Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 4
4 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði -
Seyðisfirði - Neskaupsstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal -
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Þú kaupir eitt glas af Vega Champignon og færð eitt glas af Vega
Acidophilus Bifidus Complex í kaupbæti. Champignon +FOS og
Spirulina inniheldur mikið af æskilegum vítamínum og næringarefnum,
léttir undir með hreinsunarferli líkamans, hefur jákvæð áhrif á þarma-
flóruna og dregur úr líkamslykt. Acidophilus Bifidus Complex + FOS
hjálpar til að viðhalda góðri meltingarflóru - tilvalinn ferðafélagi.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
3
26
99
05
/2
00
6
Ð
Á neytendasíðu Fréttablaðsins í gær
urðu þau mistök að heildarvöruverð
misreiknaðist í grein um verðsam-
anburð. Í könnuninni kom fram að
Bónus væri með lægsta verðið, 798
krónur. Hið rétta er að verslunin
Krónan var með lægsta verðið í
samanburðinum, 825 krónur en
verðið í Bónus var 1.094 og er beðist
afsökunar á þessum mistökum.
Leiðrétting verðsamanburðar:
Krónan með
lægsta verðið
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 22.6.2006
Bandaríkjadalur 74,93 75,29
Sterlingspund 137,44 138,10
Evra 94,43 94,95
Dönsk króna 12,664 12,738
Norsk króna 11,881 11,951
Sænsk króna 10,248 10,308
Japanskt jen 0,6484 0,6522
SDR 110,37 111,03
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
130,9367
Gengisvísitala krónunnar
ÚKRAÍNA, AP Júlía Timosjenkó verð-
ur næsti forsætisráðherra Úkraínu.
Hún skýrði frá því á þjóðþingi lands-
ins í gær að flokkarnir þrír, sem
kenndir eru við „appelsínugulu bylt-
inguna“ veturinn 2004 til 2005, hafi
náð saman um að mynda meirihluta-
stjórn.
„Við fengum annað tækifæri,“
sagði hún. „Ef við notum ekki þetta
tækifæri þá mun úkraínska þjóðin
segja að við hafi verið sjálfum okkur
að kenna.“ Ásamt flokki hennar,
sem heitir einfaldlega flokkur Júlíu
Tímosjenkó, standa að stjórninni
Sósíalistaflokkurinn og Okkar Úkr-
aína, sem er flokkur Viktors
Júsjenkós forseta.
Júsjenkó forseti rak Timósjenkó
úr embætti forsætisráðherra haust-
ið 2005 og hefur síðan verið stirt á
milli þeirra, sem er ein helsta
ástæða þess að stjórnarmyndunar-
tilraunir hafa gengið hægt. Nærri
þrír mánuðir eru frá því þingkosn-
ingar voru haldnar.
Viktor Janúkóvitsj, leiðtogi
Flokks héraðanna sem aðhyllist náið
samband Úkraínu við Rússland,
hafði gert sér vonir um að geta
myndað stjórn með flokki Júlíu,
næðu appelsínugulu flokkarnir ekki
saman. Nýja stjórnin ætlar að efla
tengslin við Vesturlönd og draga þá
að sama skapi úr tengslunum við
Rússland. - gb
HAFA NÁÐ SAMKOMULAGI Roman
Bezsmertny, leiðtogi Okkar Úkraínu, Júlía
Tímósjenkó, sem verður forsætisráðherra,
og Oleksandr Moroz, leiðtogi Sósíalista-
flokksins, skýra frá því að þau ætli að
mynda meirihlutastjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Appelsínugulu flokkarnir í Úkraínu ná loks saman um meirihlutastjórn:
Júlía aftur forsætisráðherra
DÓMSMÁL Karlmaður var í Héraðs-
dómi Austurlands í gær dæmdur í
45 daga fangelsi fyrir þjófnað.
Hann var ákærður fyrir að hafa
stolið einni Sony digital-myndavél
og fjórum DVD-diskum í Sölu-
skála Kaupfélags Héraðsbúa,
Kaupvangi, Egilsstöðum í maí
2006. Andvirði þýfisins nam ríf-
lega 27 þúsund krónum.
Maðurinn á að baki sakaferil
allt frá árinu 1993. Í ljósi þess
þótti ekki efni til að skilorðsbinda
refsinguna. -jss
Síbrotamaður í fangelsi:
Stal myndavél
úr söluskála
FÍKNIEFNI Fjórtán ára piltur var
handtekinn í Kópavogi í fyrrinótt
en hann er grunaður um að hafa
neytt eiturlyfja. Lögregla gerði
barnaverndaryfirvöldum viðvart.
Þá var haft samband við foreldrana
sem komu skömmu síðar og sóttu
son sinn.
Alls komu fimm fíkniefnamál
upp í Kópavogi í fyrrinótt. Fimm
manns á aldrinum 16 til 27 ára voru
færð á lögreglustöð vegna gruns
um eiturlyfjaneyslu.
Í öllum málunum var að sögn
lögreglu um einkaneyslu að ræða.
Fólkinu var sleppt að loknum yfir-
heyrslum og teljast málin fimm
upplýst af hálfu lögreglu. - æþe
Þrjú fíkniefnamál í Kópavogi:
Fjórtán ára
með fíkniefni
JÓRDANÍA, AP Leiðtogar Ísraels og
Palestínumanna, Ehud Olmert og
Mahmoud Abbas, föðmuðust er
þeir hittust í fyrsta skipti á ráð-
stefnu í Jórdaníu í gær, með
Abdullah II Jórdaníukonungi.
Olmert baðst afsökunar vegna
þeirra þrettán Palestínumanna sem
fórust í loftárás Ísraela í vikunni.
Olmert sagðist þó ekki tilbúinn í
friðarviðræður nema að Hamas-
samtökin, sem stýra heimastjórn
Palestínumanna, breyti viðhorfi
sínu gagnvart Ísrael. Abbas hefur
reynt að fá Hamas til að viðurkenna
Ísrael sem forsendu fyrir friðar-
viðræðum og binda þannig enda á
hömlur á fjárhagsaðstoð Evrópu-
ríkja. Ef það tekst ekki fer málið í
þjóðaratkvæðagreiðslu. -sgj
Abbas og Olmert hittust:
Viðræður eru
sagðar í nánd
OLMERT, ABBAS OG ABDULLAH II Leið-
togarnir hittust yfir morgunverði í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Karlmaður á sextugsaldri
hefur verið sýknaður í Héraðsdómi
Reykjavíkur af ákæru um að hafa, í
afmælisveislu dóttur sinnar árið
2004, sett pylsu í klof sér líkt og um
getnaðarlim væri að ræða og otað
pylsunni upp að rassi gestkomandi
stúlku, sem var þá ellefu ára.
Vitnisburður stúlkunnar fékk
einungis stoð í vitnisburði nokk-
urra vinkvenna hennar en engra
annarra. Auk þess bar vitnum ekki
saman um það hvort pylsur hefðu
yfir höfuð verið á boðstólum í
afmælinu. Meint óviðurkvæmi-
legt athæfi mannsins taldist því
ósannað og maðurinn dæmdur
sýkn. - sh
Karlmaður á sextugsaldri:
Sýknaður af
pylsupoti í rass
Grænlendingar sáttir Ánægja ríkir
á Grænlandi með niðurstöður ársfundar
Alþjóðahvalveiðiráðsins. Ólíkt ársfund-
inum í fyrra stóðu Danir við loforð sín
um að styðja kröfur Grænlendinga og
Færeyinga og sömuleiðis fengu Græn-
lendingar hrós fyrir rannsóknir sínar á
hrefnu og reyðarhval.
SJÁVARÚTVEGUR
Tekinn á ofsahraða Erlendur ferða-
maður var tekinn á 153 kílómetra hraða
á Reykjanesbrautinni um tíuleytið í
fyrrakvöld, á leið til Keflavíkur. Hann má
reikna með 50 þúsund króna sekt.
LÖGREGLUMÁL
BLEKIÐ LÁTIÐ LEKA Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði: „Látið blekið leka!“ Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, Ingimundur Sigurpálsson formaður og Vilmundur Jósefsson, varaformaður SA, skrifa undir samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
VINNUMARKAÐUR „Þessar aðgerðir
stemma ekki stigu við verðbólgu
heldur snerta verðbólgu að því
leyti að menn ná samkomulagi og
stuðla að því að það verður ekki
ófriður á vinnumarkaði. Það er
mikils virði,“ segir Edda Rós Karls-
dóttir, hagfræðingur hjá greining-
ardeild Landsbankans.
„Stjórnvöld þurfa nú að draga
úr eftirspurninni í hagkerfinu, það
hefur ekki verið gert með þessum
aðgerðum. Þessar aðgerðir auka
kaupmátt en draga ekki úr honum,“
segir hún.
Fulltrúar stjórnar og stjórnar-
andstöðu eru ánægðir með niður-
stöðuna. Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra kveðst ánægður með
samningana. „Þeir eru grundvöllur
þess að ná tökum á verðbólgunni
þannig að stöðugleiki hefjist hér á
ný. Svo fagna ég sérstaklega kjara-
samningum sem snúa að þeim sem
lægri hafa launin, þeir fá meira út
úr þessu, og eins fjölskyldufólkið.“
„Það er of snemmt að hrósa
sigri yfir verðbólgunni og jafn-
vægisleysinu í efnahagsmálum
þótt þetta sé vissulega jákvætt inn-
legg svo langt sem það nær,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs. „Það er fagnaðarefni
hvað aðilar vinnumarkaðarins taka
ábyrgt á málum en það er hins
vegar seint og lítið sem frá ríkis-
stjórninni kemur. Hún gerir þetta
með ólund.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, taldi
fagnaðarefni að aðilar vinnumark-
aðarins hefðu skapað forsendur
fyrir efnahagslegum og félagsleg-
um stöðugleika „eftir að ríkis-
stjórnin var búin að missa tökin á
hagstjórninni og verðbólgan var
komin á fulla ferð,“ en taldi aðgerð-
ir ríkisstjórnarinnar ekki ganga
nógu langt til að bæta kjör þeirra
verst settu.
„Þetta er í takt við það sem við
höfum talað um í Frjálslynda
flokknum,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, varaformaður Frjáls-
lynda flokksins.
„Ef þróunin hefði haldið áfram
óbreytt þá hefði yngra fólk átt á
hættu að glata heimilum sínum og
lenda í skuldafangelsi,“ segir Guð-
mundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambandsins, og segir
að aðilar vinnumarkaðarins hafi
stillt ríkisstjórninni upp við vegg.
„Ef ríkisstjórnin hefði ekkert gert
þá hefði hún lent í erfiðri stöðu í
komandi kosningum en við vonum
og treystum því að þetta takist.“
- sh/sdg/ghs
Ríkisstjórninni var
stillt upp við vegg
Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að ungt fólk hafi átt á hættu að lenda
í skuldafangelsi ef ríkisstjórninni hefði ekki verið stillt upp við vegg. Hagfræð-
ingur telur aðgerðirnar ekki stemma stigu við verðbólgu en séu mikils virði.