli tíu og fimmtán millj- ónir tölvunotenda heimsækja síð- una á hverjum degi. - sþs Bandaríkin neita ásökunum: Beittu Svía ekki þrýstingi JÓRDANÍA, AP Abdullah II Jórdan- íukonungur hvetur Nóbelsverð- launahafa til að koma fram með hugmyndir til að stilla til friðar í átökunum fyrir botni Miðjarðar- hafs og stuðla að tilurð palest- ínsks ríkis. „Sannir friðarsamningar eru ekki bara skráðir á pappír, heldur einnig í hjörtu fólks,“ sagði kon- ungurinn á málþingi að viðstödd- um fimmtíu nóbelsverðlaunahöf- um í hinum forna bæ Petru. Það var Elie Wiesel, handhafi friðarverðlauna Nóbels, sem stóð að ráðstefnunni með konungnum. Hann bað Palestínumenn að yfir- stíga hatur sitt á gyðingum og hvatti gyðinga til að skilja aðstæð- ur Palestínumanna. -sgj Abdullah II Jórdaníukonungur: Nóbelshafar stilli til friðar ELIE WIESEL OG ABDULLAH Nóbelsverð- launahafinn og konungurinn eru góðir vinir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Kona ritstjóri Kona hefur nú í fyrsta skipti verið ráðin ritstjóri á Dagbladet, einu af stærstu dagblöðunum í Noregi. Konan heitir Anne Aasheim og segir vef- útgáfa Dagbladet að hún sé fyrrverandi fréttastjóri á NRK, norska ríkisútvarpinu. NOREGUR AKUREYRI Jónas Vigfússon, yfir- maður framkvæmdadeildar hjá Akureyrarbæ, segir skorta fagleg vinnubrögð hjá bænum og hefur sagt upp störfum. „Eðlilegum verklagsreglum er ekki fylgt að mínu mati.“ Jónas segir að kornið sem fyllti mælinn hafi verið þegar skýli var nýverið rifið að skipan bæjar- stjóra. Beiðni um að það yrði rifið hafði verið hafnað hjá fram- kvæmdaráði og staðfest hjá bæj- arstjórn að sögn Jónasar. „Við starfsmenn reynum að sinna okkar starfi samkvæmt þeim vinnureglum sem liggja fyrir.“ Ekki náðist í bæjarstjórann á Akureyri. - sdg Stjórnsýsla Akureyrarbæjar: Fagleg vinnu- brögð skortir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.