Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 23. júní 2006 17
Ný keðja fiskbúða á höfuðborg-
arsvæðinu, Fiskisaga, hefur
keypt sex aðrar fiskbúðir og
sameinað undir einu merki. Það
eru fiskbúðirnar við Nesveg,
Sundlaugaveg og Hringbraut,
Sjávargallerý við Háaleitisbraut
og fiskbúðirnar Hafrún og Vör.
Útlit og vöruúrval búðanna verð-
ur samræmt, en níu nýjar búðir
verða auk þess stofnaðar á höf-
uðborgarsvæðinu, að sögn Ósk-
ars Garðarssonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins.
„Við munum hafa aukið vöru-
úrval og tilbúna rétti,“ segir
Óskar og vonast til að samlegð-
aráhrifin við sameiningu fisk-
búðanna muni valda lægra verði.
Hann segir að fyrirtækið skoði
einnig möguleika á að opna útibú
á Suðurnesjum og Selfossi. Auk
þess komi til greina að einhverj-
ar verslananna innihaldi veit-
ingastað. „Við viljum kenna
Íslendingum að borða fisk,“ segir
Óskar.
Vilhjálmur Hafberg hjá Fisk-
búðinni Hafberg segir samein-
ingu fiskbúðanna ekki munu hafa
mikil áhrif á minni fiskbúðir.
„Þarna fer talsvert mikið á eina
hendi og þeir verða ráðandi með
verð og annað, en maður veit
ekki hvort þetta mun bera sig,“
segir Vilhjálmur „Ég hef ekki
orðið var við undirboð eða neitt
slíkt.“ Hann segist einnig vona
að persónuleg þjónusta minni
fiskbúðanna muni skila sér til
neytenda. - sgj
Kenna þjóðinni að borða fisk
Fimm félagar úr Kópavogsskóla
afhentu Kópavogsdeild Rauða
kross Íslands 8.262 krónur sem
var ágóði tombólu sem þeir héldu
við Nóatún í Hamraborg. Strák-
arnir sögðust staðráðnir í að halda
áfram að safna fyrir góð málefni
og leggja þannig sitt af mörkum
til að hjálpa fólki.
Strákunum þótti hins vegar
miður að sumir vegfarendur trúðu
því ekki að þeir væru að safna
fyrir Rauða krossinn. Strákarnir
sem að söfnuninni stóðu heita
Breki, Brynjar, Hjörtur Týr, Krist-
ófer Valur og Theódór Óskar en
þann síðastnefnda vantar á mynd-
ina. - hs
Gáfu ágóðann af tombólu
DUGLEGIR STRÁKAR Breki, Brynjar, Hjörtur Týr og Kristófer Valur ætla að halda áfram að
safna fé til að styrkja góð málefni.
Svo virðist sem landsmenn hafi
gaman af því að fá sér einn eða
tvo bjóra með fótboltaáhorf-
inu því bjór á það til að
seljast betur á meðan
á heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu
stendur. Samkvæmt
innkaupadeild vín-
búðanna hefur verið
aukin sala á bjór það
sem af er sumars, en
sölutölur fyrir júní-
mánuð koma í lok mánaðarins og
þá verður hægt að sjá hversu
mikil áhrif heimsmeist-
aramótið hefur á
bjórdrykkju land-
ans.
Sala á bjór í maí var talsvert
betri en mánuðina áður og má ætla
að betra veður, sveitarstjórnar-
kosningar og söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva hafi spil-
að eitthvað þar inn í. Því má búast
við að atburður eins og heims-
meistaramótið hafi góð áhrif á
sölu bjórs á Íslandi.
Sigfríð Eik Arnardóttir, vöru-
merkjastjóri hjá Vífilfelli, segir
að þó engar tölur séu komnar
fyrir júnímánuð megi merkja
greinilega söluaukningu á Carls-
berg-bjórnum, en fyrirtækið er
umboðsaðili hans á Íslandi. Mikill
viðbúnaður er hafður hjá Vífil-
felli vegna keppninnar enda teng-
ingin milli bjórs og fótboltaáhorfs
vel þekkt. - sþs
Drekka bjór með boltanum
FISKBÚÐIN VÖR Fiskisaga hefur nú keypt
verslun sprelligosanna í Fiskbúðinni Vör.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRETLAND, AP Samfélagið er með
tímann á heilanum og einnig á
vörunum ef marka má niðurstöð-
ur sem kynntar voru í gær úr
rannsókn Oxford-orða-
bókarinnar. Tími
(e. time) er mest not-
aða nafnorð í enskri
tungu og orðin ár
(e. year), dagur
(e. day) og vika
(e. week) fylgja þar
fast á eftir í þriðja,
fimmta og sautjánda
sæti.
Peningar (e. money) eru hins
vegar ekki eins ofarlega í huga
fólks eða í 65. sæti, en vinna
(e. work) er í „íslenska sætinu“,
því sextánda. Ríkisstjórn (e. gov-
ernment), vandamál (e. problem)
og stríð (e. war) eru á topp hundr-
að, en hvíld, frið og lausnir er
hvergi að sjá. - sgj
„Tími“ algeng-
asta nafnorðið
FREYÐANDI BJÓR Mikill
viðbúnaður er vegna heims-
meistaramótsins hjá Vífilfelli,
en fyrirtækið er umboðsaðili
Carlsberg-bjórsins á Íslandi.