Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 81
FÖSTUDAGUR 23. júní 2006 49 VIGNIR GUÐJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HM 2006 Í ÞÝSKALANDI Þeir ensku kunna þetta Síðasta laugardag sá ég nokkur hundruð Ghana-búa stíga trylltan stríðsdans eftir fyrsta sigur þjóðarinnar á HM. Stuðn- ingsmennirnir voru skemmtilegir, gerðu mikið af því að flauta og öskra og dansa furðulegan húla-húla dans. Brasilísku stuðningsmennirnir voru enn dásamlegri eftir sigurinn á Ástralíu á sunnudagskvöldið og í miðbænum var sannkölluð karnival-stemning fram eftur nóttu. Brassarnir virðast vera með sérskipaðar trommusveitir sem koma sér fyrir á ákveðnum stöðum í borgum Þýskalands og leiða fjöldadans stuðn- ingsmanna. Dásamlegt á að horfa. Heimamenn Þjóðverjar voru skiljan- lega sáttir eftir sigurinn á Ekvador í fyrradag og það sem þeir höfðu fram yfir Brassana var fjöldinn. Miðbærinn var gjörsamlega morandi í trylltum heimamönnum sem öskruðu úr sér vitin á móðurmálinu. En málið er að öskur á þýsku virkar einfaldlega ekki. Hvern- ing er hægt að taka mann sem öskrar “Deutchland fur weltmeister” alvarlega? Öskur geta verið fráhrindandi en þegar tungumálið bætist við getur verið betra að setja upp iPod-inn. Svo er líka nátt- úrlega ekki séns að Þýskaland sé að fara að vinna þessa keppni. En þessir stuðningsmenn, og allir aðrir hér í Þýskalandi, þurfa að beygja sig og bugta fyrir þeim ensku, sem einfald- lega bera höfuð og herðar yfir alla aðra. Ég varð vitni að sex Spánverjum ögra þremur Englendingum á Dóm- kirkjutorginu í Köln fyrir leikinn gegn Svíum. Þeir sungu í andlitið á þeim að Spánn væri að spila miklu betur en England. Vissulega staðreynd en þessari ábendingu hefði betur verið sleppt. Ensku þremenningarnir stóðu upp, lyftu bjórglasinu og byrjuðu að syngja „God save the queen”. Eftir nokkrar sekúndur var meirihluti Englendinga sem staddir voru á torginu, og þeir hafa líklega talið hátt í annað þúsundið, farinn að taka undir. Hávaðinn var gríðarlegur og maður bókstaflega skynjaði þjóðarstolt- ið í gegnum sönginn. Ensku stuðningsmennirnir eru stórkost- legir, margir hverjir kæddir skikkjum í formi þjóðfánans. Sannkallaðir sendiherrar hennar hátignar og líklega reiðubúnir að deyja fyrir málstaðinn, sem er fótboltalandsliðið þeirra. Málið með Englendingana er að þeir kunna þetta. Vita hvað dæmið snýst um. Það sama verður seint sagt um þá spænsku, þeir voru gjörsamlega jarðaðir á staðn- um og skömmustuvipurinn sem færðist á andlit þeirra – honum er ekki hægt að lýsa í orðum. Þeir hafa líklega farið aftur heim í næstu vél. GOD SAVE THE QUEEN Talið er að hátt í 50 þúsund stuðningsmenn enska landsliðs- ins hafi verið samankomnir í Köln þegar leikurinn gegn Svíum fór fram. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP KÖRFUBOLTI Larry Brown þjálfari New York Knicks í NBA-deildinni hefur verið leystur undan störfum eftir aðeins eitt tímabil. Isiah Thomas, forseti og framkvæmda- stjóri félagsins, mun taka við þjálfuninni en Brown var á sínum tíma ráðinn til Knicks í fimm ár og sagði hann þá þetta vera drauma- starfið sitt enda er hann fæddur og uppalinn í Brooklyn. Brown gerði Detroit Pistons að meistur- um árið 2004 en gekk skelfilega með Knicks í vetur en liðið náði sínum versta árangri í 20 ár í deildinni. - esá New York Knicks: Brown rekinn LARRY BROWN Hættur með New York Knicks. NORDIC PHOTOS/AFP KÖRFUBOLTI Lið Grindavíkur í örfu- bolta mun í haust mæta mikið breytt til leiks en þrír leikmenn liðsins hafa ákveðið að hætta. Það eru Helgi Jónas Guðfinnsson, Pétur Guðmundsson og Guðlaug- ur Eyjólfsson. „Þetta er mikill missir enda bæði góðir leikmenn og félagar,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson í gær. Þremenningarn- ir hafa verið mismikið með undan- farin ár en Helgi Jónas hefur til að mynda átt við þrálát meiðsli að stríða. Þá mun Hjörtur Harðarson þjálfa hjá Haukum næsta tímabil og bakvörðurinn Jóhann Ólafsson mun vera lengi frá vegna kross- bandsslita. Hann missti af öllu síð- asta tímabili vegna meiðslanna sem þó greindust ekki fyrr en nýlega. Friðrik Ingi sagði að Helgi Jónas og Pétur munu verða í kring- um liðið á næsta ári og aðstoða við þjálfunina. - esá Áfall fyrir Grindavík: Fjórir hættir og einn meiddur FÓTBOLTI Franski miðjumaðurinn Patrick Vieira viðurkennir að hann sé logandi hræddur yfir því að falla úr leik á HM í dag, en þeir verða að vinna Tógó og treysta á að Suður-Kórea og Sviss geri ekki 2-2 jafntefli, ellegar þurfa Frakk- ar að fara heim. Á HM 2002 fóru þeir heim án þess að hafa skorað mark í riðlakeppninni. „Markmiðið er enn að fara alla leið á HM. Að detta úr væru mjög mikil vonbrigði, verra en árið 2002. Við megum bara ekki falla úr leik, en ég held að við séum sterkari, bæði andlega og líkam- lega en árið 2002,“ sagði Vieira en Frakkar verða án fyrirliðans Zine- dine Zidane sem verður í banni. - hþh Patrick Vieira: Við óttumst að detta úr í dag ALLT Í LÆGÐ Leikmenn Frakka voru ekki hressir á æfingu í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.