Fréttablaðið - 23.06.2006, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 23. júní 2006 7
Á örfáum dögum ætlar
Rekkjan-heilsurúm að selja
nær öll rúm sín.
Þetta er gert vegna breytinga í
vörulínu amerísku heilsurúmanna
frá King Koil. Allar eldri gerðir
verða því seldar með allt að
150.000 króna afslætti. Þar að auki
fæst frír rafmagnsbotn með í
kaupunum ef keypt er latexdýna.
Tilboðið stendur aðeins í örfáa
daga.
King Koil-heilsurúm eru til
með tvöföldu lagi af pokagorma-
kerfi. Stífur dempandi grunnur
heldur gormadýnunni á sínum
stað til að koma í veg fyrir truflun
svefns af völdum hreyfinga hjá
rekkjunauti og ólíkt venjulegu
tveggja hliða dýnunum þá hafa
þessar dýnur aðeins eina svefn-
hlið. Þeim þarf því aldrei að snúa.
Í Rekkjunni er einnig hægt að
fá heilsukodda, rúmteppi, sængur-
ver, sængur, yfirdýnur, hlífðar-
dýnur, og lök á allar stærðir amer-
ískra rúma.
Rekkjan er í Skipholti 35 og er
síminn þar 588-1955.
Rúm á rýmingarsölu
Góður svefn er gulli betri.
Helmings afsláttur er á nokkr-
um tegundum borðstofustóla í
versluninni Míru í Bæjarlind 6
í Kópavogi.
Tilboð er á borðstofustólum í
Míru og nemur afslátturinn allt
að 50 prósentum. Um er að ræða
stóla með leðuráklæði, leðurlíki
og áklæði úr mjúku gerfiefni sem
nefnt er microfiber. Sumir stól-
arnir eru með stálfætur en aðrir
úr tré þannig að úr ýmsu er að
velja. Sem dæmi um verð má
nefna nútímalegan leðurstól á
stálfótum sem
lækkar úr 9.900
í 4.950 krónur.
Einnig er gef-
inn sérstakur
afsláttur í
Míru ef keypt-
ir eru sex
samstæðir
stólar eða
fleiri.
Valdir borð-
stofustólar
Blómaval selur nú trjáplöntur
á stórlækkuðu verði.
Birkikvistur, reyniviður, gullregn
og gljámispill eru meðal þeirra
tegunda sem Blómaval er með á
sínum trjáplöntumarkaði og býður
allt að 60 prósenta afslátt á. Marg-
ir eru að bjástra úti við þessa dag-
ana og hér er tækifæri fyrir þá
sem eru að rækta upp nýja garða
eða vilja bæta við sig trjám að
gera góð kaup. Tíu eins meters
birkiplöntur í búnti sem áður kost-
uðu 6.990 eru nú á 3.990, reynivið-
ur sem áður var á 1.149-1.590 fæst
nú á 899 og hansarós sem var á 899
kostar 499.
Tjáplöntur
á tilboði
Í dag eru síðustu forvöð að
gera góð kaup í Serica.
Verslunin Serica í Hlíðarsmára í
Kópavogi lokar í dag og því er
hægt að fá þar ýmis konar gjafa-
vöru og silkiblóm með miklum
afslætti. Afslátturinn er tíu til
fimmtíu prósent svo auðveldlega
á að vera hægt að gera góð kaup.
Afsláttur af
gjafavöru
Verslunin Serica lokar í dag.