Fréttablaðið - 23.06.2006, Qupperneq 6
6 23. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Okkar þekking nýtist þér ...
Rétt hitastig og hreint loft.
Eyðir svifögnum, lykt ofl.
Bætir heilsuna og eykur
vellíðan og afköst
starfsmanna
Ókeypis ráðgjöf !
Sími: 440 - 1800
Komfort loftkæling
Er heitt og þungt loft á þínum
vinnustað?
www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir lausa
til umsóknar stöðu ritstjóra Stúdentablaðsins
skólaárið 2006-2007.
Umsækjandi skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Hafa góða þekkingu, innsýn og áhuga á stúdentalífinu og málefnum
stúdenta
• Hafa frumkvæði og getu til að starfa sjálfstætt
• Hafa gott vald á íslenskri tungu
• Hafa reynslu af ritstjórnarstörfum
Ritstjóri er ráðinn í 50% stöðu til eins árs í senn. Gert er ráð fyrir að
fyrsta blað nýs ritstjóra komi út í byrjun haustannar.
Nánari upplýsingar um starfið sem og launakjör má fá á skrifstofu
Stúdentaráðs Háskóla Íslands í síma: 570-0850
Umsókn skal merkja „Ritstjóri 2006-2007“ og skila skriflega til:
Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Stúdentaheimilinu v. Hringbraut
101 Reykjavík
eða með tölvuskeyti á netfang ráðsins: shi@hi.is
Umsóknarfrestur rennur út 4. júlí.
Stúdentaráð var stofnað árið 1920 og hefur alla tíð barist fyrir margvíslegum
breytingum á háskólasamfélaginu. Stúdentaráð er málsvari allra háskólastúdenta
og fer með þau mál er varða hagsmuni þeirra gagnvart háskólayfirvöldum, stjórn-
völdum og öðrum þeim sem áhrif hafa á stefnu háskólans.
SUÐUR-AFRÍKA Desiree Louis Ober-
holzer, 44 ára kona, hefur verið
dæmd til tuttugu ára fangelsisvist-
ar fyrir hlut sinn í morðinu á Gísla
Þorkelssyni, sem fannst myrtur í
nágrenni Jóhannesarborgar í
Suður-Afríku í júlí í fyrra. Ober-
holzer játaði aðild sína að málinu
en félagi hennar, Willie Theron,
neitaði allri sök. Réttarhöld yfir
honum hefjast í lok ágúst.
Samkvæmt framburði konunn-
ar var parið að aka Gísla af flug-
vellinum í Jóhannesarborg þegar
félagi hennar skaut hann í höfuðið
með þeim afleiðingum að hann lést.
Gísli hafði þá verið að koma úr
heimsókn til systur sinnar í Banda-
ríkjunum.
Sagði Oberholzer morðið hafa
verið framið í fjárhagsskyni, en
Gísli hafði nýverið selt íbúð í
Jóhannesarborg og var með tölu-
vert fé á sér. Parið vissi af þessu
og var búið að undirbúa morðið í
meira en mánuð. Eftirá var líkinu
komið fyrir í tunnu og steypt yfir,
en þannig fannst það nokkrum
vikum seinna rétt fyrir utan borg-
ina.
Gísli hafði búið í Suður-Afríku í
rúman áratug og verið með sjálf-
stæðan atvinnurekstur allan þann
tíma. - sþs
Morðið á Gísla Þorkelssyni í Suður-Afríku:
Dæmd í tuttugu ára
fangelsi fyrir morð
GÍSLI ÞORKELSSON
Í sjálfheldu Ketti var bjargað úr
sjálfheldu á þaki þriggja hæða húss við
Vitastíg í fyrrinótt. Íbúar í húsinu gerðu
slökkviliði viðvart. Slökkviliðsmenn voru
snöggir að bjarga kisu niður.
SLÖKKVILIÐ
Eldur í þvottahúsi Slökkvilið Horna-
fjarðar var kallað að bænum Volaseli í
Lóni um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld.
Eldur kom upp í þvottahúsi íbúðar-
hússins en húsráðendur höfðu náð að
slökkva eldinn þegar slökkviliðið kom á
staðinn. Reykræsta þurfti húsið.
HÖFN
BORGARMÁL Vinna við ný íbúða-
hverfi á Geldinganesi hefst nú
þegar og þar mun rísa íbúða-
byggð fyrir átta til tíu þúsund
manns. Tillaga um þetta mál var
samþykkt á fundi skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar í fyrradag, en
fulltrúar Samfylkingar og vinstri
grænna sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna. Búist er við að fyrstu
lóðum verði úthlutað árið 2007.
„Þarna er verið að beina fólks-
fjölgun frekar í jaðarbyggðir en í
þéttingu, og við veltum því fyrir
okkur hvort það sé rétt skref,“
sagði Svandís Svavarsdóttir, borg-
arfulltrúi vinstri grænna, aðspurð
um málið. Hún sagði að huga
þyrfti vel að staðsetningu byggð-
arinnar og uppbygging á svæðinu
þyrfti að haldast í hendur við gerð
Sundabrautar, en undirbúningur
vegna lagningar hennar hefur
staðið yfir í mörg ár.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingar, gagnrýnir
það sem hann kallar afturhvarf
nýs meirihluta skipulagsráðs frá
þéttingu byggðar og eflingu mið-
borgarinnar. Segir hann furðulegt
að stefnt sé að úthlutun lóða í
Geldinganesi þegar á næsta ári
áður en Sundabraut verður komin
til framkvæmda. „Það er glap-
ræði að fara í þetta mál áður en
Sundabraut kemur. Að öðrum
kosti leiðirðu bara alla umferðina
í gegnum Grafarvoginn og ein-
hver bráðabirgðavegur yfir
ósnortnar fjörur finnst mér ekki
ganga. Þetta þarf að skoða miklu
betur áður en menn taka svona
ákvörðun sem ekki er hægt að
vinda ofan af.“
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
formaður skipulagsráðs, segir
eðlilegt að ætla megi að nokkur ár
taki að byggja upp fyrirhugað
hverfi í nesinu og því geti lagning
Sundabrautar og uppbygging
Geldinganessins vel haldist í
hendur.
„Það er þegar vegtenging út í
nesið og hana þarf vissulega að
bæta en hún er til staðar. Það er
einkennilegur málflutningur að
halda því fram að ekki sé hægt að
hefja uppbyggingu þarna þegar
stundað hefur verið stórvirkt
grjótnám á svæðinu um langan
tíma. En Sundabraut mun að lík-
indum haldast í hendur við upp-
byggingu byggðar á svæðinu og
framkvæmdin mun eflaust hraða
því ferli sem Sundabrautin er í.“
salvar@frettabladid.is / albert@frettabladid.is
Tíu þúsund íbúar
á Geldinganesi
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að vinna við skipulag íbúðabyggðar
á Geldinganesi hefjist strax. Fyrstu lóðum verður úthlutað á næsta ári.
Fulltrúar minnihlutans í skipulagsráði mótmæla þessum áformum harðlega.
TÖLVUGERÐ MYND AF FYRIRHUGAÐRI ÍBÚÐABYGGÐ Á GELDINGANESI Ekki eru allir á eitt
sáttir um hvernig haga skuli byggð á Geldinganesi. MYND: FREYR FROSTASON HJÁ THG
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Hafnar-
firði hefur krafist gæsluvarðhalds
yfir manni sem er grunaður um
aðild að skotárásinni í Vallahverfi í
fyrradag. Tveir félagar mannsins
sættu yfirheyrslum í gærdag og
fram á kvöld. Það var undir fram-
burði þeirra komið hvort gæslu-
varðhalds yrði einnig krafist yfir
þeim, en þeir voru enn í yfirheyrsl-
um þegar blaðið fór í prentun.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær var gerð skotárás með hagla-
byssu á raðhús í Vallahverfi í Hafn-
arfirði snemma á miðvikudags-
morgun. Þrír menn voru í húsinu
en þeir sluppu ómeiddir. Í fyrra-
kvöld og fyrrinótt handtók lögregl-
an svo átta manns. Fimm þeirra
var sleppt eftir yfirheyrslur en
þrír settir í fangageymslur og yfir-
heyrðir. Rannsókninni miðaði vel í
gær.
Mikill óhugur hefur verið í
íbúum í næsta nágrenni við raðhús-
ið þar sem atvikið átti sér stað. Í
hverfinu búa fjölmargar barnafjöl-
skyldur, sem eru uggandi um hag
sinn og barna sinna eftir að skotá-
rásin var gerð. Fíkniefnalögreglu
hafði verið send ábending um að
eitthvað óeðlilegt væri á seyði í
raðhúsinu fyrir um það bil fjórum
mánuðum.
Málið er einungis rannsakað
sem brot á vopnalögum, en ekki
með tilliti til fíkniefna, enn sem
komið er. Mennirnir þrír eru allir á
þrítugsaldri. -jss
HÚSIÐ Í VALLAHVERFI Eins og sjá má var
skotið úr haglabyssunni inn um glugga á
raðhúsinu í Vallahverfi.
Rannsókn lögreglu á skotárásarmálinu í Hafnarfirði miðar vel:
Einn í haldi vegna skotárásar
KJÖRKASSINN
Ætlarðu að renna fyrir fisk í
sumar?
Já 20%
Nei 80%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu sátt(ur) við samkomulag
verkalýðshreyfingarinnar og
Samtaka atvinnulífsins
Segðu þína skoðun á Vísi.is
Aflabrögð Alls var landað 14.359
tonnum af sjávarfangi í mars að verð-
mæti rúmar 412 milljónir króna í höfn-
um á Vesturlandi. Í sama mánuði í fyrra
var landað 17.538 tonnum að verðmæti
rúmar 369 milljónir króna.
SJÁVARÚTVEGUR
Stórtækir skógarbændur Skóg-
arbændur í Kelduhverfi eru nú í óða
önn að planta trjám á vegum Norð-
urlandsskóga, það er í Lóni, Garði og
Lindarbrekku. Ráðgert er að setja niður
milli 50 og 70 þúsund tré í ár, aðallega
birki,rússalerki og greni.
SKÓGRÆKT
DÓMSMÁL Færeyski togarinn
Sancy, sem staðinn var að meint-
um ólöglegum veiðum í íslenskri
lögsögu á sunnudagskvöld, fór frá
Eskifirði með alla skipverja inn-
anborðs í gærkvöldi.
Ákæra á hendur skipstjóra og
fyrsta stýrimanni togarans, þar
sem krafist er bóta fyrir ólöglega
veiddan afla, var þingfest í Hér-
aðsdómi Austurlands í gær. Stýri-
maðurinn var ákærður fyrir hlut-
deild að málinu. Þeir neituðu báðir
sök og fengu að fara gegn 7,5 millj-
óna króna tryggingu. Grunurinn
byggist aðallega á rannsóknum á
afladagbók skipsins. Málinu er
frestað fram í október. - sh
Málinu frestað fram í október:
Sancy farinn
gegn tryggingu
MEINTIR ÞJÓFAR Sancy við komuna til
Eskifjarðar.
SLYS Fjórir voru fluttir á sjúkra-
hús, þrír til Reykjavíkur og einn
til Keflavíkur, eftir að ekið var á
kyrrstæðan bíl á Reykjanesbraut
rétt vestan við Kúagerði um
klukkan sjö í gærkvöldi. Allir
sem færðir voru á slysadeild voru
í kyrrstæða bílnum.
Leiðinni til Keflavíkur var
lokað í klukkustund og umferð
beint á Vatnsleysuströnd en slys-
ið varð á tvöfalda kaflanum og
því var áfram opið til Keflavíkur.
Samkvæmt lögreglunni í
Keflavík heilsast fólkinu ágæt-
lega. Ekki liggur fyrir hvers
vegna bíllinn var kyrrstæður á
miðri götu. - sh
Reykjanesbraut lokað í gær:
Fjórir á spítala
eftir árekstur