Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 83
FÖSTUDAGUR 23. júní 2006 51 ferðabox ...og allur ferðabúnaður kemst á toppinn 430 lítra nr. 731846 380 lítra nr. 731446 380 lítra nr. 731 86 NÝTT 23 76 / TA K TÍ K / 6. 06 . / 3 X 30 FÓTBOLTI Áhorfendur á Kópavogs- velli fengu svo sannarlega eitt- hvað fyrir peningana en leikur Breiðabliks og Fylkis var mikil skemmtun. Fylkismenn byrjuðu betur og komust yfir þegar Christi- an Christiansen nýtti sér slakan varnarleik Blika til að skora fyrsta mark leiksins. Nenad Zivanovic jafnaði metin fyrir Blika úr fyrsta alvöru færi þeirra í leiknum á 28. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar höfðu Blikar óvænt tekið for- ystuna eftir rólega byrjun heima- manna. Magnús Páll Gunnarsson hitti þá ekki boltann úr upplögðu færi, en Marel Baldvinsson gerði aftur á móti engin mistök og skor- aði framhjá Fjalari Þorgeirssyni í markinu. Peter Gravesen átti skot í stöngina og eftir hornspyrnu sem kom upp úr þeirri sókn var dæmd vítaspyrna á Blika eftir bakhrind- ingu inni í teignum. Sævar Þór Gíslason gerði engin mistök af punktinum og jafnaði metin. Kristján Óli Sigurðsson fékk dauðafæri sem Fjalar varði í stöngina og í upphafi síðari hálf- leiks átti Eyjólfur Héðinsson frá- bært skot sem Hjörvar Hafliðason varði vel í slána. Síðari hálfleikur var mun rólegri en sá fyrri en það var Marel Baldvinsson sem tryggði Blikum sigurinn þegar hann skall- aði fyrigjöf í Guðna Rúnar Helga- son og inn á 85. mínútu og stigin þrjú voru Blika. „Þetta var fótboltaleikur eins og maður vill hafa þá, boltinn gekk fram og til baka og það vantaði ekki færin báðum megin vallar- ins. Við vorum að spila vel og skapa færi og loksins hélt vörnin sómasamlega, við fengum ekki nema tvö mörk á okkur,“ sagði glaðbeittur Marel Baldvinsson eftir leikinn. „Nú tekur aftur á móti við erfið dagskrá á útivelli og því þýðir ekkert annað en að snúa saman bökum og berjast eins og ljón. Við erum ekki með besta fótboltaliðið í deildinni en baráttan skilar alltaf sínu, eins og hún gerði í þessum leik,“ sagði Marel, kampakátur með sigurinn. - hþh Breiðablik vann góðan sigur á Fylki í fjörugum leik liðanna á Kópavogsvelli í gær: Baráttan skilar alltaf sínu MAÐUR LEIKSINS Marel Baldvinsson skallar hér boltann í leiknum í gærkvöldi en hann skoraði tvö mörk og stóð sig feykivel í framlínunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PÁLL FÓTBOLTI Ástralía gerði sér lítið fyrir og komst í sextán liða úrslit á HM er liðið náði jafntefli gegn Króatíu, 2-2, í mögnuðum leik. Guus Hiddink, þjálfari Ástralíu, heldur því áfram að gera krafta- verk á HM. „Ég er algjörlega orðlaus. Við komum ekki hingað til Þýska- lands til að fylla upp í liðin 32 held- ur höfðum við metnað til að ná árangri og komast áfram,” sagði Tim Cahill, leikmaður Ástrala eftir leikinn í gær. „Við þurfum aftur á móti að koma okkur niður á jörðina og einbeita okkur strax að leiknum gegn Ítölum sem verður svo sann- arlega ekki auðvelt.” Í hinum leik gærkvöldsins lagði Brasilía lið Japans að velli, 4-1, og skoraði Ronaldo tvö mörk. - hbg Ástralía kom verulega á óvart gegn Króatíu: Kengúrustrákarnir kláruðu Króatana ÁSTRALIR Fögnuðu sætinu í sextán liða úrslitum vel og lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FÓTBOLTI Það leit ekki vel út hjá FH-ingum þegar Sigurvin Ólafs- son fékk rautt spjald í Víkinni í gær. Hann fékk sitt annað gula spjald með stuttu millibili á 26. mínútu og Íslandsmeistararnir léku manni færri frá þeim tíma. Þrátt fyrir það náðu Víkingar ekki að nýta sér liðsmuninn og úrslitin markalaust jafntefli. Heimir Guðjónsson, aðstoðar- þjálfari FH, var nokkuð sáttur í leikslok. „Við vorum einum færri nánast allan leikinn og erum því nokkuð sáttir við að fá stig. Strák- arnir sýndu mikinn karakter. Vík- ingar eru bara með hörkulið og erfitt að heimsækja þá, það eru ár og dagar síðan maður hefur séð heilan leik þar sem okkur tekst ekki að skora þannig að ég verð að skamma sóknarmenn okkar,“ sagði Heimir og brosti. Víkingar fengu hættulegri færi í fyrri hálfleik og þar var í aðal- hlutverki Davíð Þór Rúnarsson sem ógnaði marki FH af krafti undir lok fyrri hálfleiksins. Hann fékk nokkur góð færi til að skora, Daði Lárusson varði vel frá honum í eitt skipti og þá átti hann skot hárfínt framhjá úr góðu færi eftir undirbúning Viktors Bjarka Arn- arssonar. Tryggvi Guðmundsson fékk besta færi FH, átti hættuleg- an skalla en ekki nógu kraftmik- inn. Seinni hálfleikur var leiðin- legur áhorfs en FH náði að stöðva sóknaraðgerðir Víkinga og þeir náðu ekki að ógna marki þeirra að viti. Leikurinn varð því markalaus. Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem FH gerir jafntefli gegn nýlið- um en liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Breiðablik fyrir skömmu, alla hina leiki sína hefur FH unnið. -egm Víkingur náði ekki að nýta sér liðsmuninn gegn FH: FH-ingar gerðu aftur jafntefli gegn nýliðum BARÁTTA Freyr Bjarnason, varnarmaður FH, fer hér í fljúgandi tæklingu gegn Davíð Þór Rúnarssyni í leiknum í Víkinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.