Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 64
 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Skúli Einarsson, formaður Matsveina- félags Íslands, segist hljóta að vera elsti formaðurinn innan verkalýðshreyfing- arinnar. Hann er áttatíu ára í dag og lætur aldurinn ekki aftra sér frá því að vera í fullu starfi hjá Matsveinafélag- inu. „Ég segi fyrir mitt leyti að ég er feg- inn að vera hérna. Það væri miklu ein- manalegra að vera heima og bíða þar alla daga. Í staðinn mæti ég til vinnu á hverjum degi og hætti eins og venjulegt fólk. Þá finnst manni maður vera maður með mönnum,“ segir Skúli. Matsveina- félagið og Sjómannafélag Íslands eru með sameiginlega skrifstofu þar sem Skúli leysir úr vandamálum sem koma upp og aðstoðar félagsmenn sína eftir bestu getu. „Við erum mjög samhentir hérna á skrifstofunni og þurfum ávallt að vera viðbúnir, eins og skátarnir. Hér er mikill gestagangur og stundum mjög heitt í kolunum,“ segir Skúli og bætir við með bliki í auga: „Maður getur eigin- lega ekki verið án þess.“ Skúli var á sjó í rúm fimmtíu ár og alltaf í eldhúsinu. Hann átti því fjöl- mörg afmæli á sjónum og lét sig hafa það þótt hann hafi alltaf hugsað mikið heim á afmælisdögunum. „Konan mín tók aldrei neitt annað í mál en að halda upp á afmælin og þegar ég var á sjónum beið veislan þar til ég kom í land.“ Í dag ætlar Skúli þó ekki að gera neitt sér- stakt í tilefni afmælisins nema að vera „að heiman“, eins og það er kallað. Þegar Skúli lítur tilbaka yfir langa ævi segist hann hafa verið mjög hepp- inn með lífið. „Mér finnst ég hafa átt góða ævi, góða konu, góða krakka og góða vini. Svo er ég heppinn að hafa verið heilsuhraustur. Ég var vanur að fara alltaf í sund í Breiðholtslauginni á hverjum morgni klukkan sjö því það er svo gott fyrir heilsuna. Maður ætti að fara að byrja á því aftur.“ Skúli viður- kennir þó að hafa verið dálítið mikið úti á lífinu á sínum yngri árum en að allt hafi farið vel. „Ég er alveg fram úr hófi minnugur, eiginlega of minnugur. Ef eitthvað leiðinlegt hefur skeð í gamla daga er algjör óþarfi að muna það.“ Aðspurður segist Skúli ekki ætla að láta áttatíu ára afmælisdaginn marka endalok sín í starfi heldur halda ótrauð- ur áfram. „Þeir vilja ekki láta mig hætta. Ég hef eitthvað verið að ýja að því að fara að hætta en þeir hérna taka það ekki í mál. Þó er búið að ákveða að þegar ég verð níræður gerum við starfsloka- samning,“ segir Skúli Einarsson. SKÚLI EINARSSON: ÁTTRÆÐUR Í DAG Getur ekki verið án vinnunnar SKÚLI EINARSSON FORMAÐUR MATSVEINAFÉLAGS ÍSLANDS Þrátt fyrir árin áttatíu er Skúli í fullu fjöri og mætir á hverjum degi til vinnu hjá Matsveinafélaginu. Á skrifstofunni er mikill gestagangur og stundum heitt í kolunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN 13.00 Magnús Kristjánsson vél- stjóri, Heiðvangi 48, Hafnar- firði, verður jarðsunginn frá Garðakirkju. 13.00 Sigríður Sóley Sveinsdóttir Hallgrímsson, Hraunbæ 50, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 14.00 Bjarni Marinó Þorsteins- son fyrrverandi verkstjóri, Hvanneyrarbraut 42, Siglu- firði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju. 14.00 Guðjón Björn Ásmundsson, Hríseyjargötu 6, Akureyri, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju. 14.00 Ingileif Guðjónsdóttir frá Hliði, Akranesi, síðast til heimilis á Dvalarheimilinu Höfða, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. MERKISATBURÐIR 1926 Jón Magnússon forsætis- ráðherra andast sviplega þegar hann var á för um Norðurland og Austfirði með konungshjónunum. 1940 Hitler skoðar merka staði í París í fyrstu og einu heim- sókn sinni þangað. 1975 Rokkarinn Alice Cooper dettur af sviði á tónleikum og brýtur sex rifbein. 1977 Þjóðveldisbærinn í Þjórsár- dal er formlega opnaður. 1984 Uppboð er haldið á eigum Johns Lennon sem lést fjórum árum fyrr. 1992 Mafíuforinginn John Gotti er dæmdur í lífstíðarfang- elsi. 1995 Björgunarþyrlan Líf kemur til landsins. JONAS SALK (1914-1995), LÉST ÞENNAN DAG. „Ég hef átt drauma og martraðir, en ég hef sigrast á martröðunum vegna drauma minna.“ Bandaríski vísindamaðurinn Jonas Salk er best þekktur fyrir að hafa fundið upp bóluefni gegn mænusótt. Þennan dag árið 1961 tók samningur tólf þjóða um verndun Suðurskautslandsins gildi. Í samningnum var skýrt tekið fram að Suðurskautslandið ætti að vera vísindalegt friðland, að þar ríkti frelsi til vísindarannsókna og að heimsálfan ætti að vera laus við hernaðartól. Suðurskautslandið er þriðja minnsta heimsálfan og stærsta svæði heimsins sem engin þjóð ríkir eiginlega yfir. Þrír leiðangrar uppgötvuði meginlandið árið 1820 en fram að þeim tíma höfðu aðeins gengið goðsagnir um tilvist Suðurskautslandsins. Á nítjándu öld var Suður- skautslandið ekki kannað ítarlega vegna erfiðra aðstæðna en snemma á tuttugustu öld voru farnir nokkrir könnunarleiðangrar um svæðið, meðal annars á suðurpól- inn sjálfan. Nú á tímum starfrækja stjórn- völd allnokkurra ríkja rannsóknar- stöðvar á Suðurskautslandinu. Allt að fjögur þúsund manns hafa þar búsetu þegar mest lætur á sumrin en á hörðum vetrum búa þar um þúsund manns. Samningurinn um Suðurskauts- landið var undirritaður bæði af Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. Hann markaði ákveðin tímamót í Kalda stríðinu vegna þess að stórveldin tvö komu sér þar saman um takmörkun vopnavalds á svo stóru svæði og var þetta fyrsti samningingurinn sinnar tegundar sem ríkin tvö undirrituðu. ÞETTA GERÐIST: 23. JÚNÍ 1961 Samið um Suðurskautslandið HORFT TIL SUÐURSKAUTSLANDSINS ÚTFARIR AFMÆLI Sigríður Ásdís Snævarr sendiherra er 54 ára. Vignir Grétar Stef- ánsson júdókappi er 30 ára. Silja Úlfarsdóttir hlaupadrottning er 25 ára. 15.00 Aðalsteinn Jósepsson, Sóltúni 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarnes- kirkju. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórunn Ólafía Sigurjónsdóttir Skipasundi 14, Reykjavík, lést á Landspítala í Fossvogi, sunnudaginn 11. júní sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Erna Jóhannsdóttir, Magnús Elíasson, Jóhann Jóhannsson, Sigríður Sveinsdóttir, Sigurrós Jóhannsdóttir, Birna Jóhannsdóttir, Magnús Gíslason, Örn Jóhannsson, Kristjana Þorbjörnsdóttir, Svala Jóhannsdóttir, Frank Curtis, Hanna Jóhannsdóttir, Sigfús Birgir Haraldsson, Már Jóhannsson, Ómar Jóhannsson, Sigríður Hermannsdóttir, Garðar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Þormóðs Snæbjörnssonar Hæðargarði 40. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 14G og blóðskil- unardeild Landspítala við Hringbraut. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurborg Helgadóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, mágur, afi og langafi, Leifur Sigurðsson, rennismíðameistari, Sogavegi 168, Reykjavík, lést á Landspítalanum, laugardaginn 17. júní. Útförin auglýst síðar. Guðmundur Ingi Leifsson Elín Einarsdóttir Sigurður Leifsson Margrét Árný Sigursteinsdóttir Elías Halldór Leifsson Margrét Jónsdóttir Guðrún Kristófersdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Guðmundsdóttir Álftamýri 6, Reykjavík, léts þriðjudaginn 20. júní sl. á Líknardeild Landakots- spítala. Svava Haraldsdóttir Guðmundur Jens Þorvarðarson Guðmundur Haraldsson Rakel Kristjánsdóttir Erna Haraldsdóttir Karl Þórðarson Bjarni Óli Haraldsson Árný Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, Guðmundur Guðjónsson Eyrarholti 6, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 26. júní kl. 13.00. Jóhanna Sigurðardóttir Ragnhildur Guðmundsdóttir Bragi Bragason Elín Guðmundsdóttir Hermann Guðmundsson Hjördís Guðmundsdóttir Marco de Aquilar og barnabörn. Elín Gísladóttir Þóra Elín Guðjónsdóttir Jón Rúnar Backman Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Benedikt Þorsteinsson sjómaður, Lautasmára 27, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 16. júní, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 27. júní kl. 13.00. Anna Albertsdóttir Ásthildur Benediktsdóttir Þorleifur Geir Sigurðsson Birgitta Benediktsdóttir Aðalsteinn Hólm Guðbrandsson Ásrún Linda Benediktsdóttir Magnús Högnason og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.